„Hvernig sem veður er eða vindar blása er sánan fastur punktur, fyrirsjáanlegur hiti og óhaggandi kyrrð.“
„Hvernig sem veður er eða vindar blása er sánan fastur punktur, fyrirsjáanlegur hiti og óhaggandi kyrrð.“
Mynd / Haukur Sigurðsson
Viðtal 5. október 2026

Bryggjusauna nýopnuð á Ísafirði

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

„Að baða sig saman er andstæða hernaðar,“ segir Tuomas Toivonen, sem hannaði nýja íðilfagra sánu sem nú stendur hnarreist á einni af bryggjum bæjarins á Ísafirði og er öllum opin. Tuomas segir sánu einn af lyklunum til að gera loftslag norðurslóðanna ánægjulegt.

Eigendur og hvatamenn að Bryggjusaununni langaði að búa til samkomustað fyrir bæjarbúa og aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Bryggjusaunan er vel búin almenningssána og opin frá morgni til kvölds allan ársins hring. Elena Dís Víðisdóttir, einn eigendanna, segir höfnina og bryggjurnar alltaf hafa verið líflegar og sánan sé óþekkt viðbót í hafnarlífið. Hún passi vel inn í ísfirskan lífsstíl og ferðaþjónustuna.

Arkitektinn Tuomas Toivonen.

Andstæða við hernað

„Sána er margt. Í sögulegu samhengi er sána helgur staður til hreinsunar, fyrir heilsuna og til endurnýjunar, rými þar sem fæðing, hjónaband og greftrun líða hjá,“ segir Tuomas Toivonen. Hann er finnskur arkitekt, tónlistarmaður og bæði hannaði og rekur hina víðfrægu Kulttuuriisauna í Helsinki. Nú hefur hann hannað nýja sánu á Ísafirði, Bryggjusaununa, sem eins og heitið gefur til kynna er á bryggjunni.

„Frá sjónarhóli siðmenningarinnar eru almenningsböð líka borgaralegar stofnanir, allt frá helgiböðunum í Mohenjo Daro til rómversku baðhúsanna og evrópskra baðhúsa miðalda, til almenningssundlauga og líkamsræktarstöðva. Þetta eru staðir sem gera borgir líflegar,“ segir Tuomas. „Að baða sig saman er andstæða hernaðar. Það krefst trausts og samfélagslegs sáttmála.“ 

Samkomustaður og aðdráttarafl

Eigendur Bryggjusaununnar, þau Elena Dís, Tinna Rún, Gauti og Óli Rafn, kynntust almenningssánum við háskólanám í Noregi og Danmörku. „Okkur langaði að búa til samkomustað fyrir heimamenn og aðdráttarafl fyrir ferðamenn,“ segir Elena Dís. Ferlið hófst fyrir fjórum árum og hugmyndin fékk því góðan tíma til að þroskast og dafna.

Bryggjusaunan er almenningssána sem íbúar og ferðamenn hafa greiðan aðgang að. Hægt er að bóka sér stakt sæti eða leigja hana og hafa út af fyrir sig. Hún er ómönnuð, opnar snemma morguns og er opin fram á kvöld alla daga vikunnar allt árið um kring. „Við bjóðum upp á góða aðstöðu, búningsklefa, sturtu, gott útisvæði og aðgengi í sjóinn til kælingar,“ segir Elena Dís.

„Við unnum líka með Sonju Bent, sem gerði sápu fyrir okkur. Hún heitir Bryggja og sækir innblástur í hafnarlífið. Tjara, ryð og þang eru undirstöður ilmsins. Sápan hefur vakið mikla lukku en hún er þeim eiginleikum gædd að vera úr náttúrulegum ensímum sem leysast upp í sjónum og hefur engin skaðleg áhrif á umhverfið.“

Óþekkt viðbót í hafnarlífið

Elena segir undirstöðuna í kraftinum í uppbyggingu á Ísafirði hafa komið úr sjávarútveginum og tengdum greinum í gegnum tíðina. „Þess vegna hafa bryggjan og höfnin verið og eru líflegir staðir, þar er mikill erill. Bátar og skip koma og fara, með afla og annan varning og fólk á ferðalögum. Bryggjusauna býður upp á áður óþekkta viðbót í hafnarlífið, stað til þess að hægja á sér, staldra við og láta sér líða vel.“

Elena segir viðbrögðin hafa verið vonum framar og þau séu gríðarlega þakklát fyrir viðtökurnar. Hún segir bygginguna tilkomumikla og staðinn merkilegan í hugum bæjarbúa, hún sé í senn í hjarta bæjarins en þar sé hægt að vera út af fyrir sig.

