Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 10 ára.
Álmennt eru þjóðvegir ekki hannaðir nema fyrir bílaumferð og þegar reiðhjól bætast við getur verið þröngt fyrir alla.
Álmennt eru þjóðvegir ekki hannaðir nema fyrir bílaumferð og þegar reiðhjól bætast við getur verið þröngt fyrir alla.
Á faglegum nótum 19. ágúst 2015

Hjálmurinn verður að passa og má ekki vera gamall

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Með aukinni umferð reið­hjóla hefur reiðhjólaslysum á lands­vísu fjölgað. Flestir sem hjóla sér til heilsubótar og ánægju nota ör­ygg­is­hjálm. Reiðhjólahjálma skal endurnýja á fimm ára fresti
Ástæða þess að endurnýja skal reiðhjólahjálminn reglulega er að með tímanum harðnar efnið í þeim og þornar. Gamlir hjálmar geta því verið brothættir og gefið falska öryggiskennd. Hjálmurinn verður einnig að passa vel á höfuð þess sem hann notar. 
 
Flestar konur eiga til dæmis að nota hjálma sem merktir eru S sem táknar small. Stærð S í sentímetrum frá enni, fyrir ofan eyru, og aftur á hnakka er 55 til 56. Hjálmar merktir M sem er medium eru aftur á móti 57 til 58 sentímetrar að stærð sem er algeng stærð fyrir meðalkarlmann. 
 
Hjálmar eiga að sitja þétt á höfð­inu og sé höfuðið hrist á hjálmurinn að fylgja hreyfingum þess en ekki dingla laus því þá er hann of stór. Þessa mælingu má nota fyrir allar gerðir hjálma hvort sem það eru reið-, vélsleða-, fjórhjóla- eða mótor­hjólahjálmar.
 
Slysum fjölgar samfara auknum hjólreiðum
 
Varla hefur farið framhjá neinum að vinsældir reiðhjóla, reiðhjólafélaga og reiðhjólakeppna eru miklar. Varla líður sú helgi að ekki sé ein­hvers staðar verið að keppa á reið­hjólum á vegum úti. Miðað við hversu veg­ir eru þröngir er með ólíkindum hversu fá slys eru á reiðhjólafólki og árekstrar bíla fátíðir sem rekja má til reiðhjólaumferðar á vegum. 
 
Þegar ég var að alast upp var mér ráðlagt að hjóla á móti umferð í vegkantinum. Í dag er fátítt að mað­ur rekist á reiðhjólafólk á öfugum vegar­helmingi, þó gerist það. Í sum­ar mætti ég fjölskyldu norður á Ströndum sem kom hjólandi á móti mér í vegkantinum. Fyrir mína parta fannst mér þetta betra, allavega þarna á malarveginum sem ég var á. 
 
Algengt er að sjá hjólafélaga hjóla hlið við hlið og þegar þeir heyra í bíl er farið í einfalda röð. Hins vegar brá þeim reiðhjólamönnunum sem ég kom aftan að í fyrrasumar þegar ég var að prófa rafmagnsbíl og kom hljóðlaust aftan að þeim. 
 
Með auknum fjölda hljóðlausra rafmagnsbíla ættu menn að huga að því hvort ekki væri öruggara að hjóla á öfugum vegarhelmingi á fáförnum vegum.
 
Hjólahópar vina oft hættulegastir
 
Fyrir skemmstu fylgdist ég með hundrað kílómetra alþjóðlegum hjóla­túr kvenna sem kona mín tók þátt í. Það var að sjá og heyra að konurnar sem tóku þátt skemmtu sér vel. Því miður gáðu þær þó ekki alltaf að sér og voru of margar hlið við hlið á þjóðveginum. Nokkrum sinnum mynduðust hættulegar aðstæður þar sem illa hefði getað farið. Konur fá þrátt fyrir það plús hjá mér fyrir litríkan klæðnað þannig að þær sáust vel og það hægði tíman­lega á umferðinni. Það er nefnilega marg­sannað að áberandi klæðnaður reiðhjólafólks hægir á umferðinni og gefur öðrum meira svigrúm til að bregðast við í tíma. 
Höldum endilega áfram að hjóla; hreyfingin er holl og góð.
Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.