Jarmað, hneggjað, baulað ...
Mynd / Pixabay
Skoðun 20. nóvember 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Fyrir ári síðan eða svo var hér baulað nokkuð á áherslu ríkisstjórnarinnar á uppbyggingu fleiri gagnavera hérlendis. Þá voru ekki orðin áberandi í öðrum löndum þau andmæli við gagnaverum sem nú eru uppi bæði austan hafs og vestan. Ein skýringin á því að Trump tapaði þingkosningunum er sögð sú að hann vildi gera sem flestum kleift að reisa sem flest gagnaver sem víðast í Bandaríkjunum. Bændum var sérlega illa við þessa hugmynd enda þurfa gagnaver mikið landsvæði, orku og vatn. En einnig kvörtuðu íbúar sem hafa fengið gagnaver í næsta nágrenni við sig undan hávaða og annarri umhverfismengun.

Sömu umræðu má sjá víða í evrópskum fjölmiðlum. Tala má um alþjóðlega uppreisn gegn stjórnlausri uppbyggingu gagnavera vítt og breitt um heiminn. Spurningarnar hrannast upp um þennan iðnað. Í síðasta blaði birtust tvær greinar sem vöktu athygli á þessari alþjóðlegu bylgju andmæla við uppbyggingu gagnavera. Önnur þeirra fjallaði um ástandið í Noregi þar sem til dæmis er verið að byggja risa gagnaver á vegum Google í bænum Skien í Þelamörk. Gagnaverið sker í sundur landbúnaðarsvæði og er svo umfangsmikið að hátt á þriðja hundrað knattspyrnuvalla kæmust fyrir á umráðasvæði þess. Starfseminni fylgja fá störf og hagnaðurinn af henni rennur að mestu leyti til tæknirisans sem stendur að baki henni.

Norðmenn virðast hafa verið of seinir að átta sig og tillaga um tímabundna neyðarstöðvun á uppbyggingu gagnavera í Noregi var felld í Stórþinginu. Andstaðan er þó að aukast þar í landi og allir stjórnmálaflokkar orðnir sammála um að stöðva verði stjórnlausa uppbyggingu gagnavera, enda myndi hún til dæmis soga til sín alla orku sem er í boði, líka þá sem ætti annars að fara í orkuskiptin.

Alls 113 gagnaver eru þegar risin í Noregi, mun fleiri en þarf til þess að tryggja stafrænt sjálfstæði þjóðarinnar. Samt bíða 116 gagnaver eftir því að fá framkvæmdaleyfi þar í landi.

Önnur grein í síðasta Bændablaði sagði frá því að Google hefði hoggið 250.000 tré ólöglega í Muhos í Finnlandi til að byggja gervigreindargagnaver. Fyrr í mánuðinum voru framkvæmdir stöðvaðar við þetta ver og annað í Finnlandi því að umhverfismat lá ekki fyrir. Málið hefur vakið hörð viðbrögð í landinu.

Ekki þarf að leita lengi í erlendum fjölmiðlum til að sjá sambærilegar fréttir af stjórnlausri uppbyggingu gagnavera og sívaxandi andófi gegn því víða um Evrópu. Eitt af því sem vísindamenn velta fyrir sér er það hvort þörfin á þessum risagagnaverum muni ekki fljótlega minnka vegna tækniframfara við geymslu og vinnslu gagna. Áður en við vitum af gæti farið svo að ekki þyrfti að greiða nema 10% af núverandi kostnaði við rekstur gagnavera til þess að fá 80% af getu þeirra, segir í grein á BBC. Tækniþróunin sé svo hröð að ekki sé ólíklegt að risagagnaverin verði óþörf innan fárra ára.

Hér uppi á Íslandi höfum við hins vegar ríkisstjórn og umhverfis- og orkuráðherra á hennar vegum sem telur það meðal sinna helstu stefnumála að flýta fyrir uppbyggingu eins margra gagnavera og hægt er á næstu misserum. Umræðan er samt varla hafin um það hvað þetta þýðir. Hversu mikla orku þarf fyrir þessa starfsemi. Hvaða áhrif það hefur á orkuþörf að öðru leyti, til dæmis orkuskipti. Umhverfisáhrif þessarar starfsemi hefur varla verið rædd heldur. Og ítrekað er gert lítið úr þeirri staðreynd að gagnaver veita fáum atvinnu. Ríkisstjórnin hefur heldur ekki svarað þeirri gagnrýni að hagnaðurinn af rekstri þeirra rennur að mestu leyti til erlendra tæknirisa. Spurningunni um það hversu mörg gagnaver við þurfum yfirleitt að reisa hérlendis til þess að tryggja stafrænt sjálfstæði þjóðarinnar hefur heldur ekki verið svarað. Á áhrif hraðrar tækniþróunar á sviði gagnavinnslu hefur varla verið minnst. Og fæstir velta fyrir sér hvernig gervigreindin sjálf muni þróast.

Það eina sem við vitum er að ríkisstjórnin og orkuráðherra hennar ætlar að sjá heiminum fyrir gagnaverum.

Skylt efni: gagnaver

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...