Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Landslið Íslands í hestaíþróttum á Heimsmeistaramótinu í Hollandi 2023. Samtals vann hópurinn 16 gullverðlaun og 5 silfur, besti árangur Íslands frá upphafi.
Landslið Íslands í hestaíþróttum á Heimsmeistaramótinu í Hollandi 2023. Samtals vann hópurinn 16 gullverðlaun og 5 silfur, besti árangur Íslands frá upphafi.
Mynd / Jón Björnsson
Líf og starf 25. ágúst 2023

Sjö íslenskir heimsmeistarar

Höfundur: Hulda Finnsdóttir

Heimsmeistaramót íslenska hestsins fór fram í Oirschot í Hollandi dagana 8. til 13. ágúst. Þar öttu kappi glæsilegir fulltrúar hins íslenska gæðings í íþróttakeppni og kynbótasýningu. Íslenska landsliðið var afar sigursælt og náði sínum besta árangri til þessa, 16 gullverðlaun og 5 silfur.

Það ríkti mikil eftirvænting fyrir mótinu í Hollandi enda fjögur ár síðan síðasta mót var haldið en alla jafna fara Heimsmeistaramót fram annað hvert ár. Það voru gerðar miklar væntingar til þeirra Jóhönnu Margrétar Snorradóttur og Bárðs frá Melabergi en fyrirfram voru þau skærustu stjörnur landsliðsins.

Þau ollu ekki vonbrigðum og tryggðu sér silfur í fjórgangi, gull í samanlögðum fjórgangsgreinum og unnu síðan Tölthornið sem er eftirsóttasti verðlaunagripur Heimsmeistaramótsins. Í töltinu stóð baráttan á milli þeirra Jóhönnu Margrétar og Sys Pilegaard á Abel fra Tyrevoldsdal. Þrátt fyrir að Sys og Abel hlutu eina 10 fyrir yfirferðina þá dugði það ekki til og silfrið varð þeirra. Viðar Ingólfsson á Þór frá Stóra-Hofi stóð sig líka með ágætum en litlu munaði að hann endaði á palli í töltinu en þeir enduðu í fjórða sæti í töltinu eftir harða baráttu við Lisa Schürger á Kjalari frá Strandarhjáleigu, sem varð þriðja. Í fjórgangnum enduðu þeir Viðar og Þór í fimmta sæti sem verður að teljast afar góður árangur en þetta var frumraun þeirra í þeirri grein.

Til gamans má geta að í úrslitum í tölti var knapi frá Ungverjalandi, Veronika Krammer á Ísbirni vom Vindstaðir, og enduðu þau í 5. sæti en þetta var í fyrsta sinn sem Ungverjaland er með á Heimsmeistaramóti.

Sara Sigurbjörnsdóttir sýndi öllum hversu megnug hún er og reið Flóka frá Oddhóli af miklu öryggi og tryggði sér heimsmeistaratitil í fimmgangi með glæsilegum skeiðsprettum. Í öðru sæti enduðu þeir Pierre Sandsten Hoyos frá Austurríki og Búi frá Húsavík en þeir voru sterkir fram að skeiðinu.

Frauke Schenzel á Jódísi vom Kronshof vann fjórganginn en þær kepptu fyrir Þýskaland og í slaktaumatölti fór gullið til Svía en þar áttu Máni Hilmarsson og Gljátoppur frá Miðhrauni glæsilegar sýningar. Samanlagður sigur í fimmgangsgreinum fór einnig til Svíþjóðar en Caspar Hegardt og Oddi från Skeppargården hlutu þann titil.

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi eru heimsmeistarar í tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum. Mynd / Jón Björnsson

Fræknir sigrar í skeiðgreinunum

Óvæntustu úrslit mótsins var eflaust sigur Elvars Þormarssonar og Fjalladísar frá Fornusöndum í 250 m. skeiðinu. Elvar og Fjalladís þóttu sigurstranglegust fyrir mótið í gæðingaskeiði. Þrefaldir Íslandsmeistarar í greininni og með langbestu einkunnina fyrir mótið. Það kom því engum á óvart þegar þau hömpuðu heimsmeistaratitlinum í þeirri grein, nokkuð örugglega.

