Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Munum að kássa er best upphituð daginn eftir eða daginn þar á eftir. Sem þýðir að afgangar af afgangakássu er það besta sem janúar hefur upp á að bjóða.
Munum að kássa er best upphituð daginn eftir eða daginn þar á eftir. Sem þýðir að afgangar af afgangakássu er það besta sem janúar hefur upp á að bjóða.
Mynd / Hari
Matarkrókurinn 19. janúar 2023

Afgangakássa

Höfundur: Haraldur Jónasson

Jólin eru búin og ískaldur veruleikinn tekinn aftur við. Það þýðir megrun og líkamsrækt hjá sumum en tiltekt í kæliskápnum hjá öðrum. Við ætlum að vera í seinni hópnum í dag.

Eitt af því sem er oftar á borðum landsmanna á jólunum en aðra daga er rauðkál, bæði úr dós en líka ferskt, og þar af leiðandi er oft erfitt að finna í hvað á að nota hinn helminginn af rauðkálshausnum eftir að sá fyrri fór í jólakálið. Svarið er eins og svo oft áður; kássa! Hvernig sem kássan er og hvernig sem hún er búin til þá er trixið að hafa góðan grunn sem tekur lengi og vel við því sem er neðst í grænmetisskúffunni – og tekur ekki óendanlega langan tíma.

Hakkað kjöt er því mjög hentugur miðill, sérstaklega nautahakk. Bragðgott og einfalt. Hægeldaður vöðvi sem dettur í sundur eftir að hafa verið eldaður í marga klukkutíma er vissulega meira fansí en svona stuttu eftir jól þarf ekki allt að vera fansí.

Við notum hakk í dag

Rauðkál, gulrætur, sellerí og laukur var það sem dagaði uppi í minni grænmetisskúffu eftir jólin.

Hin heilaga þrenning franskrar matargerðar, gulrætur, laukur og sellerí, er jú ofarlega í öllum uppskriftabókum sem teknar eru fram um þetta leyti. Þannig að það er væntanlega svo á fleiri heimilum.

Akkúrat svona grænmeti, hart rótargrænmeti og sterkt kál, eldist líka vel í skúffunni og því um að gera að henda ekki fyrr en í fulla hnefana.

Þarna voru líka nokkrir sæmilega útlítandi sveppir sem og soðnar kartöflur. Fullkomið kássuefni.

Þannig að það eina sem vantaði var próteinið. Hálft kíló af nautahakki í þessu tilviki. Sama magn af fersku eða svo til fersku rauðkáli (má auðvitað nota hvítkál ef það er til). Saxað gróft.

Svo koma sæmilega smátt skornar gulrætur, sellerí, laukur og soðnar kartöflur í þeim hlutföllum að vera sirka einn þriðji á móti kálinu og kjötinu. Hvítlaukur, tómatpúrra og kryddjurtir, steinselja og oregano í bland við kjötkraft, pipar og smá salt.

Munum að kjötkraftur er svo gott sem bragðmikið salt. Þannig að nota annaðhvort og smakka til.

Ekki salta neitt sem ekki er búið að smakka til. Það ætti að verða nýársheitið.

Leynivinaleikurinn

Leynivinurinn, eða -hráefnið að þessu sinni, er Marmite. Dökkbrún gerdrulla, ættuð frá Englandi eða tengdum eyjum. Stútfullt af glútamati sem ýtir undir bragðið af öðrum mat, sérstaklega nautakjöti. Stútfullt af umamí, eða fimmta bragðinu. Ef ekkert er til Marmite-ið eða löngun til að kaupa krukku er hægt að sleppa því eða nota rauðvínsslettu í staðinn. Ætti að vera nóg eftir, eða vonandi. Líka hægt að nota mjög dökkan bjór eins og stout eða jafn vel smá púrtvínsslettu, mögulega wúrshestershiresósu.

En það er gaman að eiga Marmite og við notum það hér. Eins og matskeið eða svo.

Framkvæmdin

Aðferðin er einföld. Steikja kjötið og harða grænmetið. Geymum sveppina og soðnu kartöflurnar aðeins. Hvítlaukur, tvö, þrjú rif eða svo. Kreistum þau og velgjum í pönnunni þegar búið er að steikja allt hitt. Passa að hann brenni ekki. Hvítlaukur verður bitur þegar hann brennur.

Steikja klípu af tómatpúrru um leið. Eina litla dós eða samsvarandi magn úr túbu. Tvær, þrjár matskeiðar.

Salt, pipar, kjötkraftur og umrætt Marmite fer þá út í. Svo vatn, lítri eða svo. Tæplega frekar en rúmlega.

Malla við vægan hita með loki í um klukkustund. Má vera meira, ekki mikið minna. Þegar þessi klukkustund eða svo er liðin eru sveppirnir skornir og smjörsteiktir á pönnu og þeim bætt út í ásamt soðnu kartöflunum og kryddjurtum.

Ég var með steinselju og oregano. Nota það sem er til og er gott á bragðið. Ferskt ef það er til, annars bara þurrt eins og alla daga sem eru ekki jólin.

Gott að láta sjóða loklaust í smástund. Sulla að lokum smá sósujafnara út í til að þykkja sósuna.

Ef sósujafnarinn er ekki til er hægt að þykkja með kúfaðri matskeið eða svo af maísmjöli uppleystu í slettu af köldu vatni. Ef ekkert er heldur maísmjölið er hægt að steikja sveppina upp úr extra miklu smjöri og strá smá hveiti á þá áður en þeir eru hrærðir út í kássuna.

Ætti ekki að hlaupa í kekki ef vel tekst til og mesta hveitibragðið steikist af með sveppunum. Einfaldast að nota sósujafnara. Það er ekkert vesen á honum og er örugglega til eftir jólin – alla vega hjá mömmu eða nágrannanum.

Borið fram heitt og ef það er til sæmilegt brauð er sósan þess virði að bæta á sig nokkrum kolvetnum og moppa hana upp með því í lokin.

Áburðarafurðir úr klóþangi
Fréttir 23. nóvember 2026

Áburðarafurðir úr klóþangi

Nýlega var verkefni sett af stað hjá Matís sem gengur út á að fullvinna klóþang ...

Landbúnaður hluti af lausninni
Fréttir 23. nóvember 2026

Landbúnaður hluti af lausninni

Ísland mun ekki ná settum markmiðum um samdrátt í losun fyrir 2030. „Við þurfum ...

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017
Fréttir 20. nóvember 2026

Sláturdilkum fjölgar á milli ára í fyrsta skipti frá 2017

Sauðfjárslátrun er nú lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og er nú ljóst a...

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki
Fréttir 19. nóvember 2026

66°Norður í félag við kínverskt fatafyrirtæki

Sjóklæðagerðin sem er framleiðandi og sölulaðili 66°Norður hefur stofnað til sam...

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir
Fréttir 19. nóvember 2026

Losunarstuðlar fyrir Ísland innleiddir

Unnið er að því að innleiða íslenska losunarstuðla fyrir framræst votlendi inn í...

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps
Fréttir 19. nóvember 2026

Tafir á skýrsluskilum samráðshóps

Til stóð að skýrslu yrði skilað til umhverfis-, orku- og lofts- lagsráðherra 15....

Engin alvarleg frávik á svínabúinu
Fréttir 19. nóvember 2026

Engin alvarleg frávik á svínabúinu

Engin alvarleg frávik frá reglum um velferð svína komu fram í eftirlitsheimsókn ...

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna
Fréttir 18. nóvember 2026

Unnið gegn efnahagslegum hvötum sem hafa skaðleg áhrif á náttúruna

Svokölluð Yerevan áætlun var samþykkt á þingi aðildarríkja um samning Sameinuðu ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f