Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Þungaflutningar hefjast í Vaðölduver í nótt.
Þungaflutningar hefjast í Vaðölduver í nótt.
Mynd / Landsvirkjun
Fréttir 6. maí 2026

Flutningar vindmylla í Vaðölduver hefjast í kvöld

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Flutningar á vindmyllum frá Þorlákshöfn í Vaðölduver hefjast seint í kvöld, aðfaranótt 7. maí, og munu standa næstu 7-9 vikur.

Þetta eru viðamestu þungaflutningar sem fram hafa farið hérlendis. Keyrt verður sex kvöld og nætur vikunnar og er áætlað að hver ferð taki um 4-6 klukkustundir í akstri og ferðin hefjist klukkan 22 hvert kvöld. Hlé er tekið aðfaranótt sunnudags í hverri viku. Ekið er um 130 kílómetra leið í Vaðölduver frá Þorlákshöfn og ferðahraði lestarinnar verður að meðaltali um 30 km/klst. 

Mynd / Landsvirkjun

Lögregla stýrir flutningunum, vegalokunum og allri umferð í kringum þá. Flutningslestin fer um Þjóðveg 1 frá Selfossi að Landvegamótum, um 60 mínútna akstursleið. Ekki verður hægt að taka fram úr eða mæta lestinni og umferð stöðvuð um veginn þann tíma sem þungaflutningarnir fara fram. Hjáleiðir verða kynntar sérstaklega. 

Hægt er að fylgjast með stöðu vega og umferð hér. 

Skylt efni: Landsvirkjun | Vaðölduver

Hringferð Bændasamtakanna hafin
Fréttir 2. nóvember 2026

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagsl...

Besti hrútur Snæfellinga
Fréttir 2. nóvember 2026

Besti hrútur Snæfellinga

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi var haldin í reiðhöllinni á Ólafsvík 10. o...

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 30. október 2026

Daði Már í Útvarpi Bændablaðsins

Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, er gestur í Útvarpi Bændab...

Uxaeldi í Reykjahlíð
Fréttir 30. október 2026

Uxaeldi í Reykjahlíð

Það er ekki algengt að íslenskir nautgriparæktendur státi af því í markaðssetnin...

Endurvekja gömul eplayrki
Fréttir 30. október 2026

Endurvekja gömul eplayrki

Spar verlsunarkeðjan og ávaxta- og grænmetisframleiðandinn Frutura vinna í samst...

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...