Halla Sif ein af 100 kvenhetjum FAO
Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis hefur verið valin í hóp fyrstu 100 kvenhetja Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í landbúnaði og byggðaþróun.
Í bréfi framkvæmdastjóra FAO segir að framlag hennar efli matvælaframleiðslu og bæti lífsskilyrði í dreifbýli og undirstriki mikilvægt framlag kvenna í landbúnaði. „Árangur Höllu er Íslandi til sóma“, segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Forvitin að hitta hinar 99
„Ég er forvitin að hitta hinar 99 konurnar í hópnum“, segir Halla sem á og rekur Sólskins grænmeti sem fæst í flestum verslunum, en einnig í Sólskinsbúðinni á Flúðum sem selur úrval af vörum frá framleiðendum í uppsveitum Árnessýslu.
Þetta er í fyrsta sinn sem stofnunin velur slíkan afrekshóp en 600 tilnefningar bárust frá 131 landi. Hvatinn að tilnefningum og vali á fyrstu kvenhetjunum er ár kvenna í landbúnaði hjá FAO, en til stendur að valið verði fastur liður.
„Aðgangur að tækifærunum er ekki alltaf jafn og ekki sjálfgefið að konur geti átt og rekið fyrirtæki hvar sem er í heiminum“, segir Halla. Hún keypti garðyrkjustöð á meðan hún var enn í námi í Garðyrkjuskólanum á Reykjum og stækkaði fljótlega við sig með kaupum á annarri og sameinaði undir merkjum Sólskins.
„Í landbúnaði skiptir til dæmis gríðarlega miklu máli að hafa aðgang að landi, fjármagni og fjölþættum innviðum. Við hérna við heimskautsbaug á Íslandi megum vera stolt af því hversu langt við erum komin í heilsársræktun, en á sama tíma er mikilvægt að muna að þessi staða er ekki sjálfgefin.“
Mikilvægt framlag kvenna
Í rökstuðningi með valinu segir í bréfi frá framkvæmdastjóra FAO Qu Dongyu að Halla hafi sýnt afdráttarlausa leiðtogahæfileika og elju í nýsköpun. Ennfremur að framlag hennar efli matvælaframleiðslu og bæti lífsskilyrði í dreifbýli. Árangurinn sem hún hefur náð endurspegli þau gildi sem FAO vill draga fram á þessu ári tileinkuðu konum í landbúnaði. Þar segir einnig að árangur Höllu Sifjar undirstriki mikilvægt framlag kvenna til uppbyggingar skilvirkari, réttlátari, öflugri og sjálfbærari landbúnaði og matvælaframleiðslu.
„Val Höllu Sifjar í þennan úrvalshóp kvenna endurspeglar ekki aðeins hennar eigin árangur, heldur einnig þann metnað sem Ísland hefur sýnt í að styðja konur sem leiðtoga, frumkvöðla, atvinnurekendur og bændur“, segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Árangur Höllu er Íslandi til sóma og sannur innblástur fyrir konur og ungt fólk um allan heim.“
Nánar verður rætt við Höllu í næsta blaði sem kemur út 27. ágúst.
