Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Mynd / Aaron Blanco Tejedor
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði á árinu 2026. 

Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.

Lífræn ræktun er aðferð til landbúnaðarframleiðslu sem stefnir að því að framleiða hráefni til manneldis með náttúrulegum efnum og aðferðum með virðingu fyrir vistkerfum og dýravelferð að leiðarljósi. Það er mælt fyrir um ítarlegar lágmarkskröfur í reglugerðum og fela þær í sér að lífræn ræktun þarf að vera fjölhæf starfsemi þar sem notaðar eru náttúrulegar endurnýjanlegar auðlindir svo sem húsdýraáburður, skiptiræktun, belgjurtir og fóðurjurtir sem stuðla að bættri frjósemi jarðvegs og viðhalda til lengri tíma.

Umsóknarfrestur á Afurð er til miðnættis 4. ágúst nk. Á Afurð má einnig finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn. Nánari upplýsingar á vef Stjórnarráðs Íslands.

 

Skylt efni: Lífræn ræktun | Styrkir

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Tilraunir með ullarafganga
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var n...