Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Lárus 22404 (1662742-0058).
Lárus 22404 (1662742-0058).
Á faglegum nótum 27. júní 2023

Tilboð óskast

Höfundur: F.h. Nautís ehf. Sveinn Sigurmundsson framkvæmdastjóri.

Sæðistaka er að hefjast úr þeim nautum sem fæddust sumarið 2022 en ekki verður tekið sæði úr þeim öllum. Nautin og kvígurnar eru gæf og meðfærileg. Þau eru boðin til sölu og er lýsing á þeim á heimasíðu Búnaðarsambandsins og á næstu síðum Bændablaðsins. Nautin sem sæði verður tekið úr verða ekki afhent nýjum eigendum sínum fyrr en nægjanlegu magni af sæði hefur verið safnað úr þeim. Aðrir gripir verða afhentir strax að lokinni sölu.

Söluferli gripanna

Ákveðið var að styðjast við sömu útboðsreglur og í fyrra en nú eru kvígur líka til sölu. Óskað er eftir skriflegum tilboðum í hvern grip á þar til gerðu eyðublaði.

Hverjir mega bjóða í gripina?

Rekstraraðilar í nautgriparækt – bæði einstaklingar og lögaðilar– geta sent inn tilboð uppfylli þeir eftirfarandi skilyrði:

  1. Séu skráðir eigendur eða leigjendur lögbýlis og með lögheimili á Íslandi.
  2. Stundi nautgriparækt og reki nautgripabú á lögbýlinu með virkt virðisaukaskattsnúmer og starfsemi þeirra falli undir atvinnugreinanúmer 01 og 02 í atvinnuvegaflokkun Hagstofu Íslands, sbr. ÍSAT2008, þó ekki starfsemi í undirflokkum 01.61, 01.62, 01.63, 01.64, 01.70 og 02.40.
  3. Séu þátttakendur í afurðaskýrsluhaldi Bænda­samtaka Íslands og hafi sinnt fullnægjandi skilum á skýrslum fyrir framleiðsluárið 2022, sbr 4. gr. reglugerðar nr 348/2022
Tilboðsferli

Tilboð verða að berast á þar til gerðu eyðublaði sem aðgengilegt verður á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands (bssl.is) en þeir sem ekki geta nálgast eyðublaðið á þann hátt geta haft samband við Svein í síma 894­7146 og fengið blaðið sent til sín.

Á eyðublaðinu er tilgreint í hvaða grip eða gripi er verið að gera tilboð en bjóða má í eins marga gripi og hver vill, en tilgreina skal hversu hátt er boðið í hvern þeirra.

Ef sami aðili sendir inn fleiri en eitt tilboð gildir nýjasta tilboðið, en hver tilboðsgjafi getur bara haft eitt gilt tilboð í hvert naut og sömuleiðis eitt gilt tilboð í hverja kvígu en sami aðili má kaupa eitt naut og eina kvígu.

Lágmarksboð í nautin er 800.000 kr – áttahundruð þúsund kr ­ án vsk. Lágmarksboð í kvígurnar er 500.000 kr – án vsk. og verða lægri tilboð ekki tekin gild. Tilboðið á þar til gerðu eyðublaði þarf að senda í ábyrgðarpósti merkt:

Tilboð í nautgripi
Nautgriparæktarmiðstöð Íslands
Austurvegi 1, 800 Selfoss

Tilboðið þarf að vera póstlagt í síðasta lagi miðvikudaginn 28. júní 2023 en tilboðin verða síðan opnuð og unnið úr þeim þriðjudaginn 4. júlí 2023 og hefst kl. 10.00.

Þeim sem gera tilboð er frjálst að vera við þegar tilboðin eru opnuð og eða fylgjast með á teams­fundi og fá sendan hlekk á fundinn til sín.

Ráðstöfun gripanna eftir opnun tilboða
  1. Fyrst skal ganga úr skugga um að tilboð sem borist hafa séu gild, þ.e. þau uppfylli öll þau skilyrði sem sett hafa verið.
  2. Komi jöfn hæstu tilboð í einhvern grip frá tveimur eða fleiri aðilum skal hlutkesti ráða í hvaða röð tilboðin raðast.
  3. Gengið skal frá sölunni á þann hátt að fyrst er tekinn fyrir sá gripur sem hæst er boðið í, þá sá sem næsthæst er boðið í og svo koll af kolli. Komi jafn hátt boð í tvo eða fleiri gripi skal hlutkesti ráða um röð þeirra nauta við sölu.
  4. Hver tilboðsgjafi getur einungis fengið keypt eitt naut og eina kvígu. Ef sami aðili á hæsta boð í fleiri en einn grip af hvoru kyni skal hann velja hvaða tilboði hann vill halda og dettur hann þá út sem tilboðsgjafi í aðra gripi.
  5. Kaupandi skal ganga frá greiðslu fyrir gripina inn á bankareikning Nautís í síðasta lagi 7. júlí. Litið er á greiðslu á þessum tímapunkti sem fyrirframgreiðslu en nautin verða áfram í eigu og á ábyrgð Nautís fram að afhendingardegi.
  6. Sé ekki greitt inn á banka á réttum tíma fellur tilboðið úr gildi og sá sem átti næsthæsta boð í viðkomandi grip fær kaupréttinn. Hafi sá aðili þegar fengið keyptan annan grip getur hann valið hvorn gripinn hann vill taka. Við svona breytingar á einum grip getur því kaupréttur breyst á fleiri gripum.
  7. Ef gripur stenst ekki dýralæknisskoðun varðandi almennt heilsufar eða sæðisgæði að lokinni sæðistöku fellur sá gripur út úr sölumeðferð og fær kaupandi þá endurgreitt kaupverð. Þetta hefur þó ekki áhrif á röð tilboða eða kauprétt á öðrum nautum.
  8. Berist ekki gilt tilboð í einn eða fleiri af gripunum mun stjórn Nautís ehf. ákveða hvernig með þá gripi verður farið í framhaldinu.

Angus-holdanaut frá NautÍs fædd 2022

Kvígur frá NautÍs

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...