Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Mynd sem fylgdi auglýsingu á Facebook-síðunni Bútækni Finnboga þar sem innfluttar dekkjahliðar voru auglýstar til sölu.
Mynd sem fylgdi auglýsingu á Facebook-síðunni Bútækni Finnboga þar sem innfluttar dekkjahliðar voru auglýstar til sölu.
Mynd / Bútækni Finnboga
Fréttir 18. maí 2026

Dekkjahliðar fluttar inn

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Þrátt fyrir að mikið falli til af vörubíladekkjum á Íslandi svarar ekki kostnaði að framleiða dekkjahliðar innanlands.

Við votheysverkun á heyi í útistæðum þurfa bændur að leggja farg ofan á stæðuplastið, bæði til að koma í veg fyrir að það fjúki og að minnka pláss fyrir súrefni. Algengt er að nota svokallaðar dekkjahliðar, sem eru búnar til úr gömlum vörubílsdekkjum. Þegar dekkin hafa verið skorin á þennan hátt eru þau bæði þægilegri í meðförum og skapast minni hætta á að stálþræðir úr sólanum geri agnarsmá göt á plastið.

Nokkra athygli vakti þegar Finnbogi Magnússon, sem selur búvélar og tæki, auglýsti á Facebook að hann hefði hafið innflutning á dekkjahliðum erlendis frá. Þar kom fram að við kaup á einu búnti með 50 hliðum kostaði hver hlið 540 krónur án virðisaukaskatts og að meðalþyngd á hverri hlið sé 13 kílógrömm. Skrifuðu margir athugasemdir þar sem þeir lýstu undrun sinni á því að ekki væri hægt að kaupa dekkjahliðar af innlendum aðilum, enda fellur til mikið af dekkjahliðum á Íslandi.

Guðmundur Árni Jónsson, sérfræðingur í endurvinnslu hjá Hringrás, kannast vel við notkun á dekkjahliðum sem farg á heystæður. Hann segir fyrirtækið hafa skorið hliðar af vörubíladekkjum til þess að selja bændum, en hafi hætt því þar sem það svaraði ekki kostnaði. Hringrás sendir dekk til endurvinnslu erlendis og fær rúmlega 80 króna úrvinnslugjald fyrir hvert kíló sem skilar sér í meiri afkomu. „Við fáum allt að tíu sinnum minna fyrir þetta ef við leggjum í vinnuna við að skera dekkin,“ segir Guðmundur. Hann bætir jafnframt við að þessi vara sé ekki seld í miklu magni og því borgi sig ekki fyrir fyrirtækið að koma sér upp tækjabúnaði sem geti gert þetta á hagstæðari hátt.

Fura er eitt þeirra fyrirtækja sem tekur við hjólbörðum til endurvinnslu. Samkvæmt svörum þaðan var skoðað fyrir þónokkrum árum að fara út í framleiðslu á dekkjahliðum, en ákveðið að gera það ekki.

Skylt efni: innflutningur | dekk

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...

Tilraunir með ullarafganga
Fréttir 29. september 2026

Tilraunir með ullarafganga

Prjónaverksmiðjan Kidka á Hvammstanga var í tilraunaverkefni þar sem þróað var n...