Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Hlýnandi loftslag er talið geta bætt ræktunarskilyrði og leitt til aukinnar framleiðni í landbúnaði og skógrækt. Breytt veðurfar getur einnig falið í sér áskoranir með útbreiðslu sjúkdóma og óværu.
Hlýnandi loftslag er talið geta bætt ræktunarskilyrði og leitt til aukinnar framleiðni í landbúnaði og skógrækt. Breytt veðurfar getur einnig falið í sér áskoranir með útbreiðslu sjúkdóma og óværu.
Mynd / smh
Fréttir 5. febrúar 2026

Áhrifa af loftslagsbreytingum gætir nú þegar

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Fyrsta aðlögunaráætlunin vegna áhrifa loftslagsbreytinga hefur verið gefin út fyrir Ísland.

Í umfjöllun um hana á vef umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins segir að loftslagsbreytingar séu þegar farnar að hafa áhrif á íslenskt samfélag og lífríki með beinum og óbeinum hætti, meðal annars vegna hlýnandi loftslags, breytinga á úrkomumynstri og aukinna veðuröfga.

Aukin seigla samfélaga og vistkerfa

Markmið hennar er að draga úr loftslagstengdri áhættu til lengri og skemmri tíma, með því að auka seiglu samfélags og vistkerfa. Lögð er áhersla á vöktun, viðbrögð og mat á áhrifum loftslagsbreytinga á íslenska náttúru, samfélag og innviði til að ná utan um afleiðingar loftslagsbreytinga.

Sex verkefni eru sett í forgang í áætluninni, þar á meðal gerð viðkvæmni- og áhættumats fyrir íslenskt samfélag og þar er landbúnaðurinn settur undir svið velsældar. Um hann segir í samantekt um matið að ræktun á landi hafi orðið fyrir áhrifum loftslagsbreytinga á ákveðnum svæðum. Sums staðar hafi þurrkar dregið úr uppskeru, annars staðar hafa aftakaúrkoma og flóð leitt til uppskerubrests, auk þess sem frost- og þíðukaflar hafa haft neikvæð áhrif á stöku stað.

„Loftslagsbreytingar munu áfram hafa áhrif á ræktun nytjaplantna á Íslandi. Hlýnandi loftslag getur bætt ræktunarskilyrði og leitt til aukinnar framleiðni í landbúnaði og skógrækt. Aftur á móti getur breytt veðurfar og frekari útbreiðsla sjúkdóma og óværu falið í sér áskoranir. Loftslagstengdir atburðir annars staðar í heiminum geta haft veruleg áhrif á íslenskan landbúnað hafi þeir í för með sér röskun á innflutningi kjarnafóðurs. Þetta á m.a. við um nautgripa-, svína- og kjúklingarækt. Loftslagsbreytingar munu aftur á móti hafa lítil bein áhrif á hefðbundið dýrahald,“ segir um matið.

Áhrif á aðfangakeðjur

Á vef ráðuneytisins segir einnig að í aðlögunaráætluninni sé bent á mikilvægi þess að hafa í huga kerfislæga, alþjóðlega og óbeina áhættu vegna loftslagsbreytinga, svo sem hvað varðar áhrif á aðfangakeðjur til landsins. Auk þess sem gera þurfi ráð fyrir óþekktum afgerandi breytingum sem Ísland gæti staðið frammi fyrir, til að mynda hvað varðar breytingu hafstrauma.

Aðlögunaráætlunin samanstendur af 60 aðgerðum. Af þeim eru 23 þegar komnar í framkvæmd, 19 eru í útfærslu hjá ráðuneytum og stofnunum og fyrirhugaðar eru 18 aðgerðir til viðbótar sem verkefnisstjórn loftslagsaðgerða mun greina og kostnaðarmeta.

Þær eru flokkaðar eftir málefnasviðum hennar, þeim sem talið er að verði fyrir áhrifum loftslagsbreytinga og þeim stjórnsýsluþáttum sem tryggja samhæfingu og árangur í aðlögunarstarfinu.

Gert er ráð fyrir reglubundnu mati á árangri aðlögunaraðgerða og verður það fyrst dregið fram í skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða árið 2026.

Áætlunin er aðgengileg á vefnum CO2.is. Kynning umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á áætluninni fór fram á málþingi sem haldið var 13. janúar og er upptaka af því aðgengileg í gegnum vef ráðuneytisins.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.