Gyða Pétursdóttir situr í samráðshópi umhverfis-, orku- og loftslags- ráðuneytisins um nýtingarmöguleika á lífrænum úrgangi – einkum úr fiskeldi á landi og svínaeldi.
Gyða Pétursdóttir situr í samráðshópi umhverfis-, orku- og loftslags- ráðuneytisins um nýtingarmöguleika á lífrænum úrgangi – einkum úr fiskeldi á landi og svínaeldi.
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15. nóvember næstkomandi um nýtingar- möguleika á lífrænum úrgangi – einkum úr fiskeldi á landi og svínaeldi. Einhverjar tafir verða á skýrsluskilunum þar sem samráðshópurinn sem vinnur að skýrslugerðinni hefur verið óstarfhæfur á síðustu mánuðum.

Samráðshópunum er ætlað að móta skynsamar og rekstrarhæfar ráðstöfunarleiðir fyrir lífrænan úrgang. Gyða Pétursdóttir situr í hópnum fyrir hönd Bændasamtaka Íslands. Hún segir ljóst að truflanir á starfseminni séu mjög óheppilegar þegar ljóst sé að bæði svínabændur og landeldisfyrirtækin bíði með óþreyju eftir opinberri stefnumótun um farvegi fyrir þetta verðmæta lífræna hráefni.

Tveir fundir frá síðasta sumri

Samráðshópurinn var skipaður í júní og að sögn Gyðu fór vinnan strax í gang. Tveir fundir hafi verið haldnir á fyrstu mánuðunum en síðan hefur ekki verið fundað í hópnum.

Hún segir ástæðuna vera að Kjartan Ingvarsson, formaður hópsins, hafi skipt um starfs- vettvang og farið til Umhverfis- og orkustofnunar frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Ráðuneytið hafi ekki skipað nýjan formann og því var hópurinn óvirkur í tvo mánuði.

Gyða segir nú ljóst að starfið muni halda áfram með óbreyttu sniði og Kjartan verði áfram formaður. Boðað hafi verið til fundar í lok nóvember.

Auðlind frekar en úrgangur

Terraforming LIFE er samstarfs- verkefni Bændasamtaka Íslands, First Water Orkídeu, Ölfus Cluster og færeyska ráðgjafarfyrirtækisins SMJ. Þar er unnið að því að þróa nýja aðferð hér á Íslandi við áburðar- og lífgasframleiðslu úr lífrænum úrgangi, sem fellur til við fiskeldi á landi og í landbúnaði. Á vef Terraforming LIFE skrifar Gyða sem fulltrúi Bændasamtaka Íslands, að hlutverk hópsins sé að stuðla að samræmingu stjórnsýslu, kortleggja hindranir í regluverki og stjórnsýslu og leggja fram tillögur sem styðja við aukna nýtingu lífrænna hliðarstrauma og þróun hringrásarhagkerfis á Íslandi.

Markmiðið sé að skapa betri forsendur fyrir nýtingu verðmætra næringarefna og auðlinda sem falla til í íslenskri matvælaframleiðslu og vinna að lausnum sem draga úr sóun og styðja við aukna hringrás auðlinda.

Á vefnum segir enn fremur að skipun hópsins hafi verið jákvætt skref sem endurspegli aukna áherslu stjórnvalda á að skilgreina lífræna hliðarstrauma sem auðlind fremur en úrgang. Fyrir verkefni á borð við Terraforming LIFE skipti slík vinna miklu máli, enda geti skýrara regluverk og samræmd stjórnsýsla haft veruleg áhrif á möguleika til nýtingar hliðarstrauma á borð við fiskeldismykju.

„Það er mjög jákvætt að vinna samráðshópsins sé að fara aftur af stað. Mikilvægt er að hópurinn fái nú tækifæri til að halda vinnunni áfram og ljúka því verkefni sem honum var falið, enda eru fjölmörg úrlausnarefni fram undan varðandi aukna nýtingu lífrænna hliðarstrauma á Íslandi,“ er haft eftir Gyðu á vef Terraforming LIFE.

Skylt efni: Terraforming

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...