Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Aron Máni Arnarsson og Arnar Máni Jörgensson, nemendur í  Glerárskóla á Akureyri, unnu við verkefnið, en á milli þeirra er Birna Guðrún Baldursdóttir, iðjuþjálfi Glerárskóla.
Aron Máni Arnarsson og Arnar Máni Jörgensson, nemendur í Glerárskóla á Akureyri, unnu við verkefnið, en á milli þeirra er Birna Guðrún Baldursdóttir, iðjuþjálfi Glerárskóla.
Mynd / Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson
Líf og starf 4. júní 2021

Saumuðu tuskur úr ónýtum handklæðum fyrir þvottahús

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

„Þetta var mjög skemmtilegt og gefandi. Það er alltaf gaman þegar hægt er að finna verkefni fyrir nemendur þar sem þeir geta notað styrkleika sína og blómstrað,“ segir Birna Guðrún Baldursdóttir, iðjuþjálfi í Glerárskóla. Skólinn átti í vetur samstarf við þvottahús dvalarheimilanna á Akureyri, sem fólst í því að búa til tuskur úr ónýtum handklæðum.

Hugmyndin að verkefninu kviknaði á liðnu hausti þegar starfsfólk þvottahússins fékk þá hugdettu að fá einhvern til liðs við sig að útbúa tuskur úr handklæðum sem lokið hefðu hlutverki sínu sem slík. Haft var samband við Birnu iðjuþjálfa og grennslast fyrir um hvort hennar krakkar væru klár í slaginn.

Það voru þau vissulega en kórónuveiran setti strik í reikninginn um skeið í vetur. Rykinu var dustað af hugmyndinni á vordögum og tveir hæfir drengir úr hópnum, þeir Aron Máni Arnarsson og Arnar Máni Jörgensson, fengnir til verksins.

Drengjunum var boðið upp á veitingar á Hlíð að lokinni afhendingu á tuskunum. Þarna sitja þeir til borðs með Birnu, Friðnýju Sigurðardóttur, forstöðumanni stoðþjónustu á Hlíð, og  Rögnvaldi en standandi eru Sigurborg Hreinsdóttir og Nedeljka Ostojic, starfsmenn þvottahússins. Mynd / Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir

40 tuskur afhentar

Þeir komu sér upp aðstöðu í skólanum, settu þar upp saumastofu sem hlaut hið skemmtilega nafn Hálfmáninn. Þar unnu þeir baki brotnu og afraksturinn, um 40 tuskur, var afhentur við hátíðlega athöfn á þvottahúsinu.

Birna segist ekki sjá þetta endi­lega sem stakt verkefni heldur eitthvað sem hægt verði að vinna áfram með á næsta skólaári.

„Það eru stundum einhver verkefni í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir í bænum innan skólans en við mættum örugglega vera duglegri að sjá tækifæri í því og grípa þau,“ segir hún.

Stjörnuspá 16. maí - 30. maí
Líf og starf 16. maí 2024

Stjörnuspá 16. maí - 30. maí

Vatnsberinn hefur í mörgu að snúast þessa dagana en er þó frekar skýr í kollinum...

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...