Byggingin er úthugsuð

Hönnun byggingarinnar er eftirtektarverð, sérlega fagurlega útfærð fyrir þennan sérstaka stað, eina af bryggjum bæjarins sem eru þónokkrar. Línurnar eru fremur einfaldar og dökkar útlínurnar ber fagurlega við umhverfið. Bryggjusaunan er vel sýnileg frá bænum og verður vafalaust kennileiti þegar fram líða stundir.

Byggingin sver sig í ætt við aðrar byggingar bæjarins, er dæmigerð tjörguð timburbygging og sækir innblástur í elstu húsin á eyrinni, með bröttu þaki og tjörunni, svo sem Tjöruhúsið hvaðan ófáir gestir hafa farið saddir og himinsælir frá.

Gluggarnir eru úthugsaðir svo gestir geta notið útsýnis um stóra glugga og minni kýrauga. „Byggingin er margræð, nútímaleg og forn í senn,“ segir Tuomas. „Gufubaðsrýmið sjálft er einfalt, hæð bekkjanna og þrep hönnuð til að halda hitanum þar sem baðgestirnir eru.“

Baðgestir sitja nokkuð hátt uppi þar sem hitinn helst vel. Mynd / Tuomas Toivonen

Óhaggandi kyrrð

„Sánan passar einstaklega vel inn í ísfirskan lífsstíl og ferðamennskuna,“ segir Elena. Ísafjörður er skíða- og tónlistarbær og aðspurð um hvernig sánan passar inn í bæjarandann segir hún hana vera tilvalda viðbót við alla útivist, „ekki síst skíði, þar er hægt að láta líða úr sér og ná í sig yl eftir daginn. Þar er einstaklega gott að sitja í sínum eigin hugsunum eða á spjalli við aðra og útsýnið yfir bæinn, fjöllin og pollinn virkar í senn dáleiðandi og veitir innblástur. Stórbrotið umhverfið sem útsýnisgluggar sánunnar gera góð skil verður áþreifanlegt en á sama tíma snertir það mann ekki, hvernig sem veður er eða vindar blása er sánan fastur punktur, fyrirsjáanlegur hiti og óhaggandi kyrrð.“

Tinna Rún, Óli Rafn, Gauti og Elena Dís þegar frágangur var á lokametrunum. Mynd / Haukur Sigurðsson

Loftslag norðurslóðanna ánægjulegt

„Sána er einn af lyklunum að því að gera kalt loftslag norðurslóðanna ánægjulegt,“ segir Tuomas. Hann segir að í Finnlandi sé gnægð hitans í sánunni afleiðing af skógunum, timbur til bygginga og viður til brennslu.

Hvað athöfnina sjálfa varðar, að fara í sánu, segir Tuomas nútímagufubaðið vera rými fyrir kyrrð og hugleiðslu, tækifæri til að hlusta á líkamann, dvelja í líðandi stund án áreitis eða tækja. „Rými til að fara í annað líkamlegt ástand og önnur efnaskipti þar sem hiti er framkallaður í líkamanum og ástandinu stjórnað með gufunni, kælingu og að hita sig upp aftur.“ Hann segir að friðinn í sánunni eigi að virða, þar eigi ekki að vera hávaði, hlátrasköll, illa talað um nokkurn mann né etið eða drukkið. Hann segir að þennan frið eigi að virða, hvort heldur er í einrúmi eða með öðrum.

Tuomas segir súrefnisflæðið gott í sánunni, „efniviðurinn er hreinn og fjarvera hvers kyns hluta leyfa augum, huga og líkama að hvílast. Fjörðurinn, fjöllin, himinninn og spegilmynd hans á haffletinum og svipmynd af bænum gerir Bryggjusaununa að stað sem þig langar að koma aftur til.“

Skylt efni: Ísafjörður | sauna

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...