Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Rjómabúið á Erpsstöðum er góður viðkomustaður á ferð um Dalasýsluna.
Rjómabúið á Erpsstöðum er góður viðkomustaður á ferð um Dalasýsluna.
Mynd / Greipur Gíslason
Fréttir 17. mars 2026

Hertar fitur í ís

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Hert kókosfita og sykur eru aðalhráefnin í Mjúkís frá Kjörís og smjör og hvítur sykur í Rjómaís frá Emmessís, en ekki mjólk eða rjómi eins og ætla mætti. Mjólk er helsta hráefnið í ís frá Skúbb, Rjómabúinu Erpsstöðum og Holtseli.

Heimagerður ís hefur sinn fasta sess í matarmenningu Íslendinga og er lagaður ár hvert til hátíðarbrigða í eldhúsum landsmanna. Í sinni einföldustu mynd samanstendur hann af rjóma, eggjarauðum og sykri og ef til vill vanillu, súkkulaðibitum eða öðrum bragðgjöfum. Fyrir þá sem ekki standa í reglulegri ísgerð en þykir hann ómissandi er margt í boði en vert er að staldra við og skoða helstu hráefni og önnur innihaldsefni.

Alkunna er að óhóflegt magn af hvers kyns sætindum og mettuðum fitum er óholl fyrir mannslíkamann og því tilefni til að velja vel þegar sætu bragðlaukarnir kalla. Við skoðun á nokkrum tegundum af vanilluís kemur í ljós að aðalinnihaldsefnið í vanilluís frá Skúbb, Rjómabúinu á Erpsstöðum og Holtaseli í Eyjafirði er nýmjólk, hjá Holtaseli og Erpsstöðum er rjómi ofarlega á lista og auk hans eggjarauður. Í Rjómaís frá Emmessís er aðalinnihalds efnið aftur á móti smjör og hert kókosfita í Mjúkís frá Kjörís.

Hert fita eða lífrænn rjómi

Dýrafitur eru mettaðar fitur og sama á við um jurtaolíur sem hafa verið hertar. Þegar jurtaolíur eru hertar myndast í þeim transfitusýrur sem samkvæmt Vísindavefnum eru taldar hafa mjög slæm áhrif á æðakerfið. Líkaminn ræður enda illa við að brjóta þær niður. Landlæknisembættið mælir með neyslu mjúkrar (ómettaðrar) fitu sem til dæmis má finna í feitum fiski, hnetum og fræjum. En ekki í ís.

Athygli vekur að ísgerðin Skúbb notar eingöngu lífræna mjólk og rjóma frá Biobúi, enga frekari fitugjafa og státar af fæstum innihaldsefnum í sínum vanilluís sem auðveldar neytandanum að vita hvað fer inn fyrir hans varir. Með vali á ís sem er annaðhvort lífrænt vottaður eða inniheldur að megninu til lífræn hráefni er neytandi betur tryggður gegn því að hvers kyns plöntuvarnarefni, sem geta til dæmis haft hormóna truflandi áhrif séu í vörunni og einnig að mjólkin komi frá kúm sem fá fóður og aðbúnað sem uppfyllir skilyrði í lífrænum landbúnaði.

Reglur um ísgerð og mjólkurinnihald

Bretar settu árið 1996 reglursem giltu til2015um að til að selja mættivöru sem ís (icecream) þyrfti mjólkurfita að uppfylla hið minnsta 5% af innihaldsefnum og 2,5% að vera mjólkurprótein.   

Evrópska ísfélagið (EuropeanIceCreamAssociation), viðskiptasamband ísframleiðendafékk innleiddareglugerð í Evrópusambandinuum 5% mjólkurfitu sem skilyrðifyrir því að selja vöru sem ísog þar með var slakað á kröfunum í Bretlandi sem varð til þess að margir framleiðendur skiptu smjörinu út fyrir ódýrari fitugjafa eins oghertapálmaolíuog herta kókosolíu.   

Bandaríkjamenn eru með öllu strangari reglur en þar er kveðið á um að minnsta kosti 10% mjólkurfituog 6-10%mjólkurpróteinsem hlutfall af þyngd.Vanilluís frá bandarísku fyrirtækjunumBen&Jerry´sogHäagen-Dazs,sem fást í fjölmörgum verslunum,bera þessu vitni ogerrjómi efstur á lista innihaldsefna þeirra.Ljóst má vera að tækifæri er til meiri nýtingar á mjólk, rjóma og eggjum í innlendri framleiðslu á ís. 

Að lesa innihaldslýsingarer góð iðja

Í ísgerðeru gjarnan mörg aukaefninotuð og listi innihaldsefna oft langur.Sem dæmi erubindiefni algengen þau þjóna því hlutverki að splæsa fitunni og vatninu saman í einsleitan massa.  Til eru margar tegundirmis heilnæmrabindiefna ogstundumer ekki tilgreint í innihaldslýsingu um hvaða bindiefni er að ræða. Ávinningur getur verið af því að velja vörur sem innihaldafærri hráefni en fleiri og sér í lagihráefni sem neytandinn þekkireða getur aflað sér upplýsinga um. 

Val neytandans, verð og fyrirhöfn

Verð var ekki skoðað sérstaklega samhliða en ljóst að minni ísgerðirnar nota meiri mjólk og rjóma en vörur frá þeim eru um leið dýrari sem verður að teljast eðlilegt í ljósi framleiðslumagns og hráefnisvals. Stikkprufa var tekin sem leiddi í ljós að hálfur lítri af rjómaís frá Holtaseli kostar 1200 kr á vefsíðu þeirra, hálfur lítri af vanilluís frá Skúbb 1290 kr og einn lítri af Mjúkís frá Kjörís 929 kr í Krónunni. Fjöldi bragðtegunda er til af innlendum ís og til dæmis boðið upp á Skúbblerone frá Skúbb í Krónunni, hálfan lítra á 1054 kr.

Leiðrétting við grein:

Vatn, smjör og sykur eru aðalinnihaldsefnin í Rjómaís frá Emmessís, ekki smjör og sykur, og leiðréttist það hér með. 

Einnig leiðréttist að samkvæmt bandarískum reglugerðum um ísgerð þarf ís að innihalda 6-10% mjólkurþurrefni, ekki mjólkurprótein. 

Beðist er velvirðingar á mistökunum.

Skylt efni: mjólkurvörur | ís

Þrjátíu þjóðerni í Rangárþingi ytra
Fréttir 30. apríl 2026

Þrjátíu þjóðerni í Rangárþingi ytra

Laugardaginn 9. maí verður fjölmenningarhátíð haldin í íþróttahúsinu á Hellu frá...

Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta
Fréttir 29. apríl 2026

Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta

Skeifudagurinn fór fram á sumardaginn fyrsta að Mið-Fossum í blíðskaparveðri. Vi...

Kílómetragjald á dráttarvélum
Fréttir 25. apríl 2026

Kílómetragjald á dráttarvélum

Bændasamtök Íslands auglýsa eftir bændum sem hafa orðið varir við að kílómetragj...

Nýtt myndband um burðarhjálp
Fréttir 24. apríl 2026

Nýtt myndband um burðarhjálp

Nýtt myndband hefur verið sett inn á YouTube-rásina Leiðbeiningar um burðarhjálp...

Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar
Fréttir 24. apríl 2026

Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að starfsfólk þess hafi orðið fyrir ...

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 22. apríl 2026

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins

Í þættinum er rætt við Guðmund Vernharðsson hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík...

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki
Fréttir 22. apríl 2026

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki

Hertar reglur um innflutning á vörum sem innihalda skordýraeitrið thiamethoxam t...

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor
Fréttir 21. apríl 2026

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor

Nýlega kom fyrsti kálfur vorsins í heiminn hjá Nautís á Stóra-Ármóti í Flóahrepp...