Daginn eftir fór fram keppni í 250 m skeiðinu og hafði Elvar beðið um að vera skráður í þá grein sem og 100 m skeiðið þrátt fyrir að þau Fjalladís hefðu aldrei keppt í þeim greinum. Elvar vissi að merin væri fljót og þar sem gæðingaskeiðið kláraðist á fyrsta mótsdegi væri um að gera að hafa gaman það sem eftir er mótsins og prófa eitthvað nýtt.

Eftir fyrri umferð kappreiðanna voru þau Fjalladís og Elvar með langbesta tímann. Þessir fljótustu kappreiðavekringar höfðu þó ekki náð sínum bestu sprettum svo keppnin var enn galopin. Í seinni umferðinni gat þó enginn skákað þeim Elvari og Fjalladís sem bættu í í hverjum spretti og annar heimsmeistaratitillinn í hús hjá þeim í grein sem þau voru að keppa í í fyrsta skipti. Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri enduðu í öðru sæti.

Gullið í 100 m skeiði fór að þessu sinni til Austurríkis. Miklar væntingar voru bundnar við íslensku keppendurna og eftir fyrsta sprett var Teitur Árnason fljótastur á Drottningu frá Hömrum II með tímann 7,29 sek. Íslendingar töldu gullið vera öruggt en svo var ekki því í seinni umferðinni setti hin austurríska Helga Hochstöger í fluggírinn á Nóra von Oed og þau lönduðu gulli á tímanum 7,27 og silfrið fór til Teits. Ótrúlegur árangur hjá Helgu og Nóra sem áttu áður besta tímann eitthvað í kringum 7,50 sek. Silfrið fór einnig til Íslands í ungmennaflokknum en þar voru þær Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir og Ylfa frá Miðengi með annan besta tímann.

Heimsmeistarar í fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum í ungmennaflokki, Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhól. Mynd / Bert Collet

Stórglæsilegur árangur íslensku ungmennanna

Á mótinu tóku fimm íslensk ungmenni þátt. Hlutu fjögur af þeim heimsmeistaratitil, tveir fleiri enn einn, og eitt silfur. Stórkostlegur árangur og oftar en ekki unnust titlarnir með yfirburðum. Fyrstur til að vinna titil var Benedikt Ólafsson og Leira- Björk frá Naustum III. Sérfræðingar í gæðingaskeiði og sýndu snilli sína á mótinu og sönnuðu enn eina ferðina að þau eru með þeim bestu í þessari grein. Hlutu þau 8,00 í einkunn sem hefði tryggt þeim annað sætið í fullorðinsflokki. Benedikt skellti sér einnig með Leiru-Björk í skeiðgreinarnar, fimmganginn og slaktaumatöltið til að reyna að tryggja sér samanlagðan sigur í fimmgangsgreinum. Það tókst með naumindum og titillinn varð þeirra.

Benedikt var ekki sá eini sem nældi sér í tvo titla en það gerðu einnig þeir Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhól. Eftir forkeppni stóðu þeir langefstir bæði í tölti og fjórgangi og heimsmeistaratitill í samanlögðum fjórgangsgreinum öruggur. Í úrslitum áttu þeir frábæra sýningu í fjórgangi og unnu þau með yfirburðum. Í töltúrslitunum lentu þeir í brasi á yfirferðinni og enduðu þar í fjórða sæti. Þar áttu Íslendingar þó hauk í horni en önnur inn í töltúrslitin var Herdís Björg Jóhannsdóttir á Kvarða frá Pulu. Herdís og Kvarði höfðu lent í því óhappi í vikunni á undan að missa undan skeifu og töluvert af öðrum hófnum. Þurfti því að járna Kvarða upp á nýtt og þeir sem þekkja til vita að það getur haft mikil áhrif á hreyfingar og fleira hjá hrossinu. Það kom þó ekki að sök. Með góðri reiðmennsku og glæsilegri yfirferð náði Herdís að tryggja sér gullið í tölti í ungmennaflokki. Í öðru sæti endaði hin færeyska Rakel Brattalid Tindskard á Sílas vom Forstwald en þetta er í fyrsta sinn sem Færeyingar vinna til verðlauna á heimsmeistaramóti.

