Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Stjórn og varastjórn deildar hrossabænda með nýjan formann, Ólaf Þórisson, fyrir miðri mynd.
Stjórn og varastjórn deildar hrossabænda með nýjan formann, Ólaf Þórisson, fyrir miðri mynd.
Mynd / Edda Kristín Sigurjónsdóttir
Fréttir 9. apríl 2026

Nýr formaður hrossabænda

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Skeggrætt var á fundi hrossabænda. Ólafur Þórisson er nýr formaður.

Hiti var í fundinum og áleitnum spurningum velt upp. Fráfarandi formaður sagði að virkja þyrfti félagskerfi hrossabænda, þátttaka endurspeglaði ekki umfang greinarinnar.

Margslungin búgrein

Dagskrá deildarfundar hrossaræktenda var hefðbundin en ljóst að hiti var í fundargestum enda þó nokkrir sem kváðu sér endurtekið hljóðs. Nanna Jónsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku og var Ólafur Þórisson sjálfkjörinn eftirmaður hennar og situr næstu þrjú árin. Aðrir stjórnarmenn höfðu enn ekki lokið stjórnarsetu sinni og sitja því áfram en það eru Guðný Helga Björnsdóttir, Jón Vilmundarson, Agnar Þór Magnússon og Ólafur Sigurgeirsson. Ný varastjórn var kjörin á fundinum. Fyrsti varamaður var kjörinn Þórdís Ingunn Björnsdóttir, annar Rúnar Þór Guðbrandsson og þriðji varamaður Sonja Líndal.

Stundum var stutt í grínið og skondin orð látin falla en annars gekk á með hæðum og lægðum á fundinum sem fram fór síðdegis og teygði sig inn í kvöldið. Fráfarandi formaður Nanna Jónsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar og áréttaði að hrossarækt væri mögnuð atvinnugrein með marga anga sem hefðu styrkst í gegnum árin, hún telur tækifærin vera mörg fyrir hrossabændur. Hún sagði þó þurfa að virkja félagskerfi hrossaræktenda til að auka þátttöku þeirra í starfi deildarinnar. Nanna sagði flestar aðrar búgreinar fyrst og fremst sinna matvælaframleiðslu á meðan hrossaræktendur væru með verðmætaskapandi kerfi sem byggi frekar á munaði. „Við skulum ekki gera lítið úr matvælaframleiðsluþætti hrossaræktar, þegar ég horfi yfir hjörðina mína fyllist ég öryggistilfinningu, sér í lagi á stríðstímum“, sagði Ólafur Sigurgeirsson sem stýrði fundinum, þegar Nanna hafði lokið máli sínu.

Ekki meira fjármagn til Horses of Iceland

Farið var yfir markaðsátaksverkefnið Horses of Iceland sem haldið hefur verið úti undanfarin 10 ár í samstarfi við Íslandsstofu og hefur kostað um 30 milljónir á ári. Verkefnið hefur LÍFRÆN SKOLP að mati verkefnisstjóra gengið mjög vel og skapað mikil verðmæti. Áhrifavaldar léku mikilvægt hlutverk í verkefninu og náðu gríðarlegri athygli með efni sem þeir deildu og náði til milljóna manns. Nú stendur yfir endurskoðun á fjármagni ríkisins til kynningarmála og því hefur ekki fengist frekara fjármagn til að halda verkefninu áfram. Það er því í biðstöðu enn sem komið er. Mikil synd þykir ef það heldur ekki áfram.

Sá undir iljarnar á splúnku nýjum formanni í bláfundarlok, hann þurfti enda að mæta til keppnisstarfa á Hellu um rökkurbil, hann þakkaði Nönnu fyrir sín störf og kvaðst hlakka til að vinna með stjórn á komandi tíð. Í framboðstilkynningu sinni sagði Ólafur „mig langar að leggja mitt af mörkum til að sýnileiki hrossaræktarinnar í samfélaginu verði sem mestur og við munum halda áfram að þróast og fylgja þeim málefnum sem munu hjálpa hrossaræktinni að lifa og dafna sem best í framtíðinni. Virkja grasrótina, styrkja grunnstoðir og vera sýnileg á sem flestum stöðum.“ Hann rekur ásamt konu sinni, Söru Maagaard Nielsen, hrossaræktar- og tamningarstöð í Miðkoti í Landeyjum.

Skylt efni: Hrossarækt | Búnaðarþing

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...