Mjólkursamsalan og Matís í samstarf um rannsóknir á skyri og mysu
Þann 21. janúar sl. undirrituðu fulltrúar Mjólkursamsölunnar (MS) og Matís fimm ára samstarfssamning um rannsóknir á skyrgerlum og mysu.
Í tilkynningu frá Matís kemur fram að mikil verðmæti reynist í skyrinu og íslenska skyrgerlinum. Haft er eftir Jóni Axel Péturssyni framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs MS að jákvæð þróun í sölu á skyri á Norðurlöndum sýni það. „Salan á síðasta ári þar jókst um 85% og er nú í heildina orðin um og yfir 13.000 tonn. Að fá aðgang að því hæfa og góða fagfólki í vísindum og rannsóknum sem vinnur hjá Matís er því mjög verðmætt fyrir okkur og við bindum miklar vonir til framtíðar um þetta samstarf okkar. Enn fremur ætlum við í sameiningu að rannsaka betur eiginleika mysunnar og með hvaða hætti unnt er að gera meiri verðmæti úr henni heldur en gert er í dag,“ segir Jón Axel.