Blesgæsir í vanda
Skoðun 24. ágúst 2026

Blesgæsir í vanda

Höfundur: Bjarni Jónasson

Blesgæs er reglulegur viðkomufugl á Íslandi að vori og hausti. Hún hefur hér viðkomu á leið sinni milli varpstöðva á Grænlandi og vetrarstöðva í Bretlandi og á Írlandi. Hér sést hún helst á Suður- og Vesturlandi, þar sem hún safnar orku og hvílist áður en hún heldur ferð sinni áfram. Tegundin á einnig mikilvægt athvarf á friðlýstu búsvæði og Ramsarsvæði við Andakíl, þar sem hún safnast saman á túnum og votlendi við Hvanneyri.

Á síðustu árum hefur stofninn dregist verulega saman. Samkvæmt nýjustu alþjóðlegu talningum vorið 2025 telur stofninn nú aðeins um 13.300 fugla sem er lægsta talning frá því að þær hófust skipulega 1983. Stofninn hefur þar með minnkað um rúm 60% frá hámarki í lok síðustu aldar. Ein helsta ástæðan er afar lélegur varpárangur á Grænlandi, meðal annars vegna erfiðra veðurskilyrða að vori og snemma sumars. Afleiðingin er sú að of fáir ungar komast á legg til að viðhalda stofninum.

Þegar blesgæsir staldra við hér á landi eru þær oft þreyttar eftir langt flug og þurfa frið til að nærast og byggja upp orkuforða fyrir áframhaldandi far. Truflun getur haft meiri áhrif en margir gera sér grein fyrir, sérstaklega ef fuglarnir eru reknir ítrekað upp og tapa þannig tíma og orku sem annars færi í fæðuöflun. Við viljum því koma á framfæri vinsamlegri ábendingu til bænda og landeigenda á blesgæsasvæðum:

Þegar blesgæsir sjást á túnum eða votlendi er mikilvægt að gefa þeim svigrúm ef kostur er, sérstaklega að forðast að reka þær upp að óþörfu. Friður á þessum tíma getur skipt sköpum fyrir lífslíkur fuglanna fyrir áframhaldandi far milli vetrar- og varpstöðva.

Á komandi haustmánuðum munu Náttúrufræðistofnun og Náttúruverndarstofnun, ásamt Skotvís og Fuglavernd, standa fyrir átaksverkefni til að vekja athygli á stöðu tegundarinnar. Reynt verður að fylgjast með komu fugla og miðlað upplýsingum um hvenær og hvar þeir eru á ferðinni. Jafnframt verður biðlað til veiðimanna að sýna sérstaka varúð og fræðsluefni dreift um hvernig megi greina blesgæs frá öðrum gæsum, bæði í útliti og hljóði.

Markmiðið er ekki að banna eða setja kvaðir, heldur að vinna saman að því að tryggja að þessi sérstaki farfugl haldi áfram að heimsækja Ísland.

Höfundur, Bjarni Jónasson, er teymisstjóri hjá Náttúruverndarstofnun.

Skylt efni: Fuglar

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...