Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Prúðbúnir og vel undirbúnir nemendur í góðu stuði, þar sem fallegt samspil manns og hests endurspeglaði uppskeru vetrarins.
Prúðbúnir og vel undirbúnir nemendur í góðu stuði, þar sem fallegt samspil manns og hests endurspeglaði uppskeru vetrarins.
Mynd / Aðsend
Skoðun 5. júní 2026

Glæsileg útskriftarhelgi Reiðmannsins

Höfundur: Birna Tryggvadóttir Thorlacius

– Um 250 nemendur luku námi

Birna Tryggvadóttir Thorlacius.

Tæplega 250 nemendur útskrifuðust úr Reið manninum helgina 9.–10. maí við hátíðlega athöfn á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands. Útskriftin fór fram í glæsilegri aðstöðu skólans á MiðFossum í Borgarfirði þar sem dagskrá helgarinnar spannaði bæði keppni, sýningar og formlega útskrift, frá morgni til kvölds.

Reiðmaðurinn er bæði verklegt og bóklegt nám í hestamennsku sem hefur á undanförnum árum notið vaxandi vinsælda um land allt. Í vetur voru starfandi 22 hópar á 14 stöðum víðs vegar um landið, sem endurspeglar bæði umfang og fjölbreytileika námsins.

Reynisbikarinn og lokasýningar

Á laugardeginum fóru fram úrslitasýningar þeirra nemenda sem höfðu skarað fram úr í sínum hópum. Alls tóku 15 nemendur þátt í úrslitum í Reiðmanninum I og sjö í Reiðmanninum II. Sýningarnar báru vott um vandaðan undirbúning, fagmennsku og gott samspil knapa og hests.

Að loknum sýningum var tilkynnt um handhafa Reynisbikarsins árið 2026. Bikarinn hlaut Björn Ragnar Morthens á hestinum Glófaxa frá Reykjavík. Verðlaunin eru veitt þeim nemanda á öðru ári sem hlýtur hæstu einkunn fyrir lokasýningu á útskriftarhelginni. Björn Ragnar hlaut jafnframt viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn í verklegum prófum í Reiðmanninum II. Í Reiðmanninum I var það Brynja Dís Emilsdóttir sem hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í verklegum prófum.

Útskriftardagskrá laugardagsins lauk með formlegri útskrift alls 241 nemanda úr Reiðmanninum I, II og III, auk Keppnisnáms Reiðmannsins. Það sem einkenndi daginn var þó ekki síst létt stemning, samheldni og gleði meðal nemenda og gesta.

Mikið var um fallegar og vel útfærðar sýningar þar sem samspil knapa og hests naut sín vel.

Reiðmannsmótið á Mið-Fossum

Seinni hluti helgarinnar snerist um keppni þegar Reiðmannsmótið fór fram á sunnudegi. Mótið, sem er löglegt keppnismót, var haldið í þriðja sinn á nýuppgerðum keppnisvelli á MiðFossum.

Veðrið lék við keppendur og þátttaka var mikil, með um 120 skráningar í fjölbreyttum greinum, þar á meðal tölti, fjórgangi, fimmgangi og flugskeiði. Nemendur úr öllum stigum námsins tóku þátt, þar á meðal 46 nemendur úr Keppnisnámi Reiðmannsins.

Reynisbikarkeppnin endurspeglaði gott starf og vandaðan undirbúning knapa. Hér má sjá efstu knapa keppninnar.

Mótið gekk afar vel og var ljóst að undirbúningur nemenda var vandaður. Metnaður og gleði einkenndu keppnina og var augljóst að margir höfðu tekið miklum framförum yfir veturinn.

Nám sem tengir saman fólk og hesta

Þótt útskriftarhelgin marki formlegan endapunkt námsársins, var hún jafnframt áminning um það samfélag sem myndast hefur í kringum Reiðmanninn. Þar mætast ólíkir knapar víðs vegar af landinu, deila reynslu, læra saman og fylgja eftir sameiginlegu markmiði um betri skilning á hestinum og markvissari vinnu með honum.

Höfundur er verkefnastjóri Endurmenntunar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Skylt efni: LbhÍ | Reiðmaðurinn

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...

Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur mat...

Að lifa áhugaverða tíma
Skoðun 9. október 2026

Að lifa áhugaverða tíma

Einhvers staðar á það að vera hin versta bölvun að óska óvini sínum þess að hann...

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins
Skoðun 7. október 2026

Landgræðsluskóli GRÓ á þingi Eyðimerkursamningsins

Ísland tók þátt í 17. þingi aðildarríkja Samnings Sameinuðu þjóðanna um varnir g...

Lárublómin í Færeyjum
Skoðun 2. október 2026

Lárublómin í Færeyjum

Arnþrúður Lára Pétursdóttir var fædd 6. apríl 1898 á Fremrihlíð, Hofssókn á Vopn...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 28. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Stundum þarf ekki stóra rannsókn til að afhjúpa áhugaverðan veruleika. Í síðasta...

Landsbyggðin og jafnræði
Skoðun 28. september 2026

Landsbyggðin og jafnræði

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna það þykir eðlilegt að auknar álögur le...