Það átti enginn roð í Glódísi Rún Sigurðardóttur á Sölku frá Efri-Brú í fimmgangi í ungmennaflokki. Þær áttu mjög góða sýningu í forkeppni og hlutu 7,40 í einkunn sem hefði tryggt þeim annað sætið inn í A-úrslit í fullorðinsflokki. Þær komu langefstar inn í A-úrslitin í ungmennaflokki og reið Glódís þau af miklu öryggi og heimsmeistaratitillinn aldrei í hættu.

Önnur gull í ungmennaflokki fóru til Þýskalands, Danmerkur og Svíþjóðar. Þjóðverjinn Lena Becker vann slaktaumatöltið á Bikari frá Ytra- Vallholti og í skeiðgreinunum var það hin danska Freja Løvgreen Gandrup á Fjölva frá Hedegaard sem vann 250 m skeiðið og 100 m skeiðið vann Alicia Plam á Ljúfu från Ekeholm fyrir Svíþjóð.

Efstu hross í öllum flokkum fyrir utan einn

Árangur kynbótahrossanna sem ræktuð voru á Íslandi var líka eftirtektarverður en stóðu þau efst í öllum flokkum fyrir utan í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta. Þar var sýndur Hersir frá Húsavík sem endaði annar í þeim flokki, sýndur af Teiti Árnasyni. Efstur í þeim flokki varð hinn sænski Kolgrímur Grímsson från Gunvarbyn, sýndur af Agnari Snorra Stefánssyni.

Efstur í flokki 5 vetra stóðhesta var Höfði frá Bergi, sýndur af Þorgeiri Ólafssyni. Ársól frá Sauðanesi var efst í flokki 5 vetra hryssna sýnd af Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur. Árni Björn Pálsson sýndi tvö hross Kötlu frá Hemlu II sem stóð efst í flokki 7 vetra hryssna og eldri og Geisla frá Árbæ sem stóð efstur í flokki sex vetra stóðhesta. Efsta 6 vetra hryssan var Hrönn frá Fákshólum, sýnd af Jakobi Svavari Sigurðssyni.

Ánægja með framkvæmd mótsins

Talið er að um 11.000 manns hafi verið saman komin á Heimsmeistaramótinu, þar af um 1.500 Íslendingar. Þetta er í þriðja sinn sem mótið er haldið á þessum stað og af þessum móts- höldurum og hefur alltaf verið gífurleg ánægja með mótin.

Að þessu sinni stóð mótið undir væntingum hvað varðar umgjörð og aðstöðu, hvort sem það var fyrir hesta, knapa eða áhorfendur en ef eitthvað ætti að gagnrýna þá var það helst matarúrvalið á svæðinu sem var ekki upp á marga fiska.

Keppendur voru 162 talsins frá 17 löndum og voru skráð 39 kynbóta- hross á mótinu. Að þessu sinni fór liðsbikarinn til Danmerkur og er það í fyrsta sinn sem Danmörk hlýtur þau verðlaun. Ísland endaði í þriðja sæti í liðakeppninni sem verður að teljast vonbrigði.

Þrátt fyrir að hafa unnið langflest verðlaun á mótinu þá varð sú staðreynd að einungis einn knapi keppti í slaktaumatölti fyrir Íslands hönd til þess að liðið vann ekki liðakeppnina þetta árið. Ísland hefur unnið bikarinn frá því að hann varð fyrst veittur fyrir utan árið 2015 og nú árið 2023.

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...

Paella með skelfiski
Líf og starf 16. apríl 2024

Paella með skelfiski

Paella er einfaldur réttur og til í ýmsum útgáfum, grunnurinn þó alltaf sá sami ...