Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Enn vinnustöðvanir
Mynd / VH
Leiðari 13. maí 2015

Enn vinnustöðvanir

Höfundur: Sindri Sigurgeirsson
Verkfall dýralækna og fleiri starfsstétta innan BHM hefur nú staðið frá 20. apríl og lengur hjá sumum. Lítil hreyfing hefur verið á málinu þó að síðustu fréttir hermi að einhverjar nýjar lausnir gætu  verið að fæðast.  
 
Slíkar fregnir eru þó enn í besta falli óljósar.  Þá eru aðgerðir Starfsgreinasambandsins hafnar og aftur er von á tveggja daga vinnustöðvun þar í næstu viku og svo allsherjarverkfalli þann 26. maí. Því til viðbótar er verið að greiða atkvæði um verkföll innan VR og Flóabandalagsins og hjúkrunarfræðingar hafa boðað verkfall á sama tíma. Takist ekki að afstýra þeim aðgerðum verður atvinnulíf í landinu allt meira og minna lamað um næstu mánaðamót. 
 
Grafalvarleg staða
 
Vaxandi áhyggjur eru af stöðunni og vegna þessa sendu Bændasamtökin sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bréf þann 4. maí þar sem segir meðal annars:
„Staðan í íslenskum landbúnaði vegna verkfallsins er grafalvarleg. Þar brennur heitast á í alifugla- og svínarækt en starfsemi í þeim greinum er með þeim hætti að eldi og slátrun fer fram jafnt og þétt allt árið um kring.  Afurðirnar eru að langmestum hluta seldar ferskar og verð þeirra fellur um leið og þær eru frystar. 
 
Vegna verkfalls dýralækna fer engin heilbrigðisskoðun fram í sláturhúsum og þar með fer engin slátrun fram.  Kjúklingar vaxa hratt upp í sláturstærð og ef þeim er ekki slátrað á þeim tíma sem gert er ráð fyrir,  halda þeir eðlilega áfram að stækka. Það verður svo aftur til þess að of þröngt verður um þá í húsunum. Samfara  eykst verulega hætta á sjúkdómum. 
 
Samkvæmt lögum nr. 55/2013, um velferð dýra og reglugerða með stoð í þeim eru ríkar kröfur gerðar um aðbúnað búfjár, þar með talið þéttleika í húsum. Sé ekki hægt að slátra dýrum áður en farið er yfir mörk um þéttleika í eldi er með því brotið á dýrunum sem í hlut eiga. Jafnframt eru bændur settir í þá stöðu að vera gert ókleift að fylgja lögum sem þeim er ætlað að starfa eftir, af völdum kjaradeilu sem þeir eiga engan hlut að.“
 
Engir góðir kostir í stöðunni
 
Undanþágur hafa fengist, fyrst vegna alifugla- og síðar svínaslátrunar sem hafa gert bændum kleift að létta á þeim húsum þar sem orðið var of þröngt.  Til þess að hún fengist þurftu framleiðendur að lofa að afurðirnar færu ekki á markað, heldur yrðu frystar og ekki markaðssettar fyrr en deilan væri leyst. Það er engin lagaskylda að gera slíkt og þessi leið var og er afarkostur fyrir bændur, en annað var einfaldlega ekki talið forsvaranlegt með hliðsjón af dýravelferð. Engir góðir kostir voru í stöðunni.
Fagráð um velferð dýra fundaði síðan þann 5. maí að beiðni fulltrúa Bændasamtakanna og ályktaði eftirfarandi:
„Fagráð um velferð dýra lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áhrifa yfirstandandi verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun á velferð dýra. Ráðið hvetur stofnunina til þess að hafa náið eftirlit með velferð eldisdýra meðan á verkfalli stendur. Í þeim tilvikum sem ljóst er að þéttleiki sláturdýra er yfir leyfilegum mörkum þarf að bregðast við strax með slátrun. Ráðið tekur ekki afstöðu til þess hvort afurðir séu geymdar eða settar á markað.“
 
Hinar takmörkuðu undanþágur sem að framan greinir eru aðeins skammtímalausn á bráðavanda.  Afurðirnar fara ekki á markað og það þýðir að bændurnir fá ekki greitt fyrir þær. Það hefur fljótt áhrif á lausafjárstöðu búanna. Innan tíðar geta þau ekki keypt fóður og önnur nauðsynleg aðföng, borgað af lánum, að ekki sé talað um að greiða starfsfólki eða eigendum laun. Það bitnar að lokum enn harðar á dýravelferðinni en aðbúnaðarvandamálin sem lýst er að framan.    
 
Tjónið er verulegt hvern einasta dag sem verkfallið stendur og er þegar óafturkræft, því þær frosnu afurðir sem safnast hafa upp eða munu gera það eru undantekningalaust verðminni en ferskar. Það munu bændur ekki fá bætt. Afleiðingar verkfallsins munu því hafa varanleg áhrif á rekstrargrundvöll búanna sem um ræðir. Verkfallið getur hreinlega knúið sum þeirra í gjaldþrot og valdið mikilli röskun á kjötframleiðslu í landinu. Samhliða verða um leið afar neikvæð áhrif á afkomu afurðastöðva, enda geta þær hvorki sinnt sínum viðskiptavinum eða staðið við gefnar skuldbindingar.
 
Sala á innlendu alifugla- og svínakjöti er 260 tonn á viku að meðaltali. Sú framleiðsla er ekki að koma á markaðinn við núverandi aðstæður, heldur er henni safnað upp, annaðhvort með því að fresta slátrun eða með frystingu.  Þegar samningar loks nást er hætt við því að mikið magn af kjöti leiti á sama tíma út á markaðinn, með tilheyrandi verðlækkunum á öllu kjöti og verulega neikvæðum áhrifum á afkomu bænda og afurðastöðva. Áhrif þess geta staðið allt þetta ár og fram á það næsta.  Það er langt umfram þann tíma sem verkfallið er líklegt til að standa, þó það sé þegar orðið allt of langt.
 
Skilningur á þeim langtímaáhrifum sem verkfallið mun hafa er því miður takmarkaður.  Það kom berlega í ljós síðastliðinn föstudag þegar að hafnað var undanþágum um innflutning á frjóeggjum annars vegar til eggjaframleiðslu og hinsvegar til kjúklingaræktar.  Fáist þær sendingar ekki afgreiddar kemur gat í innlenda framleiðslu eggja og kjúklinga sem kemur fram síðla þessa árs, eða á því næsta. Það er í hæsta máta ósanngjarnt að verkfallsaðgerðir geti valdið tjóni þriðja aðila, löngu eftir að deilunni sjálfri lýkur. Slíkt er hrein árás á bændur sem eru ekki aðilar að deilunni.
 
Semjið strax!
 
Verði af verkfalli Starfsgreinasambandsins verður vandinn víðtækari. Það mun hafa mikil og veruleg áhrif á matvælavinnslu og dreifingu matvæla sem og víða annars staðar í samfélaginu. Það mun m.a. hafa áhrif á söfnun mjólkur frá bændum á tíma þar sem mjólkurframleiðsla bænda er í hámarki.  Náist ekki samningar gæti þurft að hella niður allt að þremur milljónum lítra af mjólk á viku sem er tjón upp á 250 milljónir króna.
 
Það verður því að ítreka aftur þá kröfu til deiluaðila sem kom fram hér í blaðinu síðast.  Semjið strax!  Þetta getur ekki gengið svona lengur.
 
Fagfundur og afmælisráðstefna
Skoðun 11. mars 2024

Fagfundur og afmælisráðstefna

Tveir viðburðir tengdir sauðfjárrækt haldnir dagana 21. -22. mars næstkomandi.

Er framtíðin lægra verð fyrir minni gæði?
Skoðun 15. febrúar 2024

Er framtíðin lægra verð fyrir minni gæði?

Við sem neytendur gerum miklar kröfur til innlendrar matvælaframleiðslu og við t...

Heilsársvegur yfir Öxi er skynsamleg fjárfesting
Skoðun 16. nóvember 2023

Heilsársvegur yfir Öxi er skynsamleg fjárfesting

Tilhneiging stjórnmálamanna er að líta á fjármagn sem veitt er í samgöngur sem k...

Óvissutímar
Skoðun 16. nóvember 2023

Óvissutímar

Á óvissutímum með eldgos yfirvofandi, þegar þetta er skrifað, er hægt að fullyrð...

Hinn glæsilegi árangur
Skoðun 14. nóvember 2023

Hinn glæsilegi árangur

Mér líður satt að segja hálf hjárænulega að setjast við skriftir um þrasið og ós...

Dagur sauðkindarinnar
Skoðun 13. nóvember 2023

Dagur sauðkindarinnar

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu var haldinn í reiðhöllinni Skeiðvangi á...

Áhættumatið og aðför að íslenskum hagsmunum
Skoðun 1. ágúst 2023

Áhættumatið og aðför að íslenskum hagsmunum

Í fréttatilkynningu Hafrannsóknastofnunar og í grein Ragnars Jóhannssonar, ranns...

Landbúnaðurinn og aðstoð við Úkraínu
Skoðun 8. júní 2023

Landbúnaðurinn og aðstoð við Úkraínu

Við lifum á óstöðugustu og hættulegustu tímum síðan síðari heimsstyrjöldinni lau...