Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn dýralæknis Matvælastofnunar á svínabúi Stjörnugríss á Kjalarnesi 15. október.

Að sögn Þóru Jóhönnu Jónasdóttur, yfirdýralæknis Matvælastofnunar, var eftirlitsheimsóknin hluti af reglubundnu eftirliti. Hún gerir ráð fyrir að dagsetningin hafi verið eftir að myndband innan úr búinu var tekið upp og síðar birt opinberlega þann 6. nóvember á Vísi, þar sem sjá mátti dauða grísi og særð svín.

Krefjast ekki hæsta forgangs

Þóra segir að eftirlitsheimsóknin hafi því ekki tengst myndefninu beint, enda hafi stofnunin fyrst vitað af myndefninu eftir að það var birt í fjölmiðlum – eftir þessa eftirlitsheimsókn. Það sé því frekar nýlega búið að fara í eftirlit á þetta bú sem ekki hafi leitt í ljós alvarleg frávik, svo sem dýr með sár sem ekki sé sinnt. „Því teljum við ekki að það sé ástæða til að ætla að það sé þarna ástand sem krefjist allra hæsta forgangs,“ segir hún. Leiði rannsókn á myndefninu í ljós að brotið væri gegn reglum þá sé farið fram á úrbætur. Síðan sé hægt að beita þvingunarúrræðum ef ekki er orðið við kröfum um úrbætur.

Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, hefur sagt í viðtölum við fjölmiðla að myndefnið úr svínabúinu sýni ljóta mynd og að mistök og frávik hafi orðið við umönnun dýranna, sem fyrirtækið taki ábyrgð á. Hann hefur þó hafnað því að myndbandið gefi rétta heildarmynd af starfseminni. Í viðtali við Útvarp Bændablaðið sagði Geir Gunnar að fyrirtækið tæki á sig þau frávik sem kæmu fram í myndbandinu um velferð dýranna. Sagði hann að stórt sár á baki einum grísnum væri fæðingargalli. Stundum hafi dýralæknir verið fenginn til að sauma það en annars grói þetta með tímanum. Þetta hafi vissulega verið óheppilegt. Hann sagði að grísinn hefði átt að vera í sér stíu. „Klárlega og við myndum segja að þetta séu mistök og frávik. Hann hefði átt að vera í sér stíu. En málið er að þessi grís vex vel og dafnar vel og sá sem hugsar um þetta tiltekna bú er búinn að starfa þarna í 15 ár. Það má ekki aðskilja grísi og setja í eina stíu í mjög langan tíma. Þannig að rétt viðbrögð þarna hefðu verið að slátra honum. Eða grípa fyrr inn í. Þannig að við tökum það alveg á okkur.“

Stjörnugrís hefur sótt um undanþágu

Í eftirlitsskýrslu úr heimsókninni sem Þóra vísar til eru frávik tilgreind á búinu, varðandi stærð rýmis en í skýrslunni segir að svínabúið uppfylli ekki skilyrði um velferð svína hvað varðar húsakost.

Stjörnugrís hefur sótt um undanþágu sem veitt var heimild fyrir árið 2024, með breytingu á reglugerð um velferð dýra og gildir til 1. janúar 2028.

Þar segir að veiting á fresti sé háð því að framleiðandi leggi fram gögn sem sýni fram á að hann hafi sannanlega gripið til ráðstafana til að uppfylla kröfur ákvæðanna en ekki orðið ágengt af ástæðum sem eru ekki á ábyrgð framleiðanda sjálfs.

Skylt efni: stjörnugrís

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...