Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Loftmynd af sundlaugarsvæðinu og íþróttamannvirkjum í Borgarnesi. Nýtt fjölnota íþróttahús er í byggingu á grasvallarsvæðinu og verður það tekið í notkun í sumarlok.
Loftmynd af sundlaugarsvæðinu og íþróttamannvirkjum í Borgarnesi. Nýtt fjölnota íþróttahús er í byggingu á grasvallarsvæðinu og verður það tekið í notkun í sumarlok.
Mynd / Aðsend
Fréttir 9. apríl 2026

Endurbótum á íþróttamiðstöðinni lokið

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

- Risa vatnsrennibraut opnuð í sumar

Framkvæmdum við íþróttamannvirki í Borgarnesi er lokið en í sumar verður risavatnsrennibraut tekin í notkun.

„Við vorum að endurbæta kvennaklefann og karlaklefann og kvennaklefinn var stækkaður fyrir tveimur árum síðan en ekki klárað að lafæra gamla hlutann af honum. Það voru líka settar upp nýjar sturtustýringar, flísar á veggi, skipt út niðurföllum og „epoxy“ sett á gólf, ásamt nýjum salernum og handlaugum og þvottastöð í hvorn klefann, sem auðvelda öll þrif. Í karlaklefanum var það sama uppi á teningnum nema breytingin er sú að við bættum við hann nýrri sturtuaðstöðu. Gömlu aðstöðunni var breytt í þurrksvæði og bætt við skápum. Einnig voru settar sundfatavindur í klefann, sem mælist vel fyrir“, segir Kristinn Óskar Sigmundsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í Borgarnesi aðspurður um framkvæmdir, sem var að ljúka við íþróttamiðstöðina í Borgarnesi.

50 milljón króna verkefni

Kristinn segir að fastagestir séu mjög ánægðir með útkomuna og ekki síður starfsfólk íþróttamannvirkjanna. Það voru PJ byggingar, sem var aðalverktaki að verkinu, ásamt verktökum úr heimabyggð. Kostnaður er um 50 milljónir króna.

Risarennibraut með ljósaupplifun

Framkvæmdum við sundlaugina er ekki lokið því þar verður sett upp risarennibraut með alls konar ljósaupplifun, sem verður opnuð í sumar. „Já, það er gaman að segja frá því. Við erum með þrjár brautir í dag, engar risabrautir en enga að síður mjög flottar brautir. Þær voru byggðar árið 1997 og eru því komnar vel til ára sinna. Við þurftum að taka eina brautina úr umferð í fyrra þar sem brautin var orðin mjög illa farin, startpallurinn brotinn og vatn farið að leka undan honum. Við fórum því í það að láta taka þær út til að meta ástandið á þeim og var það ekki talið vænlegt að laga þær. Við fórum því af stað með útboð á nýjum brautum. Það var fyrirtækið Á Óskarsson, sem var lægst bjóðandi í verkið. Brautirnar verða að mestu leyti með sama sniði og gömlu. Við munum þó breyta litasamsetningunni, nú verður ekki græna bláa og gula, heldur appelsínugula, græna og gula. Einnig verður ljósaupplifun og eitthvað skemmtilegt í lokuðu brautinni. Framkvæmdir munu hefjast um miðjan maí og stefnum við á opnun í lok júní“, segir Kristinn Óskar.

200 þúsund gestir

Á hverju ári koma um 200 þúsund gestir í íþróttamannvirkin í Borgarnesi. „Já, þetta er stór hópur en við erum með líkamsræktarstöð og spinningsal, íþróttasal þar, sem stundaðar eru skólaíþróttir, körfubolta, fótbolta og frjálsíþróttaæfingar, Boccia, íþróttaskóli og ungbarnasund fyrir yngstu kynslóðina ásamt ýmsu öðru þannig að umferðin er mikil í gegnum húsið. Það má segja að þetta sé eins og umferðarmiðstöð eða ein stór félagsmiðstöð. Ég segi oft að þetta sé stærsta félagsmiðstöðin í Borgarbyggð. Svo yfir sumartímann er gríðarlegur fjöldi ferðamanna sem sækir sundlaugina,“ segir Kristinn Óskar að lokum.

Skylt efni: Borgarnes

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...