Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Verið er að byggja 520 fermetra hús á tveimur hæðum við hlið Gamla frystihússins.
Verið er að byggja 520 fermetra hús á tveimur hæðum við hlið Gamla frystihússins.
Mynd / Aðsend
Líf og starf 4. júlí 2022

Stækka hótel og heilsulind

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

„Það var komin þörf fyrir stækkun, undanfarin ár hefur mikið verið bókað hjá okkur og fólk biður gjarnan um herbergi með sérbaðherbergjum.

Við erum með þessum fram­ kvæmdum að bregðast við þörfinni,“ segir Helgi Sigurðsson hjá Blábjörg Resort, sem ásamt Auði Völu Gunnarsdóttur hefur byggt upp öfluga ferðaþjónustu á Borgarfirði eystra. Nú standa yfir framkvæmdir við stækkun á bæði hóteli og heilsulind sem þau reka samhliða.

Helgi segir að allt sé nú á fullu við að byggja 520 fermetra hús á tveimur hæðum og stendur það við hlið Gamla frystihússins. Á efri hæð hússins verða í allt níu lúxusherbergi, en einnig bjóða þau upp á íbúðir og herbergi með sameiginlegri aðstöðu.

Á neðri hæðinni verður rúmgott spa, bjórböð, þaraböð, eimböð og þar verður einnig boðið upp á spa meðferðir. Helgi og Auður Vala hafa rekið Heilsulind á Borgarfirði eystra undanfarinn áratug, en svæðið var á þeim tíma vinsælt sem göngusvæði en engir heitir pottar fyrir hendi til að hvíla lúin bein eftir gönguna. Vinsældirnar hafa vaxið og æ fleiri ganga þar um yfir sumarið.

Bjórböð, þaraböð og saunaböð

„Við vorum með tvo heita viðar­ potta á útisvæðinu okkar ásamt saunatunnu og inni er einn heitur pottur og innrauð sauna. Það hefur verið mikil ásókn í þessa þjónustu og oft þurft að vísa fólki frá, þannig að við tókum þá ákvörðun að stækka við okkur. Og taka þetta skrefinu lengra í rauninni með því að bjóða upp á bjórböð og þaraböð,“ segir Helgi. Bjórinn sem notaður er í bjórböðin kemur úr eigin brugghúsi, KHB­ Brugghús, og þarinn úr firðinum. Þrjár tegundir eimbaða verða í nýja húsinu sem er í byggingu, venjuleg finnsk sauna, innrauð sauna og
blaut sauna.

Tjón hefur á stundum orðið á heitu pottunum sem eru utandyra, þeir hafa orðið fyrir verulegum skemmdum eftir óveður að vetrarlagi. Í janúar segir Helgi að enn eitt skiptið hafi gert ofsaveður með þeim afleiðingum að allt útisvæðið eyðilagðist, pottarnir og saunatunnan. „Nú steypum við heita potta og vonum að þeir standi betur gegn veðurhamnum.“

Endurbyggja gamla kaupfélagshúsið

Helgi segir að samhliða þessum framkvæmdum hafi þau einnig unnið við endurbyggingu Gamla Kaupfélagsins, en það hús er eitt hið elsta í þorpinu, byggt 1897. Endurbyggingin er unnin í samstarfi við Minjastofnun og segir hann að verið sé að leggja lokahönd á verkið um þessar mundir. Í húsinu starfrækja þau brugghús og framleiða að auki tegundirnar Landa og Gin.

Þá er ölstofa í húsinu. „Landinn hefur fengið góðar viðtökur og er í boði í öllum vínbúðum landsins,“ segir hann. KHB­Ginið keppir á erfiðum markaði en hlaut silfurverðlaun í alþjóðlegri keppni í London nýverið.

„Við erum afskaplega ánægð með þessi verðlaun og þau hvetja okkur til dáða,“ segir hann og bætir við að bjórinn frá brugghúsi þeirra hafi einnig fengið góðar viðtökur neytenda. Sem dæmi hafi páskabjórinn verið sá söluhæsti frá handverksbrugghúsi miðað við dreifingu í Vínbúðunum.

Flytja inn hús fyrir starfsfólk

„Það gefur augaleið að við svona stækkun sem við erum að fara út í núna þarf fleira starfsfólk og meira húsnæði. Við erum að flytja inn þrjú tilbúin 52 fermetra hús frá Lettlandi og eru þau væntanleg hingað til okkar í lok júní,“ segir Helgi en húsin eru með tveimur svefnherbergjum og við þau er rúmgóð verönd.

„Þetta er spennandi verkefni og það skiptir miklu að fá húsin alveg fullbúin hingað á staðinn, það á bara eftir að setja þau upp,“ segir hann.

Stjörnuspá 16. maí - 30. maí
Líf og starf 16. maí 2024

Stjörnuspá 16. maí - 30. maí

Vatnsberinn hefur í mörgu að snúast þessa dagana en er þó frekar skýr í kollinum...

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...