Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Helgi Ólafsson og Þorsteinn Þorsteinsson lyfta bikurum.
Helgi Ólafsson og Þorsteinn Þorsteinsson lyfta bikurum.
Mynd / Tómas Tandri
Líf og starf 23. mars 2026

TV Íslandsmeistarar skákfélaga

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Um helgina náði Taflfélag Vestmannaeyja þeim eftirsóknarverða áfanga að verða Íslandsmeistarar skákfélaga. Þetta er í fyrsta sinn í 100 ára sögu félagsins sem Eyjamenn vinna titilinn. Skákir úrvalsdeildar voru sýndar beint og nýjung á keppnisstað voru úrslitaspjöld sem sýna stöðurnar í viðureignunum. Fagmannlegt! Teflt var í fimm deildum. Í þessum pistli segi ég frá úrslitum deildanna og aðeins frá félögunum og í næstu tveimur pistlum langar mig að segja nánar frá mótinu og skýra valdar skákir. Þetta er fjölmennasti innlendi skákviðburður ár hvert en um 400 keppendur mæta til leiks og tefla fyrir sín félög.

TV vann úrvalsdeildina og hefur höfuðstöðvar sínar í Vestmannaeyjum. Greinarhöfundi er ekki kunnugt hve margir liðsmanna A-sveitar koma úr Eyjum en allavega voru B- og C-sveitir þéttskipaðar Eyjamönnum. Víkingaklúbburinn féll í 1. deild.

Taflfélag Garðabæjar vann 1. deildina eftir að mitt félag, TR-B, vann þeirra helsta keppinaut, Skákfélag Akureyrar. Garðbæingar eru oftast sterkasta lið næstefstu deildar en hefur stundum átt í erfiðleikum í efstu deild. Urðu þó Íslands- meistarar 2023! SA-B og TR-C féllu í 2. deild. Dímon vann sannfærandi sigur í 2. deild.

Dímon hefur höfuðstöðvar á Hvolsvelli en margir félagsmanna hafa tengingu við Bolungarvík. B-sveit Taflfélags Garðabæjar fylgir þeim í 1. deild. Skáksamband Austurlands og Skákfélag Selfoss og nágrennis falla niður um deild.

Skákfélag Íslands vann 3. deildina. Starfsemi þeirra er á Íslandi. Formaður félagsins er útvarpsmaðurinn Kristján Örn Elíasson og endurvakti hann félagið fyrir tveimur árum sem keppnislið. B-sveit Víkingaklúbbsins fylgir þeim upp. D-sveit TR og Skákfélag Snæfellsbæjar falla um deild.

Uppáhaldsdeildin mín er sú fjórða. Þar stíga flestir íslenskir skákmenn sín fyrstu skref í kappskák. Fá tækifæri að tefla fáeinar skákir með sínum félögum. Þegar ný félög líta dagsins ljós þarf að byrja neðst, jafnvel þó þau séu mjög sterk á pappírunum. Nú var það félagið 64 mislyndir biskupar sem vann neðstu deildina. Í félaginu er pláss fyrir 64 manns og er félagið skipað skákmönnum á viskualdrinum. Jón Þorvaldsson stýrir félaginu. Með biskupunum fór C-sveit Taflfélags Garðabæjar upp. Þegar allt kemur til alls, þá var þetta líklega mót Garðbæinga. Fara upp í þremur deildum af fjórum! Að lokum minni ég á skákmót þeirra á mánudagskvöldum í Miðgarði, klukkan 19:30.

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Sjómannadagurinn
Fréttir 3. júní 2026

Sjómannadagurinn

Á þessum árstíma, fara viðburðir um land allt að skjóta upp kollinum og kennir m...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 1. júní 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn við vísnagátunni úr 10. tölublaði Bændablaðsins.

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 1. júní 2026

Svar við loftmyndagetraun

Í loftmyndagetrauninni að þessu sinni voru lesendur beðnir um að bera kennsl á í...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 1. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur hvernig skapandi hugmyndir hans fá nú loksins byr undir báða ...

Kvartbuxur – tímalaus klassi
Líf og starf 27. maí 2026

Kvartbuxur – tímalaus klassi

Eftir nokkra útlegð í tísku- heiminum hafa Capribuxurnar, þessi dæmigerði einken...

Landsmótið í Ólafsvík
Líf og starf 26. maí 2026

Landsmótið í Ólafsvík

Landsmótið í skólaskák fór fram í Ólafsvík í ár. Þetta er merkilegt landsmót  fy...

Vísnahornið
Líf og starf 26. maí 2026

Vísnahornið

Jósep Húnfjörð var vel þekktur á sinni tíð, hér lýsir hann vori: Anga viðir, br...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 26. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni úr 9. tbl. Bændablaðisins 2026.