Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Svona mun Svansvottaða þjónustuhúsið líta út á Hellu en húsið verður byggt á lóð við Faxaflöt 2a. Útboðsgögn voru afhent 9. mars og er skilafrestur tilboða til 21. apríl.
Svona mun Svansvottaða þjónustuhúsið líta út á Hellu en húsið verður byggt á lóð við Faxaflöt 2a. Útboðsgögn voru afhent 9. mars og er skilafrestur tilboða til 21. apríl.
Mynd / Aðsend
Fréttir 9. apríl 2026

Landsvirkjun byggir þjónustumiðstöð

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Landsvirkjun er nú með útboð í gangi á lóð undir byggingu þjónustumiðstöðvar, sem mun gegna mikilvægu hlutverki fyrir Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins.

Auk starfsfólks frá vindmyllu- framleiðandanum „Enercon“ mun starfsfólk Landsvirkjunar einnig hafa aðstöðu í húsinu.

Heildarstærð aðalbyggingarinnar er um 414 fermetrar en þar verður m.a. að finna skrifstofurými, fundarherbergi, kaffiaðstöðu og bílskúr. Á lóðinni, sem er um 9 þúsund fermetrar að stærð, verður einnig lágreist 46 fermetra skýli, sem skiptist í 25 fermetra hjólaskýli og 21 fermetra geymslu. Húsið mun verða Svansvottað og verður þar með annað mannvirki Landsvirkjunar sem hlýtur slíka vottun.

„Mér líst mjög vel á þessi áform, það er alltaf jákvætt þegar fyrirtæki eins og Landsvirkjun, sem er í eigu okkar allra, byggir upp starfsemi á landsbyggðinni. Nýja húsið á Hellu styrkir stöðu staðarins sem þjónustu- og atvinnukjarni á Suðurlandi og er skýr vísbending um að fyrirtækið sjái Hellu fyrir sér sem mikilvægan stað til framtíðar.

Sveitarstjórnin hefur að undan- förnu lagt mikla áherslu við stjórnendur fyrirtækisins að byggja upp varanlegar starfsstöðvar í sveitarfélaginu og er þessi framkvæmd að hluta til afrakstur af því samtali. Fyrir sveitarfélagið skiptir þetta miklu máli bæði beint og óbeint. Hér verður til starfsumhverfi fyrir tæknimenntað fólk, umsvif aukast og fjölbreytni í atvinnu og þjónustu verður meiri og trú fólks eykst á frekari uppbyggingu í heimabyggð,“ segir Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangár- þings ytra. 

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...