Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Meðal þess sem heilbrigðisnefndir hafa haft umsjón með er útgáfa starfsleyfa fyrir alifuglaeldi.
Meðal þess sem heilbrigðisnefndir hafa haft umsjón með er útgáfa starfsleyfa fyrir alifuglaeldi.
Mynd / smh
Fréttir 16. febrúar 2026

Markmið um einfaldara og skilvirkara eftirlit

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Samkvæmt frumvarpsdrögum um breytingar á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum verða heilbrigðisnefndir sveitarfélaga aflagðar og færist eftirlit þar með frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar.

Drögin hafa verð sett í samráðsgátt stjórnvalda en markmið þess er aukið samræmi eftirlits, einföldun og skilvirkni.

Nauðsynlegar breytingar

Það er umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sem leggur frumvarpsdrögin fram til kynningar og í umfjöllun á vef ráðuneytisins um málið segir að fjöldi greininga og skýrslna liggi fyrir, allt frá árinu 2001, sem sýnt hafa fram á nauðsyn breytinga á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælaeftirliti. Þar beri hæst skortur á samræmi í eftirliti og þörf á skýrari ábyrgð og yfirstjórn með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælaeftirliti.

Umhverfis- og orkustofnun mun taka við hlutverki heilbrigðinefnda og -eftirlita varðandi útgáfu starfsleyfa, eftirliti með rekstraraðilum og úrgangi, svo dæmi séu tekin. Starfsemi og þjónusta í kringum þessi málefni verður því miðlæg. Þannig verði komið á einu samræmdu upplýsingakerfi fyrir þjónustu og eftirlit á sviði hollustuhátta og mengunarvarna.

Viðbragð við áminningu ESA

Umsagnarfrestur um frumvarpsdrögin er til 17. febrúar, en í umfjöllun ráðuneytisins kemur fram að von sé á sambærilegu frumvarpi um eftirlit með matvælum frá atvinnuvegaráðuneytinu. Það sé viðbragð við áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem sent var íslenskum stjórnvöldum í júlí 2024.

Það var sent vegna þess að ítrekað hefur komið fram í niðurstöðum úttekta ESA að opinbert eftirlitskerfi fyrir matvæli, fóður og dýraheilbrigði sé ekki í samræmi við þau viðmið sem sett séu í EES-samningnum.

Með því frumvarpi verður sú breyting að ábyrgð á eftirliti með matvælum verður færð frá heilbrigðiseftirliti til Matvælastofnunar. Með heildarbreytingum er eftirlitsaðilum á sviðum matvæla, hollustuhátta og mengunarvörnum fækkað úr ellefu í tvo, en starfandi heilbrigðiseftirlitsstöðvar eru alls níu í dag um allt land.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.