Almennt hefur umræða um fóðurþarfir hesta verið minni en hjá öðrum búfjártegundum.
Almennt hefur umræða um fóðurþarfir hesta verið minni en hjá öðrum búfjártegundum.
Mynd / Claire Nolan
Á faglegum nótum 5. október 2026

Heygæðin og hesturinn

Höfundur: Hafrún Huld Hlynadóttir
Hafrún Huld Hlynadóttir.

Það er farið að styttast í veturinn og að hestar verði teknir inn úr sumarhólfum þar sem þeim hefur verið beitt á graslandi. Hvort sem þeir eru að fara á innanhússgjöf eða útigang, er mikilvægt að hafa í huga að passa upp á að fóðurbreytingarnar verði ekki of miklar og skarpar. Því skiptir miklu máli að vita hvers konar fóður menn hafa í höndunum fyrir veturinn.

Í BS-ritgerðinni Fóðrun hesta á húsi yfir vetrartímann árið 2015 voru hestamenn spurðir út í fóðrun hestanna. Þar sást að ákvarðanir um fóðrun þeirra eru að mestu byggðar á holdafari hestsins og magni heysins, en minna var horft til efnainnihalds þess. Lítið er um að hestamenn láti efnagreina heyin sem þeir eru með, þrátt fyrir að áhugi sé til staðar hjá mörgum. Heysýnatakan hefur hins vegar ekki náð vinsældum í hestamennskunni og er þá frekast nýtt þegar menn eru að eiga við hesta með fóðurtengd vandamál. Almennt hefur umræða um fóðurþarfir hesta verið minni en hjá öðrum búfjártegundum. Hluti af ástæðunni fyrir þessu er líklega sá að hesturinn er ekki ræktaður með tilliti til framleiðslu og því hafa rannsóknir á næringarþörfum hans oft fengið minni athygli en rannsóknir hjá öðrum búfjártegundum. Í nautgripaog sauðfjárrækt er fóðrunin mikilvægur þáttur í að hámarka afurðir gripanna. Hjá hestum hefur aðalfókusinn í fóðrun hins vegar beinst að því að passa upp á holdafar þeirra og þá sérstaklega að passa upp á að fóðrið sé ekki of orkuríkt til að minnka líkurnar á að hestarnir verði of feitir eða fái hrossasótt.

Þótt mikilvægt sé að forðast of orkuríkt fóður má ekki gleyma því að fóðrið má heldur ekki vera of orkusnautt. Hestar þurfa prótein, steinefni, vítamín og vatn til að viðhalda eðlilegri líkamsstarfsemi. Stór hluti þessara efna kemur úr fóðrinu sem þeir éta en hluti kemur annars staðar frá. Samsetning þessara efna er ólík eftir fóðrinu. Sum efnin þarf að sækja í bætiefni og kjarnfóður en stærsti hluti þeirra kemur úr gróffóðrinu og því er mikilvægt að efnasamsetning þess passi hestunum. Þarfir hrossanna eru breytileg eftir aldri og notkun. Fylfullar merar, folöld og trippi eru með hærri orkuþarfir og þurfa meira prótein en aðrir hópar. Keppnishestar eða reiðhestar í mikilli notkun þurfa einnig næringarríkara fóður en hestar á úthaga til að vinna upp á móti orkunni sem þeir eyða. Hestar á útigangi geta aftur á móti nýtt orkuminna fóður til að mæta helstu orkuþörfum sínum, en engu að síður þarf að fylgjast með að næringarþörfum þeirra sé fullnægt.

Of orkumikið fóður í miklu magni getur fljótt leitt til ofþyngdar sem veldur auknu álagi á fætur og bein hestanna og getur dregið úr endingu þeirra. Of mikið af auðmeltanlegum næringarefnum (sterkju, sykurs og próteins) getur valdið truflunum í meltingarvegi og valdið þannig vindkveisu, hrossasótt eða hófkreppu. Langvarandi fóðrun með of tormeltu og efnasnauðu fóðri getur hins vegar dregið úr örverustarfsemi í víðgirninu og þar með dregið úr fóðurnýtingu hrossanna.

Eins og áður var nefnt eru ákvarðanir um fóðurmagn hesta að mestu leyti byggðar á holdafari þeirra. Hins vegar er ekki hægt að treysta aðeins á holdafarið til að segja til um gæði fóðursins, skortur á stökum efnum í fóðrinu getur haft skaðleg áhrif á heilsu hestanna án þess að það sjáist á holdafari þeirra. Kenningar eru um að kalsíum og fosfórskortur auki líkurnar á að hestur fái múkk þótt það sé ekki staðfest með rannsóknum. Einnig sækja vöðvar hestanna kalsíum og fosfór í forða beinanna, þegar það er skortur á þeim efnum í fóðrinu og skila því aftur ef það er ofgnótt. Viðvarandi skortur getur því valdið því að vöðvarnir fari að ganga á forða beinanna og veikja þau. Þetta eykur áhættu á að beinin skekkist eða brákist. Ofgnótt af kalsíum og fosfór í fóðrinu dregur hins vegar úr upptöku magnesíums sem er mikilvægt til myndunar beina og tanna. Samræmi þessara efna er því mikilvægt þar sem þau spila saman. Lengi mætti upp telja áhrif einstakra steinefna og vítamína á líkamlega og andlega heilsu hestanna.

En greinilegt er að til þess að hámarka gæði fóðrunar er mikilvægt að búa yfir góðum upplýsingum um næringuna sem hestarnir eru að fá. Það getur verið talsvert flókið að vera með nákvæmar upplýsingar um efnainnihald sumarbeitarinnar en er auðveldara að nálgast þær upplýsingar um vetrarfóðrið með heyefnagreiningum. Með því að byggja fóðrun á mælingum fremur en ágiskunum er auðveldara að tryggja að hestarnir fái rétt magn orku, próteina og steinefna yfir vetrarmánuðina. Það stuðlar að betri heilsu, aukinni velferð og markvissari fóðrun hrossa. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og panta heyefnagreiningu á heimasíðu RML.

Höfundur er ráðunautur á rekstrar- og umhverfissviði RML.

Skylt efni: Hestar | heygæði

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Horfinn er séra Oddur
6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Píla pína
6. október 2026

Píla pína

Vönduð óþekkt
6. október 2026

Vönduð óþekkt

Hugrekki persónulegrar tjáningar
6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar