Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Vísnahornið
Líf og starf 7. júlí 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Nú snýst margt um farsímanotkun og net í samskiptum manna á milli. Guðmundur Þorsteinsson, bóndi á Skálpastöðum, orti þessa eitt sinn:

Sála mín glúpnaði andspænis örlagdómi

til almáttugs drottins ég vildi í neyð minni snúa mér

og einhver svaraði yfirveguðum rómi: ,

,Það er enginn notandi með þetta símanúmer.“

Snillingurinn Hjálmar Freysteinsson heitinn læknir, sagði eitthvert sinn: Einn því fylgir ókostur að eiga símann; hættan á að hringt sé í mann.

Fyrir mörgum árum orti Hjálmar á sólstöðuhátíð í Grímsey, þar sem nokkrir hagyrðingar komu saman:

Gestrisnir eru Grímseyingar

og gaman að koma á þennan stað.

Jafnvel heimskustu hagyrðingar,

hljóta að viðurkenna það.

Oft eru umræður á Alþingi nokkuð svo sérstakar og eitthvert sinn orti Hjálmar um ónefnda þingmenn:

Sumir þannig sannfæringu sína tjá,

þeir segja nei og síðan já

og sitja loksins hjá.

Þegar stóðu yfir umræður varðandi álver þurfti bæjarstjórn Hafnfirðinga að ræða þrjú mál tengd álveri og Hafnarfirði. Framsókn átti þá einn fulltrúa í bæjarstjórn, hann sat hjá við afgreiðslu fyrsta máls, en greiddi atkvæði gegn máli tvö og síðan atkvæði með því þriðja. Andrés Kristjánsson, ritsjóri Tímans sálaða, orti þarna um 1968:

Glæst er á skriði flokksins fley

með fræknu liði og snjöllu,

það situr hjá og segir nei

og síðan já við öllu.

Um haus og daus yrkir Þórarinn Eldjárn í kveri sínu Eitt og annað:

Til að geta haldið haus

hefurðu þá völ

þó kunni að vera kvöl

að koma þér upp digrum daus

sem dugar vel í kjöl.

Og Þórarinn segir líka ,,Skárra væri“:

Í öllu heimsins veseni og vosi

er viturlegt að koma sér upp brosi.

Koma auga á allt það sem er skárra

æðra, stærra, hærra, skírra, blárra.

Jón Bjarnason var bóndi í Garðsvík á Svalbarðsströnd um skeið og þótti gamansamur, hann orti um heyþurrk:

Sunnanátt og sólarþey

sérhver bóndi metur.

En til hvers er að eignast hey, 

sem eyðist næsta vetur.

Einhvern tímann mun Jón B. hafa ort er rannsóknir sýndu að í erfðamengi Mývetninga fundust gen, sem svipaði til erfðaefnis úlfalda að sögn fróðra:

Enn um furður okkar lands

útlendingar þinga.

Rekja allt til úlfaldans

ættir Mývetninga.

Þegar sameinast var um eina nautstöð, var kynbótanautið Sokki flutt þangað frá sæðingastöðinni á Akureyri. Þegar Sokki hafði lokið sínu var hausinn af honum stoppaður upp og gefinn Eyfirðingum. Mynd var af afhendingunni á forsíðu Freys, þar sem formaður B.Í., Ásgeir Bjarnason í Ásgarði, og Vernharður Sveinsson mjólkursamlagsstjóri voru með hausinn af Sokka. Þá orti Jón Bj.:

Jafnvel þó að Sokki sé

sviptur búki gildum,

sýnir myndin mönnum hve

margt er líkt með skyldum.

Kristján Benediktsson var að leggja flísar á forkirkjugólf og var ósáttur með verkið sem og lit á flísum: Flísalögn er ferlegt puð og flesta hér mun gruna, að aldrei framar gangi Guð gegnum forkirkjuna.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

Fjögur sunnudagsskákmót
Líf og starf 23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var mögulega einhvers konar skákmet slegið. G...

Græðgin er óseðjandi púki
Líf og starf 23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Veðrið var gott og sumarið enn ekki búið. Sviðið er sumarbridds í Síðumúlanum. M...

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
Líf og starf 22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Páll Halldór Benediktsson, bóndi á Hákonarstöðum á Efri-jökuldal, á stórt safn f...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 21. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan tekur nú fyrstu skref sín full sjálfstrausts inn í nýtt tímabil. Hún má t...

Vísnahornið
Líf og starf 21. september 2026

Vísnahornið

Um allt land eru göngur og réttir, Philip Vogler, hefur lengi hjálpað til við sm...

Heimsókn úr öðrum heimi
Líf og starf 21. september 2026

Heimsókn úr öðrum heimi

Hann klæddi sig og fór að öllu hljóðlega enda enn mið nótt. Þau höfðu ekki orðið...

Með smjörkveðju!
Líf og starf 20. september 2026

Með smjörkveðju!

Saga smjörs sem slík hefur hér áður verið rakin á handahlaupum, en ekki allir vi...