Gripagreiðslur til fjölgunar geita
Mynd / Úr safni
Fréttir 9. apríl 2026

Gripagreiðslur til fjölgunar geita

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Nýtt skýrsluhaldskerfi kemst brátt í gagnið og er mikilvægt til utanumhalds á stofni í útrýmingarhættu.

Kjarngóður fundur fór fram í deild geitfjárbænda. Tvær tillögur um innmat og áhersluatriði í búvörusamningagerð voru samþykktar og mun stjórn deildarinnar fylgja þeim eftir.

Ný stjórn geitfjárræktenda

Hákon Bjarki Harðarson situr áfram sem formaður. Anna María Flygenring gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en Kristín Halla Bergsdóttir var kjörin í hennar stað. Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir situr áfram í stjórn og varastjórn skipa Halla Sigríður Hrefnu Steinólfsdóttir og Susanne Lintermann og taka við af Guttormi Hrafni Stefánssyni og Huldu Brynjólfsdóttur.

„Það sem er helst á dagskrá framundan er að koma nýja skýrsluhaldskerfinu í gagnið fyrir vorið og í framhaldinu af því förum við í vinnu við að koma öllum geitum á Íslandi inn í kerfið“, sagði Hákon Bjarki formaður stjórnar að fundi loknum, en fram kom í tillögum sem samþykktar voru á fundinum að lykilatriði sé að hafa gott utanumhald um alla gripi þegar stækkun stofns í útrýmingarhættu er í brennidepli.

Hákon bætir við að „með haustinu förum við í arfgerðargreiningu á geitastofninum vegna riðu og munum taka sýni úr um 1500 gripum“. Það verði gert til að skoða hvort verndandi gen gegn riðu sé í íslenskum geitum, en aldrei hefur greinst riða í geit á Íslandi. „Svo verða það búvörusamningarnir þegar þeir komast á dagskrá“, bætti hann við, en síðari tillaga fundarins laut að áherslum geitfjárræktenda í komandi búvörusamningagerð.

Tillögur um innmat og búvörusamningagerð

Stemningin á fundinum var góð og létt yfir fundarmönnum sem horfðu yfir flugbrautina af fundarstað. Fyrir fundinum lágu tvær tillögur sem báðar voru einróma samþykktar. Sú fyrri að stjórn deildarinnar er falið að ræða við sláturleyfishafa um áform um að hætta að afhenda bændum innmat úr geitum í næstu sláturtíð. Nýting innmatar er geitabændum mikilvæg til að skjóta styrkari stoðum undir tekjuöflun í sínum búrekstri.

Seinni tillagan lýtur að komandi búvörusamningagerð þar sem áhersla er lögð á að fá aukið fjármagn til geitfjárræktar, stofninn sé enn í útrýmingarhættu og sökum smæðar þurfi bændur sjálfir að vinna og selja sínar afurðir ólíkt öðrum búgreinum. Fjölga þurfi geitum í landinu og hvetja til þess með gripagreiðslum og eins að fjárfestingarstuðningur nái til allra búgreina innan Bændasamtakanna auk þess sem stuðningur verði greiddur til tækjakaupa. Í tillögunni er einnig kveðið á um nauðsyn fjármagns til áframhaldandi reksturs hafrastöðvarinnar sem og frír aðgangur að skýrsluhaldskerfinu Heiðrúnu.

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...