Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Toyota Yaris Cross er fjórhjóladrifinn tvinnbíll þar sem afturhjólin eru knúin með rafmótor, á meðan framhjólin eru knúin af bensínmótornum. Þetta er bíll með góða aksturseiginleika á fjölbreyttum. Veikasti hlekkurinn er hátt verð í samanburði við betur búna rafmagnsbíla.
Toyota Yaris Cross er fjórhjóladrifinn tvinnbíll þar sem afturhjólin eru knúin með rafmótor, á meðan framhjólin eru knúin af bensínmótornum. Þetta er bíll með góða aksturseiginleika á fjölbreyttum. Veikasti hlekkurinn er hátt verð í samanburði við betur búna rafmagnsbíla.
Mynd / ÁL
Líf og starf 19. september 2023

Jafnvígur í sveit & borg

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Nýr smájepplingur frá Toyota byrjaði að sjást á götunum á síðasta ári. Þetta er merkilega sparneytinn og fjölhæfur bíll með meiri veghæð en gengur og gerist í þessum stærðarflokki.

Yaris Cross býr yfir þeirri sérstöðu að bjóða upp á fjórhjóladrif, sem er ekki sjálfsagt í flokki smájepplinga.

Eins og margir bílar frá Toyota, þá fæst Yaris Cross sem tvinnbíll. Toyota hefur nýtt tvinnkerfið á sniðugan hátt, en afturhjólin eru hvergi tengd við bensínmótorinn, heldur eru þau knúin áfram af rafmagnsmótor. Hægt er að fá Yaris Cross ekki sem tvinnbíl, en þeir bílar eru einungis framhjóladrifnir.

Ef augun eru pírð nógu mikið í rökkri er hægt að ruglast á þessum bíl og nýjasta Toyota Rav4. Yaris Cross samsvarar sér vel og er margfalt fríðari en stóri bróðir hans, Toyota Corolla Cross. Þegar Yaris Cross er lagt við hliðina á tuttugu ára gömlum Toyota Corolla hlaðbak, þá sést að bílarnir eru nánast jafnstórir. Sé lagt við hliðina á venjulegum Yaris af nýjustu gerð, er bersýnilegt að hér er um miklu stærra ökutæki að ræða.

Toyota leggur mikið í hönnun sinna bíla um þessar mundir.

Nóg af hnöppum

Þegar sest er um borð tekur á móti manni fríð innrétting. Hún er nær alfarið svört, en gylltar línur lyfta hlutunum aðeins upp. Bíllinn í þessum prufuakstri er af gerðinni Adventure, sem er ein af best búnu útfærslunum.

Toyota er á margan hátt íhaldssamt fyrirtæki, en það sést í afstöðu þeirra til gamaldags hnappa. Hér er hljóðstyrk, miðstöð og fleiru stjórnað með auðfinnanlegum tökkum, ólíkt því sem er í mörgum nýjum bílum þar sem öllu er stjórnað í gegnum snertiskjá, sem getur verið óþarflega flókið.

Blessunarlega hefur Toyota haldið í hnappana, því sjálfur margmiðlunarskjárinn er með afar gamaldags viðmóti. Hann gerir sitt, en hvað útlitið varðar er varla hægt að sjá mun á þessu margmiðlunarkerfi og því sem var í nýjum bílum fyrir áratug. Kostir þess eru þó að það er fljótvirkt og næmt fyrir snertingu, jafnvel þótt notaðir séu hanskar. Enn fremur er auðvelt að tengja síma með Bluetooth og bakkmyndavélin fer í gang þegar er bakkað. Helst vantaði nálægðarskynjara að framan og aftan til að auðvelda það að leggja í stæði.

Margmiðlunarkerfið er gamaldags en gerir sitt.

Sæti þægileg

Framsætin eru sérlega þægileg með stillanlegum mjóbaksstuðningi. Til að gera hávaxna fullkomlega sátta þyrfti að vera hægt að færa sætin nokkra sentímetra aftar. Stórt glerþak er aukahlutur á þessum bíl og hleypir mikilli birtu inn í farþegarýmið.

Aftursætin eru einungis nógu stór fyrir börn, smávaxna fullorðna eða hávaxin prúðmenni sem barma sér ekki þrátt fyrir þrengslin. Þakið er lágt, en er íhvolft rétt yfir kollinum til að gefa örlítið meira rými. Fótaplássið er jafnframt það lítið að nauðsynlegt er að færa framsætin fram séu fullorðnir aftursætisfarþegar með fætur. Enn fremur er líklegt að erfitt sé að koma stórum barnabílstólum fyrir.

Stærð og form skottsins er vel nothæft. Afturhlerinn er breiður og opnast það hátt að engin hætta er á að reka höfuðið í. Gólfið flúttir við afturhlerann og er smá geymslupláss undir skottgólfinu, þó ekki nógu stórt til að rúma varadekk.

Lítið rými er í aftursætunum.

Notalegur í akstri

Akstursupplifuninni má lýsa sem notalegri. Veg- og vindhljóð er prýðilega einangrað og stýrið er létt. Auðvelt er að kveikja á skynvædda hraðastillinum og akreinavaranum. Þegar kerfið er í gangi sýnir bíllinn mikið umburðalyndi gagnvart því hvernig haldið er í stýrið – ólíkt mörgum bílum – og því er auðvelt að slaka á þegar keyrt er á góðum vegum, eins og Reykjanesbrautinni. Þá sér bíllinn um aksturinn eiginlega alveg sjálfur.

Í þéttbýli er þægilegt að vera með mjúka fjöðrun þegar ekið er yfir hraðahindranir. Stiglaus sjálfskiptingin er jafnframt í essinu sínu þegar stöðugt er verið að stoppa og taka af stað. Ökumaðurinn verður í raun ekki var við hana.

Það sem kemur sérstaklega á óvart með Toyota Yaris Cross er hversu öflugur hann er á malarvegum. Í þessum prufuakstri var farið yfir blautan og holóttan veg með lausri möl og Yaris kvartaði ekki neitt. Þegar ekið var ofan í dýpstu holurnar var glymurinn í farþegarýminu vel dempaður og mjúk fjöðrunin virkaði vel á þvottabrettum. Óverulegur hávaði myndaðist vegna steinkasts á undirvagninn.

Fjórhjóladrifið hjálpaði til við að gera bílinn stöðugri í lausamölinni, þó tekið skuli fram að þetta sé langt því frá eins gott aldrif og í bílum eins og Subaru.

Skottið er rúmgott og flúttir gólfið við hlerann.

Að lokum

Helstu mál í millimetrum – breidd 1.765; lengd, 4.180, hæð 1.595. Hæð undir lægsta punkt er 17 sentímetrar. Ódýrasta útgáfa Yaris Cross er á 5.250.000. Verð Adventure útgáfunnar er frá 7.250.000. Bíllinn í þessum prufuakstri, með nokkrum aukahlutum, var á 7.312.950 krónur. Allt verð með vsk.

Toyota Yaris Cross Adventure er vel útbúinn bíll sem er jafnvígur í borg og sveit. Þó þetta sé frábært ökutæki, er líklegt að Yaris Cross eigi erfitt með að keppa við fjöldann allan af góðum rafmagnsbílum sem eru nálægt þessum í verði. Þar má helst nefna fjórhjóladrifinn Tesla Model 3, sem er merkilegt nokk á nánast sama prís og bíllinn í þessum prufuakstri.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.