Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja í búfé leyfir ekki endurnýtingu á lögbundnum merkjum en valkvætt er að nota annað merki til viðbótar í hitt eyrað.
Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja í búfé leyfir ekki endurnýtingu á lögbundnum merkjum en valkvætt er að nota annað merki til viðbótar í hitt eyrað.
Mynd / smh
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Endurnýting óheimil á lögbundnum merkjum í sauðfé

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar eru nýjar og boðaðar reglur um notkun eyrnamerkja búfjár staðfestar og útfærðar.

Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir.

Samkvæmt reglugerðinni verður ekki heimilt að endurnýta merkin, eins og áður hefur tíðkast til að mynda í sauðfjárrækt. Heimilt er þó að nota annað merki til viðbótar hinu lögbundna. Á Íslandi er einungis skylt að merkja sauðfé í annað eyrað með lögbundnu, forprentuðu merki sem keypt er af merkjasala sem fengið hefur samþykki Matvælastofnunar. Þessi merki má ekki endurnýta.

Viðbótarmerki leyfð í hitt eyrað

Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun, segir að í nýju reglugerðinni sé tekið skýrt fram að merkja þurfi öll lömb með löggiltu, forprentuðu eyrnamerki þar sem fram kemur bæjarnúmer og gripanúmer með eða án rafræns merkis (örmerki), í annað eyrað. „Þessi merki má ekki endurnýta og skal farga í sláturhúsum. Sláturhúsin skulu gera skriflegt verklag um hvernig þau standa að förgun merkja sem skal vera aðgengilegt við reglubundið eftirlit.

Þar fyrir utan er leyfilegt að vera með valkvæð merki að auki, í hinu eyranu. Í þessum valkvæðu merkjum geta menn verið með rafræn merki með hlaupandi númerum eins og tíðkast hefur undanfarin ár. Þessi merki má endurnýta og sláturhúsum er ekki skylt að farga þeim. Það er á ábyrgð bænda að þrífa og sótthreinsa merki sem tekin eru út af sláturhúsi og endurnýtt,“ segir Sigurbjörg.

Hvað varðar fullorðið fé segir Sigurbjörg að það skuli merkja með lögbundnu, forprentuðu „fullorðinsmerki“ fyrir sjö mánaða aldur, einnig með rafrænu merki. Það verði að uppfylla eftirfarandi skilyrði: fyrstu 3 stafir = landnúmer (352), næstu 7 tölustafir er búsnúmer og síðustu 5 stafir eru gripanúmer. Einnig er leyfilegt að hafa valkvæð merki í hinu eyranu á fullorðnu fé og þar geta menn verið með endurnýtanleg hlaupandi rafræn merki.

Krafa frá Evrópusambandinu

Krafan um bann við endurnýtingunni er innleidd frá Evrópusambandinu og tók gildi síðasta haust en málið hefur verið í vinnslu í nokkur ár og bændur haft undanþágu til endurnýtingar. Evrópulöggjöfin kveður á um að einstaklingsnúmer gripa skuli vera bundin einum grip og eiga ekki að geta komið fram á öðrum gripum.

Skylt efni: sauðfjárrækt

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...