Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Vannýtt tækifæri
Mynd / Hkr
Leiðari 6. nóvember 2025

Vannýtt tækifæri

Höfundur: Þröstur Helgason, ritstjóri

Hlutfall innlendrar búvöruframleiðslu á íslenskum matvörumarkaði hefur dregist saman á síðustu árum. Hlutfall innlendrar grænmetisframleiðslu af innanlandsþörf hefur lækkað um tíu prósent á síðustu tíu árum og er hlutfallið nú aðeins um 27 prósent. Sauðfé hefur fækkað um þrjátíu prósent á sama árafjölda. Þetta kom fram í frétt í síðasta blaði en þar var vísað til skýrslu um stöðu fæðuöryggis á Íslandi sem unnin var af Nordic Insights fyrir atvinnuvegaráðuneytið.

Í fréttinni komu einnig fram viðbrögð Bændasamtaka Íslands þess efnis að stjórnvöld verði að bregðast við af öllum mætti enda séu áskoranir tengdar fæðuöryggi sérstaklega mikilvægar vegna legu landsins sem gerir það háðara innflutningi á lykilhráefnum til matvælaog fóðurframleiðslu: „Þrátt fyrir að Ísland standi vel á mörgum sviðum, með öflugan sjávarútveg, hreint vatn og aðgengilegt flutningskerfi, er ljóst að fæðukerfi landsins er viðkvæmt gagnvart ytri og innri áföllum og að efla þurfi og styrkja áfallaþolið“, segir í umsögn samtakanna um skýrsluna.

Lesendur blaðsins þekkja þessa umræðu. Þeir vita til dæmis að það er skortur á innlendu nautakjöti á innanlandsmarkaði. Þeir vita líka ástæðurnar. Það vantar hvata til aukinnar framleiðslu, aukna vernd af innflutningstollum, fyrirsjáanleika í stuðningskerfinu og sums staðar vantar líka ódýrara rafmagn til handa þeim sem stunda matvælaframleiðslu.

Í forvitnilegu viðtali við Axel Sæland, formann garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, í blaðinu í dag, kemur þetta meira og minna allt saman fram. Axel segir að grunnurinn að vanda garðyrkjubænda sé sá að það hafi ekki verið næg fjárfesting í greininni til margra ára og tollverndin í útiræktinni hafi rýrnað gríðarlega mikið síðustu ár vegna hárrar verðbólgu. „Umhverfið þarf að vera vaxtarhvetjandi til að aukin framleiðsla eigi sér stað. Samkeppnin erlendis frá er mikil þó svo að tollar séu til staðar.“

Axel segir að núverandi búvörusamningar hamli frekari vexti þótt þeir henti ágætlega til að viðhalda stöðunni eins og hún sé. „Fyrir einstaka framleiðendur er jafnvel best að heildarframleiðsla minnki, því þá fá þeir sem eru eftir meiri ríkisstuðning. Þetta er úrelt kerfi sem miðaðist við umhverfi þar sem næg framleiðsla var og mátti meira að segja draga úr henni. Garðyrkjubændum mun eingöngu fækka miðað við hvernig kerfið er upp sett og því líkur á að hlutfall íslensks grænmetis á markaði haldi áfram að minnka ef ekkert breytist með nýjum búvörusamningum.“

Aðalatriðið er þetta: Það eru augljóslega vannýtt tækifæri í íslenskum landbúnaði sem stjórnvöld virðast hreinlega ekki koma auga á. Í húfi er ekki bara þessi atvinnuvegur, sem veitir ellefu þúsund manns atvinnu og myndar ekki aðeins grunninn að byggðafestu vítt og breitt um landið, heldur einnig fæðuöryggi landsins. Þá eru ótalin jákvæð áhrif á aðrar atvinnugreinar, svo sem ferðaþjónustu. Er ekki kominn tími til að stjórnvöld opni augun fyrir því sem blasir við?

Jarmað, hneggjað og baulað
Leiðari 4. mars 2026

Jarmað, hneggjað og baulað

LED-ljósavæðing gróðurhúsa landsins skapar ný tækifæri í ylrækt. Rannsókn Daniel...

Fjárfestum í framtíðinni
Leiðari 4. mars 2026

Fjárfestum í framtíðinni

Í fréttaljósi hér á síðunni koma fram nýjar tölur frá Hagstofu Íslands um afkomu...

Réttaröryggi bænda er ekki aukaatriði
Leiðari 12. febrúar 2026

Réttaröryggi bænda er ekki aukaatriði

Frumvarp til breytinga á búvörulögum, sem nú liggur fyrir atvinnuveganefnd, er e...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Leiðari 30. janúar 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Það segir sitt um stöðu einkarekinna miðla hér á landi að forsvarsfólk auglýsing...

Nýliðunarvandi
Leiðari 30. janúar 2026

Nýliðunarvandi

Þetta orð, nýliðunarvandi, hefur heyrst lengi í umræðu um íslenskan landbúnað og...

Fyrirsjáanleiki og stöðugleiki
Leiðari 20. janúar 2026

Fyrirsjáanleiki og stöðugleiki

Óhætt er að segja að við lifum nú á áhugaverðum tímum, svo ekki sé fastar kveðið...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Leiðari 16. janúar 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Mercosur-samningurinn verður undirritaður á laugardaginn í Paragvæ eftir meira e...

RÚV og einkamiðlarnir
Leiðari 15. janúar 2026

RÚV og einkamiðlarnir

Ef stofnun fjölmiðils er verulega óskynsamleg hugmynd – jafnvel vitlausari en að...