Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu
Mynd / smh
Fréttir 26. maí 2026

Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Matvælastofnun hefur sent kæru til lögreglu vegna hótana um ofbeldi í garð starfsmanna sinna. Í tilkynningu á vef stofnunarinnar segir að kæran beinist gegn einstaklingi. Kæran taki einnig til meintrar háttsemi þar sem búnaður var tekinn ófrjálsri hendi, hvatt var til refsiverðra verka og tilboði um greiðslur til starfsmanna fyrir athafnir í þágu viðkomandi. Þetta sé í fyrsta sinn sem stofnunin kærir einstakling vegna slíks.

Í lok apríl sendi Matvælastofnun frá sér tilkynningu þar sem bent var á að óvenju mikið væri um hótanir í garð starfsmanna stofnunarinnar. Dæmi séu til að starfsfólk og aðstandendur þess séu nafngreind á samfélagsmiðlum og því sendar hótanir. Hafi þetta leitt til þess að starfsmenn óttist um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar í starfi og heima fyrir.

Matvælastofnun sinnir eftirliti með dýravelferð. Undir það fellur eftirlit með landbúnaði, matvælaframleiðslu og gæludýrahaldi. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, sagði í samtali við Bændablaðið að oft kalli heimsóknir frá starfsfólki stofnunarinnar fram sterk viðbrögð, reiði, ótta eða varnaviðbrögð. Í einstaka tilvikum fari viðbrögðin yfir mörkin. MAST hafi sett sér skýrt og fastmótað verklag þegar starfsfólk upplifi ógnandi hegðun.  

Matvælastofnun leggi ríka áherslu á að allt ofbeldi eða hótanir um ofbeldi í garð starfsmanna stofnunarinnar sé með öllu óásættanleg og verða ávallt kærð til lögreglu. 

Samkvæmt 106. gr. almennra hegningarlaga er refsivert að beita opinbera starfsmenn ofbeldi eða hótunum um ofbeldi við störf þeirra, eða reyna að hindra framkvæmd slíkra starfa. Slík brot geta varðað allt að sex ára fangelsi, en beita má sektum ef brot teljast smávægileg.

Skylt efni: Matvælastofnun | Mast | hotanir

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.