Einvígi Dags og Helga Fannars.
Einvígi Dags og Helga Fannars.
Mynd / Tómas Tandri
Líf og starf 26. maí 2026

Landsmótið í Ólafsvík

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Landsmótið í skólaskák fór fram í Ólafsvík í ár. Þetta er merkilegt landsmót  fyrir þær sakir, að gamla kjördæma- skipanin var nánast alveg endurvakin, eftir margra ára hlé. Eftirfarandi svæði sendu keppendur til leiks í ár: Reykjavík, Kraginn, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland. Við þessi ánægjulegu tímamót þarf að bretta upp ermar og tryggja það að mótið lendi ekki aftur í þeirri lægð sem það lenti í, um tíma. Enda hefur það sýnt sig að krökkunum þykir þetta eitt skemmtilegasta skákmótið sem þau sækja.

Teflt var á laugardegi og sunnudegi í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Þar er einnig Taflfélag Snæfellsbæjar til húsa. Aðstæður til taflmennsku eru frábærar og á Sigurður Scheving frá Taflfélaginu sérstaklega þakkir skildar fyrir utanumhald. Krakkarnir tefldu í þremur aldursflokkum, 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk og voru tólf í hverjum flokki. Mótið var æsispennandi og þurfti að tefla úrslitakeppni í tveimur flokkum. Örvar Hólm Brynjarsson, Lindaskóla, var hins vegar öruggur sigurvegari í flokki 8.-10. bekkjar. Örvar virðist vera að leggja metnað í skákina um þessar mundir og er í greinilegri framför.

Hins vegar þurfti að tefla einvígi í flokki 1.-4. bekkjar og 5.-7. bekkjar, þar sem tveir keppendur í hvorum flokki komu jafnir í mark. Einvígi Helga Fannars Óðinssonar úr Norðlingaskóla og Dags Sverrissonar úr Vesturbæjarskóla var afar spennandi. Dagur vann það í bráðabanaskák en Helgi stóð sig afar vel, hann er í 2. bekk og á því tvö ár eftir í flokknum. Dagur er í 4. bekk, og komst inn í mótið gegnum boðssæti eftir að þrír forfölluðust, þannig að sigur hans var í gegnum mikla krókaleið, auk þess sem þetta var hans síðasti séns að næla sér í peðsbikarinn fyrir yngsta stig.

Það var djúp undiralda í miðtaflinu í skák Örvars og Guðrúnar. Hvítur stóð betur eftir uppskipti á e3 og annar léttu manna fellur hjá svörtum. Hins vegar hefði 19. … Ha8! 20. Db7 Bc6 21. Dxe7 Bxe3 22. Hxe3 Dxc2 gefið svörtum góð færi.

Einvígi Péturs Úlfars Ernissonar úr Langholtsskóla og Karma Halldórssonar úr Grunnskólanum á Ísafirði endaði með öruggum sigri Karma. Karma vann yngsta flokkinn á Akureyri 2024 og Pétur vann yngsta flokkinn á Ísafirði 2025 þannig að þetta voru tveir ungir menn sem eru vanir að vinna. Nú var það Karma sem fékk miðstigsriddarann, sem fylgt hefur mótinu allt frá upphafi þess árið 1979. Áfram landsmót í skólaskák! 

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

Gauti.pj[hjá]hotmail.com

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.