Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Náttúruverndarsamtök Íslands segja kortlagningu íslenskra víðerna vera „ákaflega mikilvægt skref í verndun náttúru í bæði íslensku og alþjóðlegu samhengi“. Myndin er tekin á Lónsöræfum.
Náttúruverndarsamtök Íslands segja kortlagningu íslenskra víðerna vera „ákaflega mikilvægt skref í verndun náttúru í bæði íslensku og alþjóðlegu samhengi“. Myndin er tekin á Lónsöræfum.
Mynd / Þröstur Helgason
Fréttir 18. maí 2026

Skiptar skoðanir á reglugerðardrögum

Höfundur: Þröstur Helgason

Náttúruverndarfólk er almennt ánægt með drög að reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur lagt fram til Alþingis en orkugeirinn setur fyrirvara við drögin.

Reglugerðardrögunum er ætlað að kveða á um þau viðmið og forsendur sem liggja til grundvallar kortlagningu óbyggðra víðerna á landinu. Markmiðið er að setja fram samræmda aðferðafræði við kortlagningu víðerna landsins sem „byggir á skýrum viðmiðum og forsendum“ eins og segir í kynningartexta á samráðsgátt stjórnvalda. „Kortlagningin skal byggja á hlutlægum viðmiðum um áhrif mannvirkja og annarrar landnotkunar á lífríki, náttúrulega ferla og upplifun fólks af víðernum.“

Þar er sömuleiðis bent á að skort hafi á skýra skilgreiningu viðmiða og forsendna frá setningu laga um náttúruvernd frá 2013 og því hafi „tilraunir til samræmdrar kortlagningar þessara svæða verið með nokkuð ólíkum hætti og byggst á mismunandi túlkun á því hvaða áhrif einstök mannvirki skuli hafa á afmörkun víðerna“.

Veruleg framför

Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði, hefur bent á það í bók sinni Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands að þessi viðmið og forsendur skorti til þess að hægt sé að afmarka víðerni landsins. Í bókinni segir hann meðal annars: „Við vitum ekki hvar víðerni landsins fyrirfinnast, hversu mörg þau eru, hvar draga skuli mörkin á milli þeirra, hversu umfangsmikil þau eru í heild né hvað sérkennir þau, í það minnsta í náttúrulegu tilliti.“

Í umsögn sinni um reglugerðina segir Þorvarður hana „marka verulega framför í náttúruvernarmálum á Íslandi“. Segir hann ekki síst mikilvægt að „reglugerðin heggur á ýmsa hnúta sem hafa bæði torveldað tilraunir til kortagerðar á fyrri árum og valdið óvissu sem hefur, í vissum tilfellum, magnað upp deilur á milli ólíkra hagaðila“.

Náttúruverndarstofnun fagnar sömuleiðis reglugerðardrögunum og segir að það megi líta á þau „sem verkfæri til að vernda náttúru og bæta ákvarðanatöku“. Enn fremur segir þar: „Kortlagning hjálpar m.a. við að skilgreina hvaða svæði teljast raunverulega víðerni (án mannlegra áhrifa) og styður við vernd á viðkvæmum vistkerfum og ósnortnum landsvæðum. Kortlagning eykur gæði við ákvarðanatöku um landnýtingu þar sem til verða sameiginleg viðmið.“

Náttúruverndarsamtök Íslands segja kortlagningu íslenskra víðerna vera „ákaflega mikilvægt skref í verndun náttúru í bæði íslensku og alþjóðlegu samhengi“. 

Hafi ekki bindandi áhrif á landnýtingu

Í umsögn Landsvirkjunar er lögð áhersla á að ákvæði reglugerðarinnar „haldist innan þess lagaramma sem náttúruverndarlög setja og að þess sé gætt að kortlagningin hafi ekki bindandi áhrif á landnýtingu“. Áformuð kortlagning megi þannig ekki leiða til „sjálfvirkrar útilokunar svæða frá uppbyggingu orkuvinnslu, sér í lagi svæða sem teljast nú þegar röskuð eða á skilgreindum iðnaðarsvæðum“.

Landsvirkjun bendir enn fremur á „mikilvægi þess að reglugerðin samræmist áherslum stjórnvalda um einföldun stjórnkerfis sem og leyfisveitinga orkuvinnslu“. Reglugerðin megi ekki auka flækjustig. Í umsögn Samorku er tekið í svipaðan streng. Lagt er til að endurskoða reglugerðardrögin með það að markmiði að „skýra betur hlutverk kortlagningar og takmarka íþyngjandi áhrif hennar“. Mikilvægt sé að kveða skýrt á um það að „kortlagning sé fyrst og fremst upplýsingagagn, en ekki sjálfstæð takmörkun á landnotkun“, segir í umsögn Samorku.

Ákveðið jafnvægi

Í reglugerðardrögunum er skilgreind aðferðafræði við kortlagningu víðerna. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að afmörkun víðerna byggi meðal annars á svokölluðum skerðingarsvæðum umhverfis mannvirki og önnur tæknileg ummerki, svo sem vegi, byggingar og orkumannvirki. „Þessi skerðingarsvæði geta verið misstór eftir því hversu ágeng umrædd mannvirki eru talin vera í landslagi. Við afmörkun hluta þessara svæða er heimilt að beita sýnileikagreiningu til að meta hvort mannvirki eru sýnileg í landslagi“, segir í kynningartexta.

Þar segir sömuleiðis að við vinnslu reglugerðardraganna hafi verið leitast við að ná ákveðnu jafnvægi við ákvörðun viðmiða og skerðingarvegalengda einstakra mannvirkja. „Annars vegar var litið til þess að gera ekki of strangar kröfur varðandi stærð skerðingarsvæða eða sýnileikaáhrif, þar sem of ströng viðmið gætu leitt til þess að fá og tiltölulega lítil svæði yrðu í raun skilgreind sem óbyggð víðerni á Íslandi. Hins vegar var jafnframt varast að hafa viðmiðin of rúm þannig að stór svæði yrðu skilgreind sem víðerni þrátt fyrir að upplifun og gæði slíkra svæða væru skert af mannvirkjum eða annarri landnotkun“. 

Fundaröð Bændasamtakanna um ESB hefst í dag
Fréttir 16. ágúst 2026

Fundaröð Bændasamtakanna um ESB hefst í dag

Bændasamtök Íslands standa fyrir opnum fundum dagana 16. - 18. ágúst þar sem kyn...

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild
Fréttir 14. ágúst 2026

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands, haldið í Reykjavík þann 14. ágúst 2026, telur ...

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB
Fréttir 14. ágúst 2026

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB

Bjørn Gimming hélt erindi um norskan landbúnað utan Evrópusambandsins á málþingi...

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi
Fréttir 14. ágúst 2026

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi

Húsfyllir var á málþingi Bændasamtakanna um landbúnað í evrópsku samhengi sem ha...

Færri og stærri býli
Fréttir 14. ágúst 2026

Færri og stærri býli

Ingrid Rydberg, sérfræðingur hjá sænsku bændasamtökunum LRF, hélt erindi á málþi...

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna
Fréttir 14. ágúst 2026

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna

Esa Härmälä fór fyrir samninganefnd finnska utanríkisráðuneytisins um landbúnaða...

Réttalistinn í smíðum
Fréttir 14. ágúst 2026

Réttalistinn í smíðum

Síðustu ár hefur Bændablaðið tekið saman lista yfir tíma- og staðsetningar rétta...

Barkarbjalla hefur numið land
Fréttir 14. ágúst 2026

Barkarbjalla hefur numið land

Barkarbjalla hefur fjölgað sér með góðum árangri í íslenskri náttúru. Hún er í h...