Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Karl Grétar Karlsson og Hlynur Angantýsson.
Karl Grétar Karlsson og Hlynur Angantýsson.
Líf og starf 25. ágúst 2026

Þeir skora sem þora!

Höfundur: Björn Þorláksson

Hart var barist fram á síðasta spil og úrslit tvísýn í viðureign Vestra gegn Kjörís í síðustu umferð bikarkeppni Bridgesambands Íslands. Kjörís átti sautján impa til góða eftir fyrstu 20 spilin. Björn Þorláksson. Vestri náði fjögurra impa forskoti er tíu spilum var ólokið. Þegar upp var staðið réðust úrslit í einu síðasta spilinu, hvort Hlynur Angantýsson í sveit Vestra næði að landa ævintýralegum samningi gegn öllum líkum.

Í lokaða salnum létu AV sér duga að spila geim í gröndum í spili dagsins, sjá stöðumynd, og skrifuðu 430 sæmilega sáttir að hafa ekki farið sér að voða. 

En þar sem Kristján Þorsteinsson og Páll Þórsson sátu NS fyrir Kjörís en fyrrnefndur Hlynur og Karl Grétar Karlsson fyrir Vestra gekk meira á. Hlynur sat með ofurspilin, 26 klettaða og klettaðan sexlit. Hann opnaði á 2 laufum en einhver misskilningur varð eftir 3ja tígla sögn makkers og hann stökk í laufslemmuna í þeirri trú að makker ætti eitthvað.

Kristján í Kjörís gerði vel með því að spila út trompi sem gaf sagnhafa ekkert. Hlynur lagðist undir feld og sá að hjartakóngur yrði að vera réttur og hjartað mátti ekki liggja í hel. Þá væri betra ef trompið lægi 2-2 og þá var eftir að finna spaðann ef það var hægt.

Tíguldrottning önnur var líka smáséns og Hlynur drap heima og tók tvo efstu í tígli, en ekki lét drottningin sjá sig. Fór næst inn í blindan á tromptíuna og sá að trompið var 2-2. Svínaði hjarta, sem gekk. Tók hjartaás, trompaði hjarta, spilaði spaðagosa, Páll dúkkaði réttilega, en sagnhafi hitti á að setja lítið sem kostaði ásinn.

12 slagir og ævintýralegur endir.

Ef slemman hefði tapast, ætli hún sé ekki nálægt 20 prósentum, hefði Kjörís farið áfram en þeir skora sem þora. Stundum!

Umsjón: Björn Þorláksson

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...