66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til samstarfsfélags við kínverska fatafyrirtækið HLA Group, eitt stærsta fatamerki landsins. Samstarfsélagið mun sjá um sölu og dreifingu á vörum 66°Norður á hinum geysistóra kínverska markaði.

66°Norður tengist virðiskeðju íslensku ullarinnar sterkum böndum en óvíst er hvort og hvaða áhrif samningurinn hefur á hana. Sterk tengsl eru í eignarhaldi, vörumerkjum og samstarfi um vöruhönnun á milli 66°Norður, Rammagerðarinnar og prjónaverksmiðjunnar Glófa. Samningurinn var undirritaður í september.

Í samningnum kemur fram að samstarfsfélagið kaupi vörubirgðir af Sjóklæðagerðinni og samið hafi verið um sölu hugverkaréttinda sem tengjast sölu og dreifingu á vörum 66°Norður í Kína. Rekstur fyrirtækisins hefur verið erfiður og tap aukist á milli ára, var 444 milljónir árið 2024 og 849 milljónir árið 2025.

Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður, sagði í samtali við Morgunblaðið að til stæði að opna flaggskipsverslun í Kína í september 2027. HLH Group rekur 7.000 verslanir.

Helgi Rúnar Óskarsson og Bjarney Harðardóttir, eiginkona hans, eru aðaleigendur Sjóklæðagerðarinnar, sem rekur 66°Norður. Fyrirtækið er í 49% eigu Mousse Partners, fjárfestingafélags Wertheimer-fjölskyldunnar sem á Chanel. Helgi Rúnar og Bjarney eru einnig aðaleigendur Rammagerðarinnar sem keypti Glófa árið 2022.

Glófi er stærsta og ein afar fárra prjónaverksmiðja sem eftir lifir á Íslandi og framleiðir vélprjónaðar vörur úr íslenskri ull undir vörumerkinu Varma. Glófi prjónar og saumar fullunnar flíkur úr íslensku ullinni og er einn stærsti viðskiptavinur Ístex, sem er í yfir 80% eigu sauðfjárbænda á Íslandi. Rammagerðin er einn helsti söluaðili vara Glófa og Ístex.

Skylt efni: 66°N

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f