Hér má sjá nokkur þeirra verka sem finnast á sýningunni.
Hér má sjá nokkur þeirra verka sem finnast á sýningunni.
Mynd / Axel Darri Þórhallsson
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unnið ötullega að því að viða að sér list bæði alþýðumanna sem menntaðra listamanna.

Telur grunnsafneignin um 30.000 listaverk, auk þess sem þar eru sérstakar safndeildir með fjölda verka. Til að mynda má nefna Kiko Korriro-stofuna, en þar eru varðveitt 120.000 verk og teikningar eftir Þórð Guðmund Valdimarsson (1922-2002), en listamannsnafn hans var Kiko Korriro. Þvílíkasafnið er önnur stofa eða safndeild, tileinkuð Bjarna Hjaltested Þórarinssyni (1947–2025) myndlistarmanni og sjónháttafræðingi, sem byggði verk sín á vísindalegu kerfi sem opnar ýmsar leiðir til skilnings. Svona má lengi telja enda aragrúi til sem gleður augað á Safnasafninu.

Hugrekki persónulegrar tjáningar er ein sýninganna sem prýðir safnið. Hún beinir athygli að fólki sem tjáir sig á persónulegan hátt með áherslu á það sem gerir það sérstakt, en hátt á annan tug listamanna eiga þar verk.

Í gegnum aldirnar hefur skrautþörf mannsins átt ríkan þátt í sögunni, ein algildasta birtingarmynd mannlegrar hegðunar sem sendir mikilvæg skilaboð um tilveru hvers og eins. Oft stöðu, sköpunargáfu eða sjálfsmynd heilt yfir. Skraut hefur einnig áhrif á okkur sjálf, en ekki einungis á þá sem á horfa. Samkvæmt sálfræðinni helst hegðunarmynstur einnig í hendur við skreytiþörf, og leyfir viðkomandi að „máta“ ákveðinn persónuleika, ef svo má segja. Sjónrænt getur skraut virkað sem fyrstu kynni án orða. Jafnvel bara hár, skartgripir og fatnaður segja sögu um gildi okkar, tilvist og persónuleika.

Skreytiþörf má hiklaust telja til myndtjáningar þar sem hvernig útkoman kemur öðrum fyrir sjónir hefur tilfinningalegt gildi fyrir viðkomandi. Í Safnasafninu er sýningin Hugrekki persónulegrar tjáningar heldur en ekki upplifun fyrir augað – og skynfærin að öllu leyti. Safnasafnið segir svo frá: „Á einni af 14 sýningum Safnasafnsins í sumar, sem heitir Hugrekki persónulegrar tjáningar, er athyglinni beint að fólki sem fer sínu fram og puntar sig á persónulegan máta án þess að skeyta um álit annarra. Í safninu hafa verið gerðar margvíslegar greiningar á klæðaburði og skreyti, til dæmis meðal frumbyggja til aðgreiningar á ættkvíslum sem lifa í návígi fyrirskipaðrar táknmerkingar og afmyndana á efri hluta líkamans sem hámarkast í andliti.

Listamenn nota slík tjáningarform ef þau ríma við hugmynd sem þarf að sviðsetja eða útfæra í rétt efni. Það sem skilur á milli eru einfaldar útfærslur og tjáningarleiðir þeirra og sjálfsprottin tjáning hinna sem minna mega sín eða eru kannski þvingaðir til að fara aðrar leiðir í lífinu en þeir vildu. Ljósmynd af skipulögðum gjörningi listamanns er heimild en ljósmynd af einstaklingi sem skreytir sig er lýsing á lífsstíl og hefur tilfinningalegt gildi fyrir sjálfsmynd viðkomandi og hvernig hann kemur öðrum fyrir sjónir.“

Sýningin hefur vakið fólk til umhugsunar um gildi slíkra athafna, til dæmis að hengja sig ekki aftan í erlendar stefnur eða taka þátt í atferli sem misbýður heilbrigðri skynsemi, heldur móta sinn eiginn stíl.

Einnig vilja forsvarsmenn safnsins koma því að, að ef lesendur kannast við fólk sem hefur stigið spor í þessa átt væri gott að frétta af því, öll umfjöllun safnsins er í anda jákvæðra viðhorfa og persónuverndarlaga. Sýningin er byggð á langvinnri rannsókn, styrkt af myndlistarsjóði og safnasjóði.

Heilmargar aðrar áhugaverðar sýningar eru á safninu síðan í sumar, sem standa fram til 4. október nú í næsta mánuði, samkvæmt upplýsingum frá vefsíðu þeirra.

Safnasafnið er staðsett við þjóðveginn ofan við Svalbarðseyri, það er opið frá daglega kl. 10-17, allt til 4. október og má hafa samband í síma 461-4066 eða á netfangið safngeymsla[hjá]simnet.is  

Skylt efni: Safnasafnið

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Horfinn er séra Oddur
6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Píla pína
6. október 2026

Píla pína

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Margrét Þóra
7. október 2026

Margrét Þóra