Verðhækkun um 2,5% tryggð
Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur verið fluttur inn lífrænt vottaður áburður sem hentar einnig í hefðbundnum landbúnaði.
Hjörtur Grétarsson er einn eigenda Vege, sem flytur inn lífrænt vottaðan áburð. Hann segir birgjana hafa staðfest að lágmarks verðhækkun verði gerð á milli ára, 2,5%. Hann segir góða reynslu af notkun áburðarins á Íslandi.
Lekur ekki út í náttúruna
„Við erum þekkt innan lífræna geirans. En það eru bændur utan hans líka sem nota áburðinn frá okkur,“ segir Hjörtur.
„Okkar niðurstaða er að þetta tvennt gengur best fyrir íslenskar aðstæður,“ segir hann um svokallaðan Plöntunæri og Jarðvegsvin, kyrnisáburði sem þau flytja inn, „og vökvinn í ylræktina.“
„Þetta hefur verið prófað talsvert á Íslandi, til dæmis þegar verið er að brjóta tún og endurrækta,“ segir Hjörtur um Jarðvegsvininn. Hann er bættur með steinefnum og vaxtarhvetjandi efnum og er unninn úr vínberjahrati.
„Plöntunærir er þægilegur fyrir bændur. Hann losar um 50% af næringarefnunum á sex vikum, svo hann er niturgjafi mest allt sumarið. Hann lekur ekki út í náttúruna og í grunnvatnið,“ segir Hjörtur. Hann bendir á að slíkur áburður sé ákjósanlegur á stöðum svo sem við viðkvæm vötn.
Hentar í hefðbundnum búskap
Fyrirtækið selur nokkrar vörur sem henta bæði til ræktunar túna, í útiræktun grænmetis, kornrækt eða í ylrækt, bæði í föstu og fljótandi formi.
Áburðinn er hægt að bera á með hefðbundnum áburðardreifara og því ekki þörf á sérstökum tækjum.
Einnig er í boði áburður sem hægt er að úða á vaxtartímabilinu. Hjörtur segir áskorun að koma slíkum áburði á markað á Íslandi, en hann sé mikið notaður í Evrópu. Hann geti hentað í kartöfluræktun og útiræktun grænmetis og ekkert sé því til fyrirstöðu að nota hann í tún- eða kornrækt til að bæta uppskeruna. Til þess gætu nýst drónar sem verða æ algengari í landbúnaði.
„Í Evrópu er sala af þessum áburði um 70% til bænda sem eru ekki í lífrænni ræktun,“ segir Hjörtur. „Það er mikið til vegna aukinna krafna um minnkaða mengun frá tilbúnum áburði.“
Hjörtur segir erlendar efnarannsóknir hafa sýnt fram á að við notkun á áburðinum mælist hærra próteininnihald í grasi, samanborið við þar sem tilbúinn áburður er notaður.
Góð reynsla í Neðri-Hálsi
Kristján Oddsson er bóndi á NeðriHálsi í Kjós og einn stofnenda Biobús. Hann segist hafa notað áburðinn frá Vege með góðum árangri. Hann segir að í túnrækt sé mælt með að nota 270 kg á hektara ef enginn annar áburður er notaður. Í Neðri-Hálsi er hlutfallið um 1520% af heildaráburðarnotkun á móti öðrum lífrænum áburðargjöfum, búfjáráburði, kjötmjöli og heimagerðri moltu. „Við notum þennan áburð líka á tún sem notuð eru til beitar eftir fyrsta slátt í júní og þá er notaður hálfur skammtur. Hann snerpir á sprettunni.“
Hann segir góðan kost við þennan áburð að hann endist vel og skolast ekki auðveldlega út. Best sé að bera hann á sem fyrst á gróðurtímabilinu.
