Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Dóra Svavarsdóttir formaður Slow Food samtakanna á Íslandi og Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveitanna.
Dóra Svavarsdóttir formaður Slow Food samtakanna á Íslandi og Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveitanna.
Mynd / Brynja Eldon
Fréttir 7. apríl 2026

Stefnumót matvælaframleiðenda og ferðaþjónstuaðila

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Markmið viðburðarins var að efla tengsl, stytta virðiskeðjuna og tryggja að gestir á svæðinu gætu notið matvæla beint frá framleiðendum á fjölmörgum veitingastöðum, hótelum og mötuneytum í héraðinu.

Skilvirk dreifing ferskvara

Viðburðurinn fór fram í Félagsheimili Hrunamanna þar sem 18 framleiðendur kynntu vörur sínar fyrir gestum. Að sögn Dóru Svavarsdóttur, formanns Slow Food á Íslandi sóttu um 100 manns viðburðinn, sem hófst á framsöguerindum.

Knútur Rafn Ármann frá Friðheimum fjallaði um matarminjagripi og hvernig megi nýta vannýtt hráefni í vörur sem ferðamenn geta tekið með sér heim. Óli Finnsson í Heiðmörk ræddi mikilvægi fullnýtingar afurða og ávinninginn af góðu samstarfi í virðiskeðjunni. Hann nefndi sérstaklega „Helvítis eldpiparsulturnar“, sem nýta hráefni frá honum og hafa orðið vinsælar. Þá kynnti Tjörvi Bjarnason viðskiptamódel Matlands, matarmarkaðstorgs á netinu, og hvernig sjálfsafgreiðslustöðvar geti gert dreifingu ferskra afurða skilvirkari.

Mikilvægi slíkra viðburða

Dóra Svavarsdóttir frá Slow Food flutti erindi og lagði áherslu á mikilvægi slíkra viðburða. „Það skiptir sköpum að gera sýnilegt hvað svæðið hefur upp á að bjóða. Fyrir fólk í veitingageiranum og ferðaþjónustunni er það ómetanlegt að geta með stolti sagt hvaðan hráefnið kemur og hvert er fólkið og sagan á bakvið réttina sem bornir eru fram,“ sagði hún.

Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveitanna, sagði að lengi hefði verið talað um sjálfbærni og mikilvægi fæðuöryggis þjóðarinnar. Nú sem aldrei fyrr væri þetta ljóst, sérstaklega út frá heimsmálunum. Það væri því hagur allra sem starfa og búa í Uppsveitunum að versla í heimabyggð og með svona viðburði væri opnað á aukið samtal og sýnileika þeirra aðila sem eru á bak við þessa blómlegu matarkistu sem Uppsveitirnar séu.

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...