Trausti Hjálmarsson sagði nauðsynlegt að stjórnvöld ynnu náið með bændum og öðrum hagaðilum ef til aðildarviðræðna kæmi.
Trausti Hjálmarsson sagði nauðsynlegt að stjórnvöld ynnu náið með bændum og öðrum hagaðilum ef til aðildarviðræðna kæmi.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttir 8. apríl 2026

Aðildarviðræður uppspretta óvissu

Höfundur: Þröstur Helgason

Óvissa um ESB, endurskoðun búvörusamninga og vernd heimila bænda eru meðal þeirra mála sem Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, talaði um í setningarræðu Búnaðarþings.

Trausti Hjálmarsson setti Búnaðarþing á mánudag og sagði helstu áskoranir íslensks landbúnaðar nú snúast um óvissu vegna mögulegra ESB‑viðræðna, yfirvofandi endurskoðun búvörusamninga og nauðsyn þess að vernda heimili bænda betur. Hann ítrekaði að samstaða bænda og náið samráð við stjórnvöld yrði lykill að því að styrkja starfsskilyrði greinarinnar á komandi árum.

Viðburðaríkt ár og árangursríkt samstarf við nýja ríkisstjórn

Trausti lýsti síðasta ári sem mjög viðburðaríku. Ný ríkisstjórn hafi tekið við og samstarfið verið gott, „ekki hnökralaust, en árangursríkt“. Hann lagði áherslu á að yfirvegun og sanngirni hefðu skilað því að mörg mál hefðu tekið breytingum í meðförum Alþingis. „Bændasamtökin hafa tekið það alvarlega að gæta hagsmuna bænda,“ sagði hann og bætti við að á samtökin væri hlustað.

Velvilji almennings

Formaðurinn minnti á sterkan stuðning þjóðarinnar við bændur og sagði könnun eftir könnun sýna yfirgnæfandi velvild. Auglýsingaherferðin „Við erum öll úr sömu sveit“ hefði verið áminning um sameiginlega hagsmuni.

Hann sagði þó að dæmi sýndu að almenningur ætti enn erfitt með að skilja eðli búskapar. Starfsstöð bónda væri jafnframt heimili hans og fjölskyldu og ætti að njóta ríkari verndar en fyrirtæki almennt: „Við höfum séð að ekki er skilningur á því að starfsstöð bóndans er líka heimili hans, og heimili fjölskyldunnar. Sem slík hlýtur hún að njóta ríkari verndar og virðingar – hvað varðar persónuvernd og friðhelgi einkalífs – en almennt gerist um atvinnurekstur. Öll okkar starfsemi lýtur opinberu eftirliti og í sumum tilfellum öðru eftirliti líka. Það þarf engin önnur starfstétt að þola það að brotist sé inn til þeirra án nokkurra eftirkasta fyrir brotamennina. Við eigum ekki að þurfa það heldur.“

Óvissa á alþjóðavettvangi

Í ræðu sinni lýsti Trausti dökkri mynd í alþjóðamálum: stórstyrjaldir, belgingur stórveldaleiðtoga og brotalamir í alþjóðakerfinu. Slík óvissa væri hættuleg litlu eylandi. Hærra olíuverð og ótrygg aðkoma að áburði væru raunveruleg áhyggjuefni. Hann sagði eðlilegt að ríki leituðu leiða til að tryggja eigið öryggi, ekki síst í matvælaframleiðslu. Markmiðið væri ekki að framleiða allan mat innanlands, en þegar kreppir að sé ómetanlegt að hafa öfluga innlenda framleiðslu. „Við verðum að efla eigin framleiðslugetu,“ sagði hann og minnti á að sjálfstæð matvælaframleiðsla væri hornsteinn fullveldis.

„Óvissan sjálf er vandinn“

Trausti fjallaði um mögulegar framhaldsvíðræður við Evrópusambandið og ítrekaði að Bændasamtökin væru ekki á móti þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann sagði þó rangt að halda því fram að málefnaleg umræða væri ómöguleg án fullgerðs samnings.

Hann nefndi nokkur atriði sem samningsaðilar þyrftu að hafa í huga. Aðildarviðræður væru sjálfstæð óvissuuppspretta sem kældi fjárfestingar í landbúnaði. Stærstu áhrifin gætu líklega orðið brottfall tolla, frekar en styrkjamál. Þar sem framleiðendaverð hér er víða hærra en í ESB myndi slíkt kalla á „mjög auknar greiðslur“ ef koma ætti í veg fyrir búsifjar. Samningsstaða Íslands í fyrri viðræðum hefði byggt á banni við innflutningi lifandi dýra, fersks kjöts og tiltekinna plantna. Óvíst væri hvaða afstaða stjórnvalda yrði nú.

Hann sagði nauðsynlegt að stjórnvöld ynnu náið með bændum og öðrum hagaðilum ef til viðræðna kæmi. „Það væru stór mistök að halda bændum utan við þá vinnu,“ sagði Trausti og minnti á að landbúnaðarmál væru ekki sérhagsmunir heldur almannahagsmunir.

Nýir búvörusamningar stærsta verkefnið fram undan

Í lok ræðu sinnar lagði Trausti áherslu á að endurskoðun búvörusamninga væri eitt stærsta verkefnið. Bændur hefðu verið skýrir. Kerfið þurfi að vera réttlátt, fyrirsjáanlegt og byggt á trausti. Rekstur búanna þarf að verða lífvænlegur og nýliðun möguleg. Og neytendur eigi að geta treyst því að íslenskt fæði standist strangar kröfur.

Tollvernd verði áfram meginþáttur og þurfi að fylgja verðlagsþróun. Þá þurfi að leysa úr málum sem snúi að búvörulögum og afurðastöðvum með samráði, ekki yfirboðum.

Samstaða bænda verði þó aðalatriðið. „Við erum ein stétt með það sameiginlega markmið að tryggja íslenskum landbúnaði framtíð,“ sagði hann og minnti á að saga bændastéttarinnar sýndi að samstaða og seigla hefðu fleytt henni í gegnum marga storma.

„Ég hef trú á framtíðinni“

Ræðu sinni lauk Trausti á bjartsýnum nótum. „Við lifum á tímum óvissu og tækifæra,“ sagði hann og lagði áherslu á gildi heiðarlegrar vinnu í íslenskum landbúnaði. Hann sagðist trúa að samvinna bænda og stjórnvalda gæti skilað starfsskilyrðum sem ýti undir vöxt, fjárfestingu, nýsköpun og stöðugleika næstu áratugina. „Hér duga engin vettlingatök,“ sagði hann, en bætti við að bændur hefðu aldrei verið latir til verks.

Skylt efni: Búnaðarþing

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...