Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Eitt skemmtilegasta mót hvers sumars, bikarkeppnin, stendur nú yfir. Hart var barist  í leik SFG og Karls  Sigurhjartarsonar nýverið og fór svo að Gunnlaugur Sævarsson og félagar höfðu betur.
Eitt skemmtilegasta mót hvers sumars, bikarkeppnin, stendur nú yfir. Hart var barist í leik SFG og Karls Sigurhjartarsonar nýverið og fór svo að Gunnlaugur Sævarsson og félagar höfðu betur.
Mynd / bþ
Líf og starf 8. júlí 2026

Byrjandi leggur skúrk

Höfundur: Björn Þorláksson

Byrjendur í bridds fara stundum varlegar í hindranasagnir en hinir sem lengra eru komnir. Fyrir kemur að „vitleysurnar“ skila góðu skori! Í sumarbridds í Síðumúlanum kom upp spil fyrir skemmstu þar sem þú ert fyrst(ur) á mælendaskrá á hagstæðum hættum. Þú tekur upp ÁKT8742, eyðu í hjarta, einspil í tígli og G8652 í laufi. Á hverju opnarðu?

Flestir byrjendur í bridds láta duga að telja spaðana sína og minnast þess að á briddsnámskeiðum kemur fram að með sexlit skuli opna á öðru sagnstigi. Með sjölit á því þriðja, með áttlit á fjórða sagnstiginu. Að því gefnu að ekki sé mikið af hápunktum. Það sem hefur þá kannski gleymst að segja byrjendunum er að ef fimmlitur fylgir með sexlit er eðlilegt að hækka hindrunina um eitt sagnstig sem þýðir að í spili dagsins er eðlilegt að opna á fjórum spöðum. Doktor Ingi Agnarsson var óheppinn í sumarbriddsinum þetta kvöld. Kannski vegna þess að hann var með byrjendur sem andstæðinga? Hann sat í vestur með áttlitinn í tígli (sjá stöðumynd) og kónginn annan í hjarta. Andstæðingur hans af byrjendakyni á hægri hönd lét duga að opna á 3 spöðum en ekki fjórum eins og nánast allur salurinn. Ingi stökk í 5 tígla. Makker Inga vissi ekki hvað ætti að melda en lyfti eftir umhugsun í slemmuna sem fór niður vegna legunnar.

Bridgeþáttur Bændablaðsinns sendi Magnúsi Magnússyni, landsliðsmanni í bridds, erindi um þetta spil og bað hann að finna skúrkinn við borðið! Ekki kom á óvart að samkvæmt áliti Magnúsar sat skúrkur spilsins í austur, umsjónarmaður þáttarins. Magnús segist reyndar telja að í sveitakeppni „komi til greina“ að lyfta 5 tíglum í 6 eftir þessar sagnir en honum fannst óþarfi í tvímenningi að leyfa ekki bara 5 tíglum að standa.

Þar sem opnað var á fjórum spöðum í suður gengu sagnir nánast alls staðar eins: 4sp-5tíglar-5sp-dobl og spilað.

Byrjendurnir í NS fengu því nánast hreinan topp fyrir hina hóflegu hindrun. En Ingi sat eftir sviðinn, með andstæðing beint fyrir framan og einnig til beggja handa!

Umsjón: Björn Þorláksson,

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 19. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni sem birtist í 14. tölublaði Bændablaðsins.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 19. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Ljónið hefur lent í einhverjum skakkaföllum sem það er að reyna að skilja, með t...

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 19. ágúst 2026

Svar við loftmyndagetraun

Af hvaða stað er myndin? Að þessu sinni eru lesendur beðnir um að bera kennsl á ...

Vísnahornið
Líf og starf 12. ágúst 2026

Vísnahornið

Stuðst fram á stafinn heitir þetta kvæði Rósbergs G. Snædal:

Sumarið er tíminn ...
Líf og starf 12. ágúst 2026

Sumarið er tíminn ...

Falla bringuhár undir sumartískuna 2026? Þegar stórt er spurt.

Teflt utanhúss
Líf og starf 12. ágúst 2026

Teflt utanhúss

Í gamla daga var helsta firmamót Taflfélags Reykjavíkur haldið utanhúss, yfirlei...

Svíinn og þingeyski bóndinn
Líf og starf 12. ágúst 2026

Svíinn og þingeyski bóndinn

Ég hitti þingeyskan bónda fyrir skemmstu, roskinn spilamann sem fylgist töluvert...

Bærinn undir sandinum
Líf og starf 12. ágúst 2026

Bærinn undir sandinum

Haustið 1990 gerðu tveir grænlenskir hreindýraveiðimenn merkilega uppgötvun á af...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f