Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Það má ýmislegt segja um pakkann
Mynd / Úr safni
Skoðun 7. apríl 2026

Það má ýmislegt segja um pakkann

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Við í Bændasamtökunum tökum ekki afstöðu gegn þjóðaratkvæðagreiðslu. Þvert á móti teljum við mikilvægt að þjóðin fái að segja sitt álit í slíku grundvallarmáli. Það er auðvitað bæði eðlilegt og rétt að þjóðin sjálf skeri úr um hvort halda eigi áfram þeirri vegferð – leiði þetta mál til lykta.

Það er hins vegar ekki svo að alger hula hvíli yfir því hvað í inngöngu felst. Við vitum hvernig landbúnaðarkerfi Evrópusambandsins er saman sett og hvernig það virkar. Við eigum í nánu samstarfi við kollega okkar á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu.

Það er því ekki rétt að engin málefnaleg umræða geti átt sér stað um Evrópusambandið áður en endanlegur samningur liggur fyrir. Jafnvel áður en pakkinn margfrægi er opnaður er ýmsar ályktanir hægt að draga af stærð hans, lögun og jafnvel pappírnum sem hann er pakkaður inn í. Ég vil því nefna nokkra hluti sem skipta okkur bændur máli – sem við teljum mikilvægt að verði komið til móts við.

Aðildarviðræður við ESB eru sjálfstæð uppspretta óvissu sem hefur kælandi áhrif á fjárfestingar í landbúnaði, alveg óháð niðurstöðu. Enginn leggur út í fjárfestingu til langs tíma þegar lagaumhverfi rekstursins er svona óljós. Þessi áhrif verða alvarlegri eftir því sem aðildarviðræður dragast á langinn.

Okkur sýnist svo stærstu áhrifin af inngöngu í ESB ekki vera styrkirnir – í hvaða formi sem þeir gætu verið – heldur brottfall tollanna. Slíkt myndi hafa veruleg áhrif á landbúnað þar sem framleiðendaverð á Íslandi, fyrir utan lambakjöt, eru mun hærri heldur en í ESB.

Þessi áhrif valda því að mjög auknar greiðslur þyrftu ef að landbúnaðurinn á ekki að verða fyrir verulegum búsifjum að aðild.

Samningsafstaða Íslands í landbúnaði lá aldrei fyrir í fyrri aðildarviðræðum, nema að því leyti að hér ætti að viðhalda banni við innflutningi á lifandi dýrum, banni við innflutningi á fersku kjöti og banni við innflutningi á tilteknum plöntum. Kjötinnflutningur er nú leyfður í takmörkuðu mæli í kjölfar dóms EFTA dómstólsins.

Við teljum að samningsafstaða ríkisins eigi að vera ljós þegar gengið er til kosninga, en aðalatriðið er að ef viðræðum við ESB verður haldið áfram vinni stjórnvöld náið með hagaðilum að mótun samningsmarkmiða og annarri vinnu í viðræðunum. Eigi landbúnaður á Íslandi ekki að verða fyrir miklu, varanlegu tjóni, verða stjórnvöld að knýja fram sérlausnir sem bíta.

Líkurnar á slíkum málalyktum eru meiri ef Bændasamtökin og aðrir upplýstir hagaðilar taka virkan þátt í vinnunni með stjórnvöldum. Það væru stór mistök af hálfu stjórnvalda að halda bændum utan við þá vinnu og nýta sér ekki sérþekkingu þeirra til að ná sem bestri niðurstöðu fyrir Ísland. Fyrir lítið land eins og Ísland þá er einsýnt að við þurfum að nálgast málefni sem þessi saman ef þjóðin ákveður að halda áfram.

Því það vill stundum gleymast að landbúnaðarmál eru ekki sérhagsmunir bænda – heldur almannahagsmunir. Sveitin, maturinn, ræktarlandið, dýrin og bændurnir – allt er þetta stór og mikilvægur hluti þjóðarsálarinnar og samfélagsins. Og þetta er þáttur sem almenningur vill standa vörð um. 

Höfundur er formaður BÍ.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...