Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli
Mynd / smh
Fréttir 12. febrúar 2026

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Samkvæmt nýjustu tölum Umhverfis- og orkustofnunar fóru á árinu 2024 um 84% dýrahræja ólöglega til urðunar, en um 16% fóru lögformlega leið til brennslu.

Matvælastofnun (MAST) ber ábyrgð á að rétt sé staðið að meðferð dýraleifa og dýrahræja. Dýrahræ flokkast sem „aukaafurð dýra“ í regluverki úrgangsmála. Það er þó á ábyrgð bænda sjálfra og annarra eigenda aukaafurðanna að koma þeim til viðeigandi förgunar.

Hjá MAST fengust þær upplýsingar að í lögunum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, sem starfað væri eftir, væru þvingunarúrræði og viðlagaákvæði vegna frávika og brota á ákvæðum laganna. Stjórnvöld hafi nú gert ráð fyrir tímabundnu fjárframlagi fyrir árin 2026– 2028 til að bjóða út og fjármagna rekstrarkostnað á samræmdu söfnunarkerfi fyrir dýraleifar. Eftir að heildstætt söfnunarkerfi hefur verið tekið í gagnið muni stofnunin beita sér í þeim tilvikum þar sem ekki er farið eftir ákvæðum laganna um meðhöndlun, vinnslu og eyðingu aukaafurða dýra.

Segir i svari MAST að þrátt fyrir að ýmis sveitarfélög hafi á undanförnum árum sett upp vísi að söfnunarkerfi fyrir dýrahræ sé enn ekki til heildstætt söfnunarkerfi í landinu sem sér um að taka við dýrahræjum og koma þeim í viðeigandi meðhöndlun. Ómögulegt sé því fyrir stóran hluta bænda að uppfylla kröfur regluverksins.

Atvinnuvegaráðuneytið segir um fyrirhugað söfnunarkerfi að ráðuneytið og Matvælastofnun hafi unnið að mótun fyrirkomulags á landsvísu fyrir slíkt kerfi. Markmið verkefnisins sé að skilgreina útfærslu þjónustunnar þannig að hún henti öllum aðilum í keðjunni, bændum, flutningsaðilum, móttöku og brennslustöðvum. Fyrirhugað er að bjóða verkefnið út á næstu vikum og er sem stendur unnið að frágangi útboðsgagna vegna málsins. Ekki liggi fyrir dagsetning á því hvenær hægt verður að taka kerfið í notkun.

Í byrjun síðasta árs var fjallað um stöðu þessara mála í Bændablaðinu og sagði Halla Margrét Viðarsdóttir, sérfræðingur á sviði umhverfisgæða Umhverfis- og orkustofnunar, að samráðsettvang vantaði fyrir alla þá aðila stjórnsýslunnar sem koma að málum.

Sumarið 2022 féll dómur EFTA-dómstólsins þar sem fram kemur að fyrirkomulag á söfnun, flutningi og förgun á þessum aukaafurðum dýra á Íslandi sé ekki í samræmi við ákvæði EES-löggjafar. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, áminnti svo stjórnvöld í júní 2024 fyrir að hafa ekki aðhafst í málinu frá því að dómurinn féll.

Aðeins brennslustöðin Kalka í Helguvík á Reykjanesi getur tekið við áhættuúrgangi í flokki 1, hræjum af jórturdýrum. Urðun á viðurkenndum urðunarstöðum er aðeins leyfð fyrir aukaafurðir dýra í áhættuflokki 2, eftir viðeigandi sótthreinsun. Engin slík sótthreinsistöð er hins vegar til staðar í landinu. Í umfjöllun Bændablaðsins um Kölku í byrjun síðasta árs var haft eftir Ingþóri Karlssyni, rekstrarstjóra brennslu hjá stöðinni, að stöðin geti tekið við um 90 prósentum af heildarmagni þeirra dýrahræja sem féllu til í landinu.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...