Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Í Svartaskógi í Þýskalandi. LIFE-áætlunin hefur haft jákvæð áhrif á loftslag og umhverfi, en fær gagnrýni fyrir ógagnsæi.
Í Svartaskógi í Þýskalandi. LIFE-áætlunin hefur haft jákvæð áhrif á loftslag og umhverfi, en fær gagnrýni fyrir ógagnsæi.
Mynd / Miikka Luotio
Utan úr heimi 23. febrúar 2026

LIFE-styrkirnir ógagnsæir

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Endurskoðunarréttur Evrópusambandsins segir erfitt að átta sig á áhrifum af styrkjum LIFE-áætlunarinnar, sem fjármagnar verkefni á sviði loftslags- og umhverfismála.

Eftir að hafa framkvæmt endurskoðun á 22 verkefnum sem fjármögnuð voru með LIFE-styrkjum í Finnlandi, Póllandi og Spáni segir rétturinn áhrifin óljós. Skortur á gagnsæi grafi undan áhrifum í þeim löndum þar sem verkefni hafa farið af stað. Euro News greinir frá.

Reynslunni sé sjaldan deilt öðrum til gagns, sem komi í veg fyrir að verkefnin hafi víðtæk samfélagsleg áhrif. Eins gagnrýndi endurskoðunarrétturinn að mörg verkefni fái framgang án þess að tekin séu til greina þau loftslagsog umhverfismál sem séu mest aðkallandi í hverju landi. Margir veikleikar séu þegar kemur að forgangsröðun, eftirliti með framgangi og miðlun niðurstaða. Eins er oft mjög óljóst hver langtímaáhrif verkefnanna eru.

Jafnframt bendir rétturinn á að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins veiti ekki upplýsingar um það fjármagn sem fari að lokum í hvert verkefni, heldur séu aðeins aðgengilegar upplýsingar um fjárhagsáætlanir. Gagnrýni endurskoðunarréttarins kemur á sama tíma og Evrópuráðið tilkynnti að 132 LIFE-verkefni hafi hlotið samtals 358 milljóna evra styrk.

Samkvæmt skýrslu Evrópuráðsins árið 2024 hafði LIFE-áætlunin haft ýmis jákvæð áhrif, eins og að bæta ástand stofna 435 tegunda á sama tíma og dregið hefur verið úr losun á gróðurhúsalofttegundum og köfnunarefnisoxíði. Styrkfjármagnið sem var veitt á árunum 2013 til 2020 hafði skilað sér tífalt til baka samkvæmt skýrslunni.

Í sumar tilkynnti Evrópuráðið áætlanir um að fella LIFE-áætlunina inn í hinn nýja Evrópska samkeppnishæfnissjóð. Þær áætlanir hafa verið gagnrýndar þar sem óttast er að áhersla á líffræðilegan fjölbreytileika og umhverfismál verði undir í áherslu á iðnaðaruppbyggingu, sérstaklega á þeim tíma þegar þörfin sé mest. Kostnaðurinn af aðgerðaleysi í þeim málum verði að lokum meiri. LIFE-áætlunin hefur veitt styrki frá árinu 1992 og er Ísland eitt þátttökuríkja.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.