Teslu hefur tekist vel til við að uppfæra útlit Y-módelsins. Hann er eilítið meiri um sig, bólgnari ef svo má segja, en umfram allt er hann smekklega rennilegur.
Teslu hefur tekist vel til við að uppfæra útlit Y-módelsins. Hann er eilítið meiri um sig, bólgnari ef svo má segja, en umfram allt er hann smekklega rennilegur.
Mynd / þh
Vélabásinn 30. júní 2026

Glæsilegur og aflmikill fjölskyldu- og ferðabíll

Höfundur: Þröstur Helgason

Reynsluakstur á fjórhjóladrifnum Tesla Model Y Premium Long Range, rafbíl sem losar fólk við drægnikvíða á verði sem gerir æ fleirum kleift að láta sig dreyma.

Tesla seldi sinn tíu þúsundasta bíl á Íslandi í síðustu viku. Tesla er fyrsta bílamerkið á Íslandi til að ná því að skrá 10.000 rafbíla en um 2,5% íbúa á Íslandi aka nú um á Tesla rafbílum, segir í fréttatilkynningu frá Tesla af þessu tilefni. Þetta eru ansi magnaðar tölur og ættu kannski ekki að koma á óvart því að Tesla náði snemma ákveðnu forskoti í framleiðslu rafbíla í heiminum og hafa augljóslega komið sér vel fyrir á íslenskum markaði.

Tesla Y er mest seldi bíll framleiðandans hér á landi en yfir 7.200 af þessum 10.000 bílum eru af þeirri gerð og trónir fjórhjóladrifsútgáfan þar hæst. Uppfærð útgáfa af þessum bíl kom á markað snemma árs 2025 en um þessar mundir er kynnt til sögunnar Model Y með sjö sætum. Það er bíllinn sem undirritaður fékk að reynsluaka síðustu daga, fjórhjóladrifinn meðalstór sportjeppi Model Y Premium Long Range.

Fagurblár með hvítum sætum

Ekkert skortir upp á flottheitin í prufubílnum. Þessi fagurblái litur vann hjarta undirritaðs við fyrstu sýn en Teslu hefur raunar tekist afar vel upp við val á litum bíla sinna.

Hvítu sætin kölluðu sömuleiðis á athygli um leið og bíllinn bar fyrir augu. Í fyrstu fannst mér þau eilítið yfirdrifin en fljótlega unnu þau á og á endanum var ég sannfærður um að þessi sæti væru það eina rétta í þessum bíl. Spurningin um það hvort sætin haldist hrein eftir því sem tíminn líður hlýtur þó að vakna.

Sætin sjö

Ef við höldum okkur við sætin sjö þá eru framsætin einstaklega þægileg og gott pláss fyrir ökumann. Annarri sætaröð er hægt að ýta aftar í bílinn sem er hentugt þegar bílstjórinn er lappalangur. Þar fer því vel um farþega. Í öftustu röð er þó ekki pláss fyrir aðra en börn ef vel á að vera. Allur frágangur á öftustu sætaröðinni er þó til fyrirmyndar. Auðvelt er að setja sætin upp og niður og allur aðgangur er sömuleiðis auðveldur fyrir yngri farþegana.

Þess má geta að afþreyingarskjár er aftur í sem styttir farþegum stundir.

Pláss fyrir farangur minnkar vitanlega talsvert þegar aftasta sætisröð er í notkun en þó verður að segjast að Teslahönnuðum er einstaklega lagið að skapa pláss fyrir farangur í bílum sínum. Djúp og rúmgóð hólf eru þannig bæði aftur í og fram í. Að mörgu leyti er bíllinn því upplagður fjölskyldu- og ferðabíll.

Skjáirnir fram í og aftur í eru fullir af ótrúlegum tólum og tækjum til að aðstoða við akstur og stytta farþegum stundir.

Innra byrði einfalt og látlaust

Hönnun á innra byrði Tesla hefur lítið breyst. Þó má segja að enn sé hert á einfaldleika og látleysi með því að meira er nú af svörtum flötum. Aðeins einn ljós borði er í mælaborðinu (sem við köllum svo þótt það séu auðvitað engir hefðbundnir mælar í Teslu). Annað er svart. Þunn ljósarönd í mælaborðinu brýtur upp þessa rólegu stemningu en hún dofnar og lýsist á víxl með tónlistinni í ágætu sautján hátalara hljóðkerfinu. Þetta kemur vel út og er algerlega truflunarlaust fyrir ökumann.

Geymsluhólf á milli framsæta eru óvenjulega rúmgóð sem auðveldar fólki að hafa snyrtilegt í bílnum. Þráðlausar hleðslustöðvar fyrir farsíma hjálpa líka til við að halda umhverfinu snyrtilegu.

Skjár fullur af tækjum og tólum

Talandi um innra byrði bílsins þá verður ekki hjá því komist að nefna skjáinn sem nánast allar aðgerðir fara fram á, kannski of margar því það verður að segjast að maður saknaði stundum gírstangar, rúðuþurrkustangar og jafnvel einhverra takka. Allt fer þetta nefnilega fram á skjánum. Meira að segja gírskiptingin. Putta er rennt upp eða niður yst á skjánum til þess að fara annaðhvort aftur á bak eða áfram. Einnig er hægt að ýta á takka fyrir ofan framrúðuna til þess að skipta um gír. Erfitt er að sjá að þetta geri skiptingar auðveldari eða hraðvirkari.

Burtséð frá smávægilegum annmörkum á borð við þessa þá er skjárinn fullur af ótrúlegum tólum og tækjum sem of langt mál yrði að telja upp hér og setja Teslu í raun og veru í sérflokk hvað það varðar.

Þessu fylgir svo hljóðkerfi með sautján hátölurum, þar á meðal tveimur bassaboxum sem gera sitt gagn. Það er alveg óhætt að trekkja upp stuðið í Teslu. Í því sambandi má nefna að hljóðeinangrun er ágæt í bílnum en mætti þó alveg vera betri, sérstaklega hvað veghljóð varðar.

Afturendi bílsins er talsverður um sig. Hönnunin er samt vel heppnuð. Myndir / þh

Ytra byrði afar vel heppnað

Teslu hefur tekist vel til við að uppfæra útlit Y-módelsins. Hann er eilítið meiri um sig, bólgnari ef svo má segja, en umfram allt er hann smekklega rennilegur. Breyting á ljósum að framan og aftan er kannski það fyrsta sem fólk tekur eftir en þau gera bílinn bæði breiðari og tilkomumeiri.

Bíllinn kemur á 18 tommu felgum en prufubíllinn var á 20 tommu felgum sem að mínu mati gera gæfumuninn hvað varðar útlit bílsins.

Framendi bílsins er sportlegur. Þakið er það sömuleiðis og þar hjálpar til að afturglugginn liggur nánast láréttur í beinu framhaldi af þakinu. Fyrir vikið er útsýn um bakgluggann raunar fremur takmörkuð sem er ákveðinn galli. Ökumaður verður að treysta því mun meira á myndavélasýn á skjá þegar hann bakkar. Í því sambandi má raunar einnig nefna að hliðarspeglar hefðu mátt vera stærri.

Afturendi bílsins er talsverður um sig. Hönnunin er samt vel heppnuð. Og það er ákaflega þægilegt að ganga um skottið í bílnum vegna þess hversu rúmt er um allt. Opnunin er mikil á skottinu og nóg er plássið. Auðveldlega er til dæmis hægt að koma tveimur golfsettum og kerrum fyrir í skottinu án þess að fella niður bökin í annarri sætaröð. Og svo hefur þægindastigið verið aukið fyrir þá sem iðulega eru með fullar hendur þegar komið er að skottinu lokuðu. Þá opnar bíllinn sjálfkrafa eftir 3-4 sekúndur ef þú ert með símann á þér.

Yfir höfuð er hönnun bílsins afar vel heppnuð.

Afl feikigott en fjöðrun full stíf

Aksturseiginleikar prufubílsins voru almennt góðir og að sumu leyti framúrskarandi. Bíllinn er til dæmis með feikigott afl, um 400 hestöfl, og er aðeins 4,8 sekúndur í hundraðið. Það er því gaman að keyra bílinn og hann tekur vel við sér í öllum aðstæðum, bæði innan bæjar og utan.

Beygjuradíus mætti vera minni á bílnum. Á þröngum stæðum verður hann óþarflega stirður í snúningum miðað við stærð bílsins. Fjöðrun er einnig of stíf fyrir minn smekk – en, já, það er vissulega smekksatriði. Maður finnur fullmikið fyrir hvers konar ójöfnum í vegi og á verri vegum utanbæjar verða hreyfingar bílsins of klunnalegar.

Drægni

Drægni prufubílsins er allt að 600 km. Hún reyndist afar góð þá daga sem ég keyrði bílinn. Drægnikvíðinn er svo gott sem úr sögunni. Ég hlóð bílinn tvisvar á Superchargerstöð Tesla og það tók um 20-25 mínútur að koma bílnum úr 20% í ráðlagða 81% hleðslu fyrir venjulegan akstur innanbæjar.

Verð

Prufubíllinn kostar 9.507.790 krónur út úr umboðinu. Innifaldir eru þá marínblái liturinn (197.000), 20 tommu felgur (334.800), svarthvítt innrétting (186.000) og sjö sæti (360.000).

Grunnútgáfan af Teslu Y er þó mun ódýrari. Model Y Rear-Wheel Drive kostar aðeins 6.529.990 krónur. Með Premium Long Range kostar afturhjóladrifni bíllinn 8.029.990 kr en fjórhjóladrifinn kostar hann 8.429.990 krónur. Þetta verður að teljast mjög samkeppnishæft verð eins og raunar á öllum Teslum.

Niðurstaða

Niðurstaðan hlýtur að vera sú að Tesla Y sé einn af áhugaverðustu kostunum á markaði þegar kemur að meðalstórum rafknúnum sportjeppum. Hér fer saman góð hönnun, góðir aksturseiginleikar, kraftur, drægni sem veldur ekki kvíða og verð sem gerir æ fleirum kleift að láta sig dreyma.

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna
Fréttir 29. júní 2026

Kalla eftir skjalasöfnum bóndakvenna

Kvennasögusafn Íslands varðveitir um 400 einkaskjalasöfn og var stofnað sem gras...

Mikil aðsókn nýnema
Fréttir 29. júní 2026

Mikil aðsókn nýnema

Rétt rúmlega fimmtíu nýstúdentar útskrifuðust úr Menntaskólanum að Laugarvatni l...

Ný hreinsikerfi í sumarbústaði við Þingvallavatn
Fréttir 29. júní 2026

Ný hreinsikerfi í sumarbústaði við Þingvallavatn

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands vinnur nú í því að fá betri yfirsýn yfir fráveitu...