Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Jarðarber sem bíða þess að roðna í íslenskri sumarsól.
Jarðarber sem bíða þess að roðna í íslenskri sumarsól.
Utan úr heimi 29. júní 2026

Uppnám í jarðarberjaræktun

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Skæður sveppasjúkdómur er kominn upp í jarðarberjaræktun í Noregi og vekur upp miklar áhyggjur. Stærsti jarðarberjaframleiðandinn þar í landi er meðal þeirra sem varð fyrir sjúkdómnum en hann hefur selt plöntur til fleiri bænda.

Erfitt er að eiga við sjúkdóminn sem leggst á rætur plantnanna og tekur gjarnan tíma að uppgötva. Hann getur eyðilagt uppskeru og setið í jarðveginum í allt að 15 ár. Rætur jarðarberjaplantna eiga að vera ljósar á litinn en verða brúnar eða rauðleitar í gegn séu plöntur sýktar.

Í svari Þórhildar Ísberg, leiðandi sérfræðings í plöntueftirliti hjá Matvælastofnun, segir að flestar jarðarberjaplöntur sem fluttar eru inn til Íslands komi frá Hollandi. Hún segir téðan sjúkdóm (Phytophtora fragariae) vera á skaðvaldalista reglugerðar um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum sem bannað er að flytja inn. „Allar plöntur eru fluttar inn á plöntuheilbrigðisvottorði sem vottar að varan uppfylli skilyrði reglugerðar,“ segir Þórhildur. 

Engin meðferð er til við sjúkdómnum og aðgerðir hjá norsku jarðarberjabændunum miðast að því að takmarka smitið og hvíla sýkt svæði. Mögulegt er að rækta aðrar tegundir þar sem sjúkdómurinn leggst ekki á. Í viðtali við Danmarks Radio, segir Andreas Andersen, sem er jarðarberjaræktandi, að smitið hafi mögulega komið frá Hollandi eða Þýskalandi en geti líka hafa borist á milli akra með landbúnaðartækjum, bílum eða skófatnaði. Hann áréttar að nauðsynlegt sé að þvo bæði ökutæki og skóbúnað þegar farið er á milli akra. Sama gildir hér á Íslandi þegar farið er á milli bæja og gróðrastöðva til að forðast mögulegt smit á hvers kyns plöntusjúkdómum. 

Skylt efni: Jarðarber | Noregur

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Tilraunir með ullarafganga
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var n...