Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Frá undirritun samstarfssamningsins. Hera Grímsdóttir, Orkuveitunni, Fjóla St. Kristinsdóttir, Grímsness- og Grafningshreppi, Lilja Magnúsdóttir, HS Orku, Sævar Freyr Þráinsson, Orkuveitunni, Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Árni Hrannar Haraldsson, Orku náttúrunnar, Sigurður H. Markússon, Orkuveitunni og Bjarni Pálsson, Landsvirkjun.
Frá undirritun samstarfssamningsins. Hera Grímsdóttir, Orkuveitunni, Fjóla St. Kristinsdóttir, Grímsness- og Grafningshreppi, Lilja Magnúsdóttir, HS Orku, Sævar Freyr Þráinsson, Orkuveitunni, Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Árni Hrannar Haraldsson, Orku náttúrunnar, Sigurður H. Markússon, Orkuveitunni og Bjarni Pálsson, Landsvirkjun.
Mynd / Orkuveitan
Fréttir 18. maí 2026

Ofurhiti beislaður á Nesjavöllum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Samstarfssamningur var undirritaður á dögunum um undirbúning og framkvæmd þriðju djúp- nýtingarholunnar í IDDP-verkefninu (Iceland Deep Drilling Project), sem verður boruð á Nesjavöllum í árslok.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Landsvirkjun og HS Orka eru aðilar samstarfssamningsins en markmið hans er að hraða þróun næstu kynslóðar jarðvarmakerfa sem hluta af langtímastefnu Íslands í orkumálum.

IDDP-verkefnin hafa verið í þróun undanfarin 25 ár; IDDP1 var borunarverkefni við Kröflu og IDDP-2 var á Reykjanesi. Í tilkynningu úr umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu segir að þessar tvær tilraunaholur IDDP hafi skilað mikilvægri þekkingu og fært íslenskan jarðhitageira nær því að geta hagnýtt ofurheitan jarðhita, þar sem hitastig fer yfir 350400°C.

Nú sé stefnan sett á að bora þriðju holuna, IDDP3, á Nesjavöllum í góðu samstarfi við Grímsness- og Grafningshrepp, þar sem markmiðið er að prófa nýjar tæknilausnir og kanna hvernig megi nýta ofurheita gufu á öruggan og hagkvæman hátt til framtíðar.

Í tilefni undirritunarinnar er haft eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í tilkynningunni, að hvergi í heiminum leiki jarðhitinn eins veigamikið hlutverk og á Íslandi. „Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er staðráðin í að styrkja enn frekar samkeppnishæfni Íslands á þessu sviði, en jafnframt að horfa lengra og feta ótroðnar slóðir. Nú er stefnan tekin djúpt ofan í jarðskorpuna til þess að beisla ofurheit jarðvarmakerfi í borholum sem gætu skilað margfalt meiri framleiðslugetu en áður hefur þekkst. Í þessu felast gríðarleg tækifæri fyrir orkukerfið okkar, verðmætasköpun og útflutning íslenskrar þekkingar, en líka fyrir orkuskiptabyltinguna og árangur í loftslagsmálum á heimsvísu,“ segir Jóhann Páll.  

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Tilraunir með ullarafganga
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var n...