Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Uppskera á sojabaunum. Hlutur bandarískra sojabauna á heimsmarkaði hefur minnkað um helming á undanförnum árum.
Uppskera á sojabaunum. Hlutur bandarískra sojabauna á heimsmarkaði hefur minnkað um helming á undanförnum árum.
Mynd / James Baltz
Utan úr heimi 23. febrúar 2026

Óttast hrun í landbúnaði

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Í opnu bréfi sem fjöldi áhrifamanna í bændastétt sendi þingmönnum í landbúnaðarnefndum beggja deilda þingsins í Washington er miklum áhyggjum lýst.

Segjast þeir óttast að samkeppnishæfni bandarísks landbúnaðar til frambúðar muni minnka, enda hafi gjaldþrotum fjölgað meðal bænda og er því spáð að minna en helmingur bújarða skili hagnaði á árinu.

Tollastefnan skilar ekki árangri

Viðskiptahalli á landbúnaðarvörum sé í sögulegu hámarki, samanborið við metútflutning á bandarískum landbúnaðarafurðum og góða afkomu fyrir nokkrum árum. Ástæðurnar fyrir þessu séu margar, en þyngst vegi stefna stjórnvalda sem hafi aukið rekstrarkostnað, skemmt aðgang að mörkuðum erlendis og takmarkað aðgang að erlendu vinnuafli sem skipti bændur og afurðastöðvar máli. Eins sé búið að skera niður framlög til rannsókna á sviði landbúnaðar.

Í bréfinu segir að tollastefna Bandaríkjastjórnar hafi ekki orðið til þess að efla innlendan iðnað og landbúnaðarframleiðslu, þvert á það sem ráðamenn hafa haldið fram. Tollarnir hafi hækkað verð á tilbúnum áburði, plöntu- og dýralyfjum ásamt varahlutum í vélbúnað. Þar með sé framleiðslukostnaður á landbúnaðarafurðum orðinn hærri en markaðsverð. Nýlega hafi verið horfið frá tollum á áburð, en höfundar bréfsins spyrja sig af hverju það sama sé ekki gert með önnur aðföng.

Önnur ríki græða

Í bréfinu er komið inn á viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína sem hefur haft neikvæð áhrif á framleiðslu sojabauna. Áður en stríðið hófst árið 2018 framleiddu bandarískir bændur 47 prósent af sojabaunum á heimsmarkaði, en í dag er markaðshlutdeildin komin niður í 24,4 prósent. Á sama tíma hefur hlutur brasilískrar sojabaunaframleiðslu af heimsmarkaði aukist um meira en 20 prósent. Nú séu brasilískir bændur orðnir stærstu framleiðendur heims á sojabaunum, bómull, nautakjöti og kjúklingi.

Eins hafa bændur í Argentínu og Ástralíu hagnast á viðskiptastríði Bandaríkjanna. Helstu viðskiptaríki Bandaríkjanna séu farin að leita annað og nefna bréfritarar í því samhengi fríverslunarsamning Evrópusambandsins við Mercosurríkin í Suður-Ameríku og fríverslunarsamning Kanada og Kína.

Í frétt New York Times um málið er sagt að meðal aðilanna 27 sem skrifa nafn sitt við bréfið séu margir fyrrum formenn öflugra bændasamtaka í landinu, eins og samtaka sojabaunaframleiðanda og maísræktenda. Eins störfuðu nokkrir bréfritarar fyrir stjórnvöld á valdatímum forsetanna Bush og Reagan.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...