Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Skoðun 9. október 2026

Að lifa áhugaverða tíma

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Einhvers staðar á það að vera hin versta bölvun að óska óvini sínum þess að hann muni lifa á áhugaverðum tímum. Þessi trú endurspeglar að sjálfsögðu svartsýni á háu stigi, því sá sem bölvar svona sér allar breytingar sem ógn við sig og sína, en það er samt sem áður svo að öllum breytingum – áhugaverðum sem óáhugaverðum – fylgja jafnt tækifæri og áskoranir.

Ef við byrjum á að horfa út fyrir landsteinana þá hefur óvissa óumdeilanlega aukist þar undanfarin misseri og ár. Alþjóðaviðskipti eru mun áhættusamari en áður, hvort sem það er vegna tollahækkana, eða hótana í þær áttir, stríðsátaka og árása á flutningaskip eða hækkandi olíuverðs.

Allt þetta er hættulegt eyþjóð eins og okkar, því þótt við séum blessunarlega fjarri átakasvæðum heimsins hefur þetta allt áhrif á aðföng okkar og velmegun, því eins og við höfum komist að í hverri krísunni á fætur annarri, þá er ekki alltaf gott að sjá fyrir hvar aðfangakeðjur bresta.

Þegar ekki er lengur hægt að treysta því að frjálst flæði vara, þjónustu og fjármagns milli ríkja haldist ótruflað, er eðlilegt að ríki leiti leiða til að tryggja eigið öryggi – ekki síst í mikilvægustu atvinnugreinunum. Þar vega þungt matvælaframleiðsla og landbúnaður og við verðum að efla eigin framleiðslu – hvort sem er í korni, grænmeti eða dýraafurðum – því einmitt á tímum ófriðar og óróa skiptir máli að geta staðið á eigin fótum.

Ég sagði í upphafi þessa pistils að áhugaverðu tímabilin væru ekki aðeins tími áskorana, heldur einnig tækifæra og ég er sjálfur þannig úr garði gerður að ég vil frekar horfa á tækifærin. Og það eru raunveruleg tækifæri fram undan fyrir íslenskan landbúnað ef okkur sem þjóð ber gæfa til þess að móta hér metnaðarfulla stefnu um uppbyggingu til framtíðar á okkar eigin forsendum.

Íslensk matvælaframleiðsla er aldrei að fara að keppa við ódýrustu innfluttu matvælin í verði, hvort sem er á alþjóðamörkuðum eða í íslenskum matvörubúðum. Til þess er launakostnaður of hár og kröfur varðandi dýravelferð og matvælaöryggi eru of ríkar. En í því felast líka tækifærin. Hvergi er sýklalyfjanotkun minni en í íslenskum landbúnaði og einstök staða íslensku búfjárstofnanna býr til tækifæri til aðgreiningar og markaðssóknar á innanlandsmarkaði, en einnig til útflutnings.

Rétt eins og Íslendingar eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir íslenskar vörur þá er fólk erlendis tilbúið að greiða hærra verð fyrir einstaka framleiðslu á borð við okkar. Og það er vel hægt að gera íslenskan landbúnað að útflutningsgrein á heimsmælikvarða ef þannig er búið um hnútana að bændur hafi fjárhagslegt svigrúm til fjárfestingar og uppbyggingar. Öflug innlend matvælaframleiðsla er vissulega leið til að halda aftur af sveiflum og verðhækkunum á matvörumarkaði – eins og dæmin sýna, en markmið okkar í útflutningi á ekki að vera að keppa við lægstu verðin, heldur að fá eðlilegt verð fyrir okkar framúrskarandi framleiðslu og því markmiði getum við betur náð þegar heimurinn allur, en ekki bara Evrópa, er okkar markaðssvæði.

En hvernig sem fer þá er okkar allra nánasta framtíð afar áhugaverð, því landbúnaður í heimi breytinga verður einmitt til umræðu á degi landbúnaðarins þann 8. október næstkomandi og hvet ég sem flest til að sækja málþingið.

Þá má ekki gleyma stóru Landbúnaðarsýningunni sem haldin verður í Laugardalshöllinni um helgina, en þar verður ótalmargt áhugavert að sjá og vona ég að þau ykkar sem sækja ráðstefnuna komi við í bás Bændasamtakanna og heilsið upp á okkur.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...