Adam, Iðunn, Ingvar og Benedikt tefla í Prag.
Adam, Iðunn, Ingvar og Benedikt tefla í Prag.
Líf og starf 25. ágúst 2026

Teflt erlendis

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Íslendingar hafa verið iðnir við að tefla erlendis í sumar eins og venjan er. Þó að hrað- og atskákin fari ekki í sumarfrí, þá er enn sem komið er fátt um kappskákmót á Íslandi á sumrin. Þá fara margir, eins og greinarhöfundur, út fyrir landsteinana. Sjálfur tefldi ég á minningar- mótinu um Zbigniew Doda í Poznan í Póllandi í júlí. Árangurinn var ekkert sérstakur, raunar brá mótshaldarinn til þess ráðs þegar það blasti við að ég fengi skottu (sæti hjá) að skrá dóttur sína til leiks seint og um síðir. Það varð eina sigurskák mín í mótinu.

Þegar blaðið kemur úr vélunum eru Íslendingar víða um heim að tefla. Á skak.is er greint frá þessum mótum með hlekkjum á úrslitasíður mótanna. Óformlegt landslið skemmtilegra skákmanna 30 ára og yngri tefla nú í Split í Króatíu. Stórmeistarinn Vignir Vatnar er þar stigahæstur keppenda og byrjaði afar vel á mótinu. Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr er einnig með í hópnum. Þá er Hannes Hlífar að tafli á La Palma á Kanaríeyjum. Feðgarnir Omar Salama og Jósef Omarsson, ásamt bræðrunum Sverri Erni og Birni Frey Björnssonum, sitja einnig að tafli í Brussel í Belgíu Gaman er að sjá Omar við skákborðið á ný, en hann tefldi síðast kappskák árið 2021. Ungliðadeild Taflfélags Reykjavíkur er einnig að tafli, en fjögur ungmenni tefla í opnu sumarmóti í Prag, sem greinarhöfundur sótti fyrir fáeinum árum. Benedikt Þórisson byrjaði vel, vann meðal annars Indverja með tæp 2300 stig.

Hérlendis er það helst að frétta að sumarsyrpu TR lauk síðustu helgi, en syrpan taldi þrjú mót. Anh Hai Tran vann síðasta mótið með fullu húsi. Mótaröðin er með svipuðu fyrirkomulagi og Friðrikssyrpan, þar sem börnum og ungmennum á grunnskólaaldri gefst tækifæri að tefla kappskák við jafningja sína. Taflfélag Reykjavíkur hélt auk þess hraðskákmót fyrir börn í sumar, eitt í júlí, og það næsta verður næstkomandi laugardag, þann 15. ágúst, klukkan 10:30 í Faxafeni 12. Skráning fer fram á taflfelag. is eða skak.is.  

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

Gauti.pj[hjá]hotmail.com